Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 29
þjóð hafa gengið á liðnum öldum. Enn í dag er
talað um að við búum á takmörkum hins byggi-
lega heims. Við höfum jafnan litið til suðurs, og
væntum þaðan alls þess er léttir lífsbaráttuna.
Suðrið hefir verið okkar vonarátt. En sé haldið
áfram til norðurs erum við fyrr en vnrir farnir að
halda til suðurs og þar verða fyrir næstu nágrann-
ar okkar í norðri, hin áður svo fjarlægu Austur-
lönd, Japan og Kína.
Þáð er vafamál, hvort íslendingar hafa áttað sig
á þeirri stórbrevtingu, sem átt hefir sér stað og
sem kemur Lil með að eiga sér stað á næstu ára-
tugum í samgöngum og verzlun, sem skajjast við
opnun Norður-íshafsins, eða þeirri aðstöðu, er ís-
lendingar gcta haft mcð tilliti til hnattlegu lands-
ins við hinar nýju samgönguleiðir — við hið „nýja
Miðjarðarhaf“.
Heimsverzlunin hefir ávallt leilað eftir og hag-
nýtt nýjar samgönguleiðir, ef styttri og hagkvæm-
ari reyndust hinum eldri. Nú þegar liggja hinar
nýju leiðir loftsins yfir ísland og umhverfis Island,
og sá dagur er e. t. v. skemmra undan en menn
nú grunar, þegar vöruflutningar hefjast í stórum
stíl undir pólísnum með risastórum neðansjávar-
skipum knúnum kjarnorku. Anderson skipherra á
Nautilusi lét svo unr mælt eftir hina sögufrægu
siglingu, að þar með væri til staðar ný, hagkræm
og örugg framtíðar samgönguleið, milli Vestur- og
Austurlanda. Fyrirtækið General Dynamics í
Bandaríkjunum, scm bvggði Nautilus, hefir til at-
hugunar byggingu neðansjávar olíuskipa tuttugu
til fjörutíu þúsund smálestir. Japanir hafa tilkynnt,
að þeir hafi til athugunar smíði neðansjávar olíu-
skips, eitt Iiundrað þúsund smálestir að stærð.
Það er hinsvegar aðstaða íslendinga í sambandi
við flugsamgöngur á hinum nýju leiðum, sem grein
]>essari er ætlað að fjalla um, með sérstöku tilliti
til hnattlegu landsins og Keflavíkurflugvallar sem
samgöngumiðstöðvar.
Ef litið er á hnattlegu landsins virðist hagkvæmt
að tengja saman í Keflavíkurflugvelli þrjár megin-
flugleiðir, þ. e. Norður-Atlantshafsflugleiðina og
Pólleiðirnar tvær — til Austur-Asíu og vestur-
strandar Norður-Ameríku.
FR.TAI.S VKHZI.ITN
2!)