Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 16

Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 16
16 frjáls verzlun Eftir áramótin blasti það verk- efni við að greiða þurfti úr vanda hraðfrystiiðnaðarins. Engum fær dulizt, að afleiðingar verðfalls og aflaleysis hefur komið hvað harð- ast niður á honum. Hins vegar létti gengisfellingin undir með honum, og var það trú margra, að hún hefði átt að nægja til að rétta stöðu hans og reyndar verið við það miðuð. Við umræður á Al- þingi um tollamálin varð stjórnar- andstöðunni tíðrætt um þetta og taldi, að hagfræðingar og hag- stjórnartæki ríkisstjórnarinnar hefðu illa brugðizt hlutverki sínu og að þetta ætti að færa heim sannindi um það, að brjóstvitið væri bezta hagstjórnartækið á hverjum tíma. Samanburðurinn er fyrir hendi, og hann verður vissulega ekki hagstæður fyrir framsóknarmenn. Þeirra aðferðir voru höft á höft ofan, auk raða af pólitískum leyfa- úthlutunarnefndum. Slíkum hag- stjórnartækjum hafa flest menn- ingarlönd löngu lagt fyrir róða, og fáir munu syrgja þau hérlend- is. Hitt er svo aftur annað mál, að allur almenningur taldi, að geng- islækkunin væri við það miðuð, að ekki þyrfti til frekari aðstoðar við útflutningsatvinnuvegina að koma, og kom því mörgum á óvart, er frystihúsaiðnaðurinn setti fram kröfur sínar. Benda má á það í þessu sambandi, að þegar efnahagsmálin voru til umræðu á Alþingi í haust, var oftsinnis bent á það af hálfu stjórnarflokkanna, að heildaryfirlit yfir afkomu at- vinnuveganna væri ekki að fá fyrr en eftir áramótin. Það var aðalverkefni Alþingis í janúar að greiða fram úr þessum málum. Háværar umræður fóru þó ekki fram í þingsölum, enda hefðu þær vafalítið verið gagns- litlar. Miklar umræður fóru fram í stjórnarflokkunum, og voru þar vandlega könnuð öll gögn, er fyr- ir hendi voru frá frystihúsunum. Mismunandi afkoma. Vandinn lá ekki hvað minnst í því, hversu mjög mismunandi af- koma frystihúsanna var. Nokkur hluti þeirra hefur haft allgóða af- komu undanfarin ár, en önnur búið við slæman hag. Þurfti því að samræma mörg sjónarmið, áð- ur en endanlegar tillögur voru bornar fram. Aðstoð ríkisvaldsins mun ekki leysa öll vandamál frystiiðnaðarins, enda ekki við því að búast, ef tekið er tillit til hinn- ar mismunandi aðstöðu þeirra. Vandamál sumra húsanna eru að nokkru heimatilbúin, ekki sízt á Austfjörðum, þar sem allt hefur snúizt um síld á undanförnum ár- um, og aðrar atvinnugreinar hafa orðið að líða fyrir það, og þá ekki sízt frystihúsin. Aðstoð ríkisins til frystihúsanna mun teljast í lágmarki, og telst það eðlilegt, þegar hafðar eru í huga þær efnahagslegu þrenging- ar, sem við búum nú við. Það er svo margra skoðun, að rekendur frystihúsanna hafi sett niður í áliti með aðgerðum sínum. Þær urðu ekki til að knýja fram þá aðstoð, er þeir fengu, heldurkomu þær einungis til, að fyrir lágu gögn, er sýndu fram á þörf þeirra, og að þingmenn stjórnarflokkanna og ríkisstjórnin hafði á þeim skiln- ing. Tollalœkkun. Af þessum ástæðum varð því minna úr tollalækkunum enfyrir- hugað var. Það fé, er til þeirra var ætlað, rann raunverulega allt til frystiiðnaðarins. Eigi að síður valdi ríkisstjórnin þann kost að lækka tolla um 160 millj. kr. og þá helzt á nauðsynjavörum eins og matvöru og fatnaði. Slíkt hefur vitanlega mikla þýðingu í því efni að draga úr áhrifum gengisbreyt- ingarinnar, auk þess sem tolla- lækkanir verða óhjákvæmilegar í framtíðinni, ef íslendingar eiga ekki að einangrast frá viðskipta- heildum eins og EBE og EFTA. Þeim 160 millj. kr., sem varið er til tollalækkunar, verður að ná með niðurskurði á fjárlögum. Virð- ist það ekki auðvelt verk, og raun- ar hlýtur það að koma fram sem minnkuð þjónusta ríkisins við borgarana, í hvaða mynd það svo verður endanlega. Flestir munu sammála um, að verklegar fram- kvæmdir megi ekki skera niður meira en orðið er. Margir eru þeirrar skoðunar, að a. m. k. hluta af þessari fjár- hæð ætti að taka með breytingum á kerfi almannatrygginga. T. d. með því að fella niður bótagreiðsl- ur með fyrsta barni eða breyta um form þeirra. Bætur þessar vega í flestum tilfellum mjög lítið fyrir bótaþega, ekki sízt þegar til- lit er tekið til þess, að þær eru ekki skattfrjálsar. Hefur málþetta m. a. verið rætt nokkuð í dagblöð- unum að undanförnu, og virðist svo, að Alþýðuflokkurinn sé mjög ófús að fara inn á þessa leið og beita í málflutningi sínum á tíð- um kynlegum rökum. Það er ekki Alþýðuflokknum til framdráttar að bíta sig fastan í lærið á ein- hverjum kennisetningum um fá- tækraframfærslu eða annað slíkt. Flokkurinn hefur óneitanlega bar- izt fyrir umbótum í tryggingakerf- inu og unnið þar sína sigra og náð áföngum. En almannatryggingar þurfa að vera raunhæfar, til þess að þær komi að tilætluðum not- um. Margir varaþingmenn. Undanfarnar vikur hafa margir varaþingmenn tekið sæti á Al- þingi. Helzta orsök þess var fund- ur Norðurlandaráðs í Osló, en margir fastaþingmenn voru full- trúar íslands á þeim fundi. AJls munu hafa tekið sæti síðan á ára- mótum um 20 varaþingmenn, og þar af sátu 14 samtímis á Alþingi. Það er vissulega æskilegt, að sem flestir varaþingmenn fái tækifæri til að koma inn á þing. Það ætti að tryggja, að fleiri sjónarmið kæmu fram, og auk þess gæti það sett frískandi blæ á störf þingsins. Því miður hafa margir varaþing- menn verið helzt til hógværir með- an á dvöl þeirra á Alþingi stóð, og gerast þeir sárasjaldan flutn- ingsmenn frumvarpa né tillagna upp á eigin spýtur. ULÓMALRVAL GRÓÐRARSTÖÐIN við miklatorg Símar: 22822 — 19775

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.