Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 13
skeljasandsbrciðum, en það Voru alltaf taldar vafa- samar framkvæmdir, cins og fyrr segir. Árið 1948 hafði verið fenginn hingað dansk-ensk- ur sementssérfræðingur til þess að yfirfara og endur- skoða áætlanir þær, sem gjörðar höfðu verið um sementsframleiðslu hér. Niðurstöður hans voru svo neikvæðar, að úllit var fyrir, að fyrirætlanir um byggingu sementsverksmiðju yrðu lagðar á hilluna um langt skeið. TJó var ákveðið að gera eina úrslitatilraun enn, og skipaði þáverandi atvinnumálaráðherra þrjá verkfræðinga í nefnd til þessara hluta. í nefndina voru skipaðir dr. Jón Vestdal, senr var formaður, ITaraldur Ásgeirsson, verkfræðingur, og ég. Við beindum athugunum okkar fyrst og fremst að því að reyna að finna hentugri hráefni en vitað var um, og þá sérstaklega á stöðurn, er lægju betur við markaði en sá, er athuganir manna höfðu aðal- lega beinzt að, fram að þessu. Strendurnar um- hverfis Faxaflóa voru fyrsta könnunarsvæði okkar. Þegar á þessum könnunarleiðangrum okkar stóð, fréttum við frá sjómönnum á Akranesi, að þeir liefðu orðið varir við það, er þeir lóðuðu til að kanna botninn, að á vissu svæði í Faxaflóa virtist vera allhreinn skeljasandur. Þóttu okkur þessar upplýsingar athyglisverðar, og sjálfsagt að kanna, hvort hér væri um eitthvert magn af nægilega hrein- um skcljasandi að ræða, og þá einnig, hvort það væri á dýpi, sem hægt væri að ná honum upp af. Fengum við lánað varðskip og útveguðum okkur tæki til að taka sýnishorn úr botninum. Ég ætla ekki að orðlengja þetta, því að það er nú öllum landsmönnum kunnugt, að þarna reyndist að j)ví er virtist óþrjótandi skeljasandsnáma. Þar með var fundinn grundvöllur fyrir sementsvinnslu á fslandi. En ég he'ld, að almenningi sé það ekki eins ljóst, að þarna var einnig stærsti grundvöllur, sem ég fæ séð, fyrir uppbyggingu stóriðju á ýmsum svið- um, með útflutning fyrir augum, en að því ætla ég nú að koma. Fundur þessara skeljasandsmiða var einnig grundvöllurinn fyrir köfnunarefnisáburðar- vinnslu, eins og henni er venjulega háttað. Á stríðsárunum höfðu að vísu gerzt þeir hlutir í Ameríku. að farið var að framleiða köfnunarefnis- áburð án kalkinnihalds. En þó eru flestar slíkar verksmiðjur þannig, að hægt er að nota kalk með, ef þurfa þykir. Mjög víða, og ekki sízt á íslandi, er jarðvegur það kalksnaður, að bæta þarf honum upp það kalk, sem jurtirnar taka úr honum. Það voru því margir þeirrar skoðunar, að köfnunarefnis- áburðarverksmiðja á íslandi ætti að binda kalk með í áburðinn. svo að hann yrði sem fullkomnastur. Með fundi þessarar skeljasandsnámu í Faxaflóa varð einnig sá möguleiki fyrir hendi, að hægt yrði að framleiða hér bæði kalksaltpétur og kalkammon saltpétur. Það virtist, að til þess að ná skeljasandinum upp af því dýpi, sem hann er á, við öldugang og aðrar aðstæður, sem þar voru, gæti orðið nauðsynlegt að smíða sérstakan útbúnað sem og kom síðar í Ijós. Því var ákveðið að bíða ekki eftir því, að gengið yrði úr skugga um Jætta, með að hefja byggingu áburðarverksmiðju, er tækifæri gafst til útvegunar fjármagns í gegnum hina svonefndu Marshall-að- stoð. Var því ákveðið að byggja áburðarverk- smiðju, er framleiddi kalklausan köfnunarefnis- áburð, en jafnframt lagt til, að haft yrði í huga að hafa hana Jjannig, að hægt yrði að bæta kalki inn í framleiðsluna siðar mcir, er aðstæður væru fyrir hendi og þess }>á talin þörf. Nil munu bændur og jarðvegssérfræðingar yfir- leitt komnir á J>á skoðun, að kalkið þurfi að koma í áburðinn, og nú er það líka fyrir hendi. Því er það nú orðið aðkallandi, að bæta við áburðarverk- smiðjuna, J>annig að kalkið verði bundið með. Þess skal getið hér, að mér er ekki kunnugt um, að annars staðar í Evrópu sé framleiddur ammonium nitrat köfnunarefnisáburður, scm notaður er án J>ess að vera blandaður kalki eða öðrum áburðar- efnum. Nú hefur verið ákveðið að færa út framleiðslu Aburðarverksmiðjunnar, þannig að liún framleiði einnig svokallaðan blandaðan áburð köfnunarefnis, fosfórs og kalís. Til J>ess J>arf að flytja inn óunnið fosfórgrjót cða hráfosfat og kalísölt. Enn hefur ekki verið ákveðið, hvaða fyrirkomulag verður haft á framleiðslunni. En ég hef að undanförnu kynnt mér framleiðsluaðferðir J>ær, sem einkum eru not- aðar erlendis, sérstaklega hjá Norðmönnum, ITol- lendingum og Frökkum. Liggja nú fyrir fullnaðarupplýsingar um það, að Norðmenn eru reiðubúnir að aðstoða okkur við að færa út áburðarframleiðslu okkar, þannig að við gætum með Jæssari fyrirhuguðu viðbótarverksmiðju í náinni samvinnslu með okkar núverandi verk- smiðju framleitt eftirfarandi áburðartegundir: FUJÁUS VERZLUN 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.