Frjáls verslun - 01.12.1959, Síða 52
Kristniboðinn: „Hvers vegna lítið þér svona
gaumgæfilega á mig?“
Mannætan: „Ég er frá matvælaeftirlitinu.“
★
„Ég geri ráð fyrir að þetta sé sýnishorn af þess-
um hræðilega vanskapnaði, sem kallaður er nútíma-
list.“
„Nei, þetta er bara spcgill
★
Iloskin kona kom inn í fiskasafn og spurði safn-
vörðinn:
„Er hæg! að fá lifandi hákarl hérna?“
„Lifandi hákarl! Ilvað í ósköpunum ætlið þér að
gera við lifandi hákarl?“
„Köttur nágranna míns er búinn að éta gullfisk-
inn minn og mig langar til að kenna honuin betri
siði.“
★
Maður nokkur var á gangi í Louvre-safninu í
París og kallaði á vin sinn:
Heyrðu, hérna er Mona Lisa!“
Vinurinn: „Æ, við skulum ekkert skoða hana,
hún minnir mig svo mikið á konuna mína, þegar
hún heldur að ég sé að skrökva að sér.“
★
.. ... og þai að auki hafa þessir nautabanar heilan her af
aðsloðarmönnun,."
„Hvers vegna hengdu þeir upp myndina?“
„Ef til vill hafa þeir ekki getað náð til lista-
mannsins.“
★
★
Faðirinn: „Þetta er sólarlag, sem dóttir mín hefur
málað. Hún lærði málaralist erlendis eins og þú
veizt.“
Vinurinn: „Já, það hlaut að vera! Ég hefi aldrei
séð svona sólarlag í þessu landi.“
★
„Hvenær ætlar þú að taka sumarfríið þitt ?“
„Ég veit það ekki, ég verð að bíða þangað til
nágrannarnir hafa notað ferðatöskuna mína.“
★
„Stækkið þér myndir upp í fulla st.ærð?“
„Það er okkar sérgrein.“
„Ágætt, ég er hérna með mynd af Öræfajökli.“
★
Gestur: „Þetta gólfteppi er hreinasta listaverk.
Má ég spyrja hve mikið það kostaði?“
Húsmóðirin: „Fjörutíu þúsund. Tíu þúsund fyrir
sjálft teppið og hitt fór fyrir húsgögn í stíl við
það.“
52
KRJÁLS v e r z l u n