Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 15
Efnageymsla í stóriðjuveri
Efnaiðnaður sem þessi er nefnilega mjög sjálf-
virkur. Þar lítur liver maður eftir sjálfvirkum mæla-
miðstöðvum, sem oft stjórna heilli verksmiðjudeild.
Það vekur alveg sérstaka athygli manns, er gengið
er í gegnum slík iðjuver, að í stærðar verksmiðju-
húsi sést oft ekki nema einn eða tveir menn, og
stjórna þeir þá með aðstoð sjálfvirkra ta*kja allri
verksmiðjunni.
Við íslendingar eigum að hyggja verksmiðjur
þær, er við ætlum að láta vinna útflutningsvörur,
sem allra stærstar. Eingöngu með því að hafa af-
köstin nógu mikil getum við hagnýtt okkur til
fullnustu nýjustu tækni, en með því eina móti get-
um við orðið samkeppnisfærir á heimsmarkaðnum,
þá verða afköst starfsmannanna bezt.
Við höfum nú cignazt sementsverksmiðju, sem
fullnægir vel okkar innanlandsþörfum. Við höfum
einnig um nokkurt skeið átt köfnunarefnisáburðar-
verksmiðju, cr getur fullnægt þörfum okkar fyrir
köfnunarefnisáburði í bili. Nú hcfur verið ákveðið
að færa út áburðarvinnsluna, þannig að við getum
einnig orðið sjálfum okkur nógir unr framleiðslu
alhliða, blandaðs áburðar. 1 þcssum tveim stærstu
iðjuverum okkar höfum við miðað fyrstu skrefin
við að fullnægja okkar eigin þörfum.
En nú þurfum við að fara að stíga stærri skref.
Við þurfum að hefja stóriðju til útflutnings. Þar
hef ég, sem fyrr segir, fyrst og fremst í huga efna-
iðnaðarvörur, sem unnar eru í verksmiðjum, er
byggja rekstur sinn á vatnsafli okkar og þeim inn-
lendu hráefnum, sem við höfum yfir að ráða, og þá
fyrst og fremst skeljasandi, vatni og lofti. Eðlileg-
ast teldi ég, að fyrsta skrefið væri að reisa stóra
köfnunarefnisverksmiðju, er framleiði bæði áburð
og plasthráefni til útflutnings. Köfnunarefnisáburð-
arverksmiðjan í Gufunesi verður mjög fljótlega of
lítil til að fullnægja innanlandsþörfinni. Innlendu
köfnunarefnisáburðarframleiðsluna þurfum við því
að auka. Þar eigum við því að byrja okkar reglu-
legu stóriðju.
Við höfum nú þegar í landinu sjálfu nægilega
tæknifróða og reynda menn á þessu sviði til þess
að annast sjálfir að mestu leyti uppbyggingu slíkrar
verksmiðju og að öllu leyti rekstur hennar. Við
höfum þegar fengið nægilega þjálfun fyrir íslenzka
starfsmenn í áburðarverksmiðju okkar til þess að
F lt ,T Á L S V E H Z L U N
15