Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 28
Björn Jalcobsson, jramkv.stj.: Nýjar samgönguleiðir — Nýjar verzlunarleiðir Sá áratugur tuttugustu aldarinnar, sem nú er að líða hlýtur að teljast til merkustu tímabila í hinni árþúsunda göndu baráttu mannsins. I lok sjötta tugs aldarinnar stendur maðurinn ferðbúinn and- spænis stærsta ævintýrinu — ferðum til annarra hnatta, hlutverki sínu trúr — að leita sjálfur lausnar á ráðgátum tilverunnar með raunvísinda- legum hætti. „HiS nýja MiðjarSarhaf" Um væntanlegar geimsiglingar er grein þessari ekki ætlað að fjalla, heldur á hún að vera liug- leiðing um önnur afrek mannsins og tækninnar, sem eingöngu eru bundin við jörðina sjálfa, og okkur íslendinga sérstaklega varðar. Á þeim áratug, sem er að líða, hafa síðustu virki jarðarinnar fallið og síðustu ókönnuðu hlutar yfirborðs hnattarins verið rannsakaðiv. Fjallkonungurinn Everest verður að lúta í lægra haldi, Suðurskautslandið er sigrað með tangarsókn tækni og hugrekkis, en á norðurhveli Siglingaleið Nautilusar jarðar gerist rnesta ævintýrið. Norður-íshafið — hið „nýja Miðjarðarhaf“, síðasta nær ókannaða og lokaða heimshafið opnast fyrir samgöngur í lofti og í Iegi. Síðustu stóru samgönguleiðirnar á þess- um hnetti eru teknar í notkun. Fjögur hundruð ára gamall draumur djarfra landkönnuða og kaup- manna um Norðvesturleiðina og Norðausturleið- ina verður að veruleika. Hnattlega íslands Með opnun flugleiðanna yfir Norðurpólinn milli Evrópu og Austurlanda og flugleiðarinnar milli Evrópu og vesturstrandar Norður-Ameríku, og nú síðast siglingu kafbátsins Nautilusar frá Kyrrahafi til Atlantshafs undir pólísinn hafa öll viðhorf nú og í framtíðinni í samgöngum milli þriggja heims- álfa gjörbreytzt. Vaxandi áhuga gætir nú meðal þeirra þjóða, sem lönd eiga að Norður-íshafinu eða hafa beinna hagsmuna að gæta í sambandi við hinar nýju samgönguleiðir. Hefur t. d. vaknað nýr og virkur áhugi hjá Dönum og Norðmönnum á löndurn þcim, er þeir eiga í Norðurhöfum. Áhugi Bandaríkjanna og Ráðstjórnarríkjanna hefir e. t. v. fyrst og fremst verið hernaðarlegs eðlis hingað til. Þó er vitað að Rússar hafa um áratuga skeið rekið víðtækar rannsóknir í Norðurhöfum. Með smíði kjarnorkuknúinna ísbrjóta eins og „Lenins“ mun Rússum takast að halda opinni Norðausturleið- inni milli Kyrrahafs og Atlantshafs. Bretar sýna þessum nýju leiðum einnig vaxandi áhuga og það eru þeir, sem gefið hafa Norður-Ishafinu hið nýja nafn, en „vinir“ okkar Bretar hafa sem kunnugt er ávallt haft hinn mesta áhuga á öllum „mið- jarðarhöfum“. Alla tíma síðan land þetta byggðist hafa ís- lendingar litið til Norður-lshafsins sem óendanlegr- ar uppsprettu ísa og ógna, þangað sem rekja mætti mikið af þeim hörmungum, sem vfir ]>essa ARCTIC SUMMER ICCPACK 'Noran pott AUG. 3« > PT. BARROW L AUG. I Paclflc 'Dcean PCARL MAl'BQR JULV 23 Aitanttc Ocaan 28 rilJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.