Frjáls verslun - 01.02.1968, Blaðsíða 56
56
FRJALS VER2LUN
— Ég er mikið á móti því,
finnst það óeðlilegt og óheppilegt
fyrirkomulag. Það eru heildsalar
hér í Reykjavík, sem eru umboðs-
mennirnir, og þetta minnkar
möguleikana á því, að þeir geti
veitt góða þjónustu.
— Og hvernig hefur svo rekst-
urinn gengið?
— Hann hefur gengið bara
nokkuð sæmilega, og ég er farinn
að öðlast aftur nokkra hugarró.
En það þarf mikið átak og mikla
peninga til að byrja. Ég held satt
að segja, að ef menn hafa ekki
reynt þetta sjálfir, geti þeir ekki
gert sér neina grein fyrir, hve
miklir byrjunarörðugleikarnir eru.
Þær eru margar vökunæturnar,
meðan verið er að klífa erfiðasta
hjallann, en erfiðið er líka vel
þess virði. Það er þó fjarri því,
að lífið sé orðið eintómur dans a
rósum núna. Það er margt eftir
ógert, og ég er sífellt að reyna að
finna eitthvað til að bæta þjón-
ustuna. Ég sendi t. d. fólki vörurn-
ar heim, ef það óskar þess, og ef
svo stendur á, sendi ég þær í
gjafaumbúðum. En það er reglu-
lega ánægjulegt að fást við þetta
allt saman, og ég er ánægður með
lífið og tilveruna.
HAFIÐ ÞÉR
KYNNT YÐUR
HUGMYNDA-
SAMKEPPNINA?
Nánari tengsl milli Verzlunarráðsmanna og Verzlun-
arskólakennara
Stjórn Verzlunarráðs íslands og Skólanefnd V.I. buðu fyr-
ir skömmu skólastjóra og kennurum V.I. til kynningarfundar
í húsakynnum Verzlunarráðsins.
Bauð Kristján G. Gíslason form. VerzlunaiTáðs Islands
gesti velkomna og kvað þennan fyrsta kynningarfund æski-
legt upphaf nánari og betri kynna milli kennara og verzlun-
arráðsmanna.
Ræddu síðan forsvarsmenn verzlunarinnar við kennara
um starfsemi skólans, kennslutilhögun og námsefni.
Eftir það skoðuðu kennarar húsakynni Verzlunarráðsins
og kynntu sér þá starfsemi, sem þar fer fram.
Mæltist kynning þessi vel fyrir, og höfðu menn orð á, að
þetta yrði upphaf nánari samskipta þessara aðila.
á
FRvJALS
VIERZLUíM