Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 8

Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 8
FRJÁLS VERZLUN © EYKUR Hinum nýju stálskipasmíða- stöðvum okkar þarf öllum að fá verkefni og takmarka eða banna erlenda viðgerðaþjónustu viðfiski- skipaflotann. Sérstakar ráðstafan- ir þarf að gera til þess, að bygg- ingaiðnaðurinn lendi nú ekki í slíkri lægð vegna gengisfellingar- innar, sem jafnan hefur orðið raun á að afstöðnum slíkum kollsteyp- um. Opinberar framkvæmdir eiga og þurfa að vera í hámarki meðan nokkra hönd skortir verkefni og það jafnvel án tillits til þess, hvort tímabundinn reikningshalli kann að verða á fjárlögum. F.V.: Teljið þér, að hinar miklu launahœkkanir undanfarinna ára haii dregið úr möguleikum ein- stakra atvinnugreina, t. d. sjávar- útvegsins, til aS mœta hinum mikla vanda, sem skapazt hefur vegna ytri ástœðna? B.J.: Á undanförnum veltiárum hafa samningsbundin raunveruleg laun miðuð við vinnutímaeiningar sáralítið hækkað og lengst af allt tímabilið frá 1959 verið lægri en þá. Ráðstöfunartekjur hafa hins vegar farið hækkandi vegna lengds vinnutíma og að nokkru vegna yfirborgana í einstökum at- vinnugreinum, en hvort tveggja er nú að mestu úr sögunni. Orsak- anna til vandamála atvinnuveg- anna nú er því ekki að leita í því, að verkafólk hafi borið of mikið frá borði. Hitt er augljóst, að verð- bólguþróunin, og þar með hækkun launa að krónutölu, hefur reynzt útflutningsatvinnuvegunum þung í skauti, lamað þá og spillt sam- keppnisaðstöðu þeirra á erlendum mörkuðum. F.V.: TeljiS þér hugsanlegt, að launþegasamtökin muni endur- skoða stefnu sína í kjaramálum a3 einhveriu leyti með hliðsjón af reynslu undanfarinna ára. Vœri fróðlegt að heyra álit yðar á því, hvort slík endurskoðun vœri nauðsynleg og í hverju hún œtti að vera fólgin? B. J.: Ég tel, að ráðandi stefna verkalýðshreyfingarinnar undan- farin ár í kjaramálum hafi verið sú að leitast við að halda uppi kaupmætti launa og auka hann, án þess að kjarabætur leiddu til lítt viðráðanlegrar verðbólgu. Hún

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.