Frjáls verslun - 01.12.1959, Blaðsíða 33
Með tilliti til þessarar þróunar má gera ráð
fyrir miklum möguleikum í sambandi við vöru-
flutninga í lofti á pólleiðunum. Kemur þá til sög-
unnar mikilvægi Keflavíkurflugvallar, sem flutn-
ingamiðstöðvar eins og áður hefir verið drepið á.
Ekki er nauðsynlegur sami hraði á vöruflutningum
í lofti eins og farþegaflugi. Til að komast af með
sem minnst eldsneyti eru lendingarflugvellir á lang-
leiðum því nauðsynlegir. Ætti því Keflavíkurflug-
völlur að vera ákjósanleg miðstöð flutninga á Norð-
ur-Atlantshafs- og pólleiðunum tveim.
Geta íslenzkir kaupsýslumenn orðið þátttakendur
í alþjcðlegri verzlun?
Vegna fámennis íslenzku þjóðarinnar og einhæfni
í framleiðsluháttum, hefir allri verzlunarstarfsemi
hér verið þröngur stakkur skorinn. Þá hetir þróun
verzlunarmála hér orðið sú, hvað útflutningsvörur
okkar snertir, að sala þeirra er öll í höndum fárra
aðila eða ríkisins og ríkisfyrirtækja. Innflutnings-
verzlunin hefir einnig í vaxandi mæli færzt í sama
horf, með síaukinni starfsemi samvinnufélaga, inn-
kaupastofnana, verzlunarsambanda o. s. frv.
Án þess að kveða upp dóm um þróun þessara
mála virðist svo, sem um verkefnaskort hjá ein-
staklingsframtakinu á sviði verzlunar geti orðið
að ræða ef þróunin heldur áfram í sömu átt. Tel
ég því ekki úr vegi, að svipazt sé um eftir nýjum
möguleikum, þar sem visðkiptaáhugi íslendinga
fengi notið sín.
Ef Keflavíkui'flugvöllur yrði gerður að alþjóðlegri
fríflughöfn og þróun vöruflutninga í lofti yrði slík
sem ég hef hér að framan vikið að, þá ætti ekkert
að vera því Lil fyrirstöðu, að íslenzkir aðilar gætu
haft milligöngu um sölu á vörum milli heimsálfa
og annazt endurútflutning.
Margskonar önnur starfsemi væri hugsanleg í
sambandi við Keflavíkurflugvöll sem fríflughöfn,
t. d. vörusýningar í einstökum iðngreinum.
Áfram munu íslendingum berast kaldar kveðjur
úr norðurátt, cn það er ósk mín, að eins og Fön-
ikíumenn, hin fámenna en harðduglega þjóð forn-
aldar, urðu í öndverðu brautryðjendur á sviði verzl-
unar og viðskipta við hið gamla Miðjarðarhaf, þá
verði íslendingar í framtíðinni virkir þátttakendur
í verzlun og viðskiptum við hið „nýja Miðjarðar-
haf“.
★
Ingimar Erlendur Sigurðsson:
Kínverski tmírinn
Frjáls verzltin hefur fengið leyfi til að birta eftirfarandi ljóð
úr bókinni „Sunnanhólmar“, er nýlega kom út hjá forlagi Sig-
fúsar Eymundssonar. Þetta er fyrsta bók ungs, efnilegs skálds,
sem síðuslu ár hefur vakið á sér athygli með nokkrunt sögum
og Ijóðum i timaritum. Nýlega fékk Ingimar fyrstu verðlaun í
smásagnasamkeppni Vikunnar.
I
Illaðið upp múr fordómanna
unt sál ykkar
leggið stein eftir stein
í hleðsluna
stritið og bölvið
svo veggirnir þykkni og hækki
II
enginn geisli
skal smjúga í gegn
ekkert auglit
brennast í sálina
enginn vindur
bera annarleg fræ
enginn andblær
hvísla ógn —
þrungnum hugsunum
III
leggizt til hvíldar
að loknu verki
imyndið ykkur
að þið hafið hlaðið upp
múr
sem standi um eilífð
IV
á morgun
hefur einhver stolið
steinunum
til að hlaða upp
sinn eigin
kínverska múr
F R J Á L S V E U Z I. U N
33