Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 24

Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 24
24 FRJÁLS VERZLUN S AMGÖNGUR — FLUTNINGAR BIFREIÐAINNFLUTNINGUR Á árinu 1967 voru fluttar inn bifreiðir fyrir 355 milljónir króna. Bíllinn er veigamikill þáttur i íslenzku þjóðlífi, enda getum við með góðum rökum litið á okkur sem mikla bílaþjóð hvað snertir bílaeign. Mun láta nærri, að í landinu séu nú um 42 þúsund bíl- ar af rúmlega 200 tegundum (verksmiðjunöfn), eða sem svar- ar einni bifreið á hverja 5 íbúa landsins — eða rétt tæplega það. Hefur mikil gróska verið í bíla- innflutningi undanfarin ár, og hefur hann farið stigvaxandi frá ári til árs, sem sést bezt á því, að á s.l. 10 árum hefur bílaeign okk- ar tvöfaldazt — var árið 1957 17802 bifreiðar. Bílaskýrslur Sé gluggað í bílaskýrslu vega- málaskrifstofunnar fyrir árið 1966, má sjá þróunina í fjölgun bíla á landinu frá 1960 til 1966. (Eru hér aðeins teknar tölur um fjölg- un fólksbifreiða, sem eru lang- stærsti liður bílainnflutnings). Sést þar, að 1960 til 1961 fjölgaði bílum um 1410 eða 8.9%, árið 1961 til 1962 um 2105 eða 12.3% og árið 1962 til 1963 um 3538 eða 18.4%. Árið 1963 til 1964 fjölgaði bílunum um 2897 eða 12.7%, árið 1964—1965 fjölgaði þeim um 3134 eða 12.2% og 1965—1966 fjölgaði bílunum um 4202 eða 14.6%. Endanlegar tölur um bifreiða- fjölgunina fyrir 1967 liggja enn ekki fyrir. Frjáls verzlun fékk að líta á þær skýrslur, sem Hagstofa íslands hefur um innflutning bíla á árinu, og þar má sjá, að fluttir voru inn 4465 bílar, en þar eru innifaldir notaðir bílar og ýmsir bílar til sérstakra nota, svo sem slökkviliðsbílar og sjúkrabílar, auk hinna nýju. Sifverðmæti þess- ara bíla allra er 355 millj. kr. Af heildartölunni voru 3148 fólksbílar, og stærstu viðskipta- þjóðirnar á þessu sviði eru: Vest- ur-Þýzkaland, en þaðan voru flutt- ir inn 682 fólksbílar, 388 bílar voru fluttir inn frá Bretlandi, 366 bílar frá Tékkóslóvakíu, 363 bíJar frá Bandaríkjunum, 318 bílar frá Svíþjóð, 302 bílar frá Sovétríkjun- um, 225 bílar frá ítalíu, 214 bílar frá Japan og frá Frakklandi 159 bílar. Jeppar vfjisælir Jeppar eru ákaflega vinsæl far- artæki á íslandi, jafnt til bæja og sveita. Á s.l. ári voru fluttir inn 658 jeppar — 239 voru frá Banda- ríkjunum, 299 frá Bretlandi, 93 frá Rússlandi og 20 frá Japan. Þá voru 103 sendiferðabílar fluttir inn — 17 frá Bandaríkjunum, 30 frá V.-Þýzkalandi, 14 frá Frakk- landi og 42 frá Bretlandi. Fluttar voru inn 27 almenningsbifreiðir og þar af 20 frá V.-Þýzkalandi, 5 frá Ítalíu og 2 frá Hollandi. Og 293 vörubílar voru fluttir inn, flestir frá V.-Þýzkalandi eða 109 talsins, 83 frá Bretlandi og 68 frá Svíþjóð. FOfíl) WttTm 1968 Fjölmargar bílaprófanir um allan heim eru sam- móla um góða eiginleika Ford Cortina. — Tryggið yður Ford Cortina 1968. Verður til af- næstu mónaðamót. groiðslu um SVEINN EGILSS0N H.F. LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 EBM—i^Mi—M UMBOÐIÐ

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.