Frjáls verslun - 01.02.1968, Blaðsíða 30
30
FRJÁLS VERZLUN
I þessu verkstæði í Bamdrupdam á S.-Jótlandi eru framleidd sláturhús,
gashylki o. fl. — í hlutfallalíkönum.
þess, sem á að nota þau. Með sam-
ræmdu starfi og góðri spjaldskrá
hér á verkstæðinu höfum við get-
að minnkað verðmuninn á „stand-
ard“-líkönum og sérsmíðuðum lík-
önum. Nú vilja mörg fyrirtæki fá
líkan, í hvert sinn sem þau kaupa
nýja vél, og mörg fyrirtæki álíta
sparnað fólginn í því að afhenda
líkan með tilboði í nýja vél. Þá
framleiðum við „standard“-líkön
til kennslu fyrir tækniskóla. Eftir-
spurn skólanna eftir slíkum líkön-
um eykst nú dag frá degi, og nú
er svo komið, að við önnum henni
ekki. Einnig erum við nú í þann
mund að ljúka við líkan af vélar-
rúmi skips. Fyrir slíku ríkir áhugi
bæði hjá skipasmíðastöðvunum og
vélst j óraskólunum.
Þrenns konar starf-
semi.
Segja má, að líkanasmíði okkar
þjóni þrenns konar þörfum. í
fyrsta lagi hagrænni uppsetningu
véla. í öðru lagi heildarskipulagi
bygginga. Og í þriðja lagi sölu og
sýningum. Mörgum fyrirtækjum
reynist það of kostnaðarsamt að
flytja í heilu lagi vélasamstæður
til sýninga um allan heim. Þess
vegna hafa þau tekið til bragðs að
sýna eina vél í fullri stærð og allt
hitt með nákvæmum líkönum.
Nú er svo komið, að margir
sölumenn flytja með sér í möpp-
unni líkön frá okkur í stað teikn-
inga einna áður. Árangurinn er
sá, að salan eykst, og sölumenn-
irnir komast í nánara samband við
viðskiptavinina.
— Á hvern hátt verða menn
góðir líkanasmiðir?
— Þeir verða að hafa það í
fingrunum. Fyrst og fremst verða
þeir að hafa áhuga fyrir starfinu.
Báða þessa kosti hafa samstarfs-
menn mínir, sjö talsins, og sonur
minn, verkfræðingur að mennt,
sem er einmitt nýkominn frá
Frakklandi í því skyni að helga
sig starfinu hér.
Ég hygg, að starf okkar sé ein-
stætt á sérstakan hátt. Á hverjum
degi verð ég að fara út og segja
samstarfsmönnum mínum, að nú
verði þeir fjandakornið að fá sér
kaffihlé. Að öðrum kosti sleppa
þeir kaffinu. Oft verð ég að skipa
þeim að fara heim og halda upp
á gamlárskvöldið. Það, að nánast
ógjörningur er að reka þá frá
starfi, þýðir ekki, að þeir séu
þrællundaðir. Þeir hafa einfald-
lega jafnmikinn áhuga á þessu
starfi og ég og sonur minn.
Meðal annarra orða: hann er nú
í þann veginn að bæta einni grein
við starfssvið okkar, mjög tækni-
legs eðlis. Við höfum nú aðstöðu
og vélakost til að vanda enn betur
til líkananna, og nú getum við not-
fært okkur þá þekkingu, sem við
höfum öðlazt í þessu starfi á hin-
um ýmsu framleiðslugreinum.
RONSON
Það hæfir öllum
það bezta.
Það vinsælasta
er
RONSON
RONSON gull
RONS ON stál
RONS ON marmari
RONSON kristall
RONSON keramik
RONSON teak
RONS ON palisander
RONS ON á borðið
RONS ON í vasann
við höfum allt
sem
RONSON
framleiðir
T>‘
OBAKSVERZL UN
OAAASAR-
LAUGAVE6! 62 - 6ÍM/ /3 776 -
[tMÍÍMMfi