Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 50

Frjáls verslun - 01.02.1968, Síða 50
5D FRJÁLS VERZLUN tveimur, sem áður voru nefndir. Má öllum ljóst vera, að þessar aðstæður veikja mjög aðstöðu sveitabarna til mennta. Þróunin er nú sú í sveitun- um, að hreppar sameinast um skóla- húsnæði. Hvað viðvíkur öðrum skól- um má nefna iðnskóla á Isafirði (frá 1905) og Patreksfirði, tónlistarskóla á Isafirði (frá 1948), annan i Bol- ungavík og þann þriðja á Patreks- firði. Þá er einn húsmæðraskóli á Vestfjörðum, sá stendur á Isafirði og hóf göngu sína árið 1912. Þar stunda 36 nemendur nám, og koma þeir viðs vegar að. Æðri menntastofnunum er ekki fyrir að fara á Vestfjörðum. Þeir, sem vilja afla sér frekari menntunar. þurfa að leita á önnur mið. Raunar hefur um nokkurt skeið verið starf- rækt við gagnfræðaskólann á Isa- firði framhaldsdeild, sem samsvarar 1. bekk menntaskólanna. Aliir mennta- skólarnir viðurkenna nú próf frá framhaldsdeildinni sem fullnægjandi inntökupróf upp í 2. bekk. Eins og lesendur muna eflaust, urðu nokkrar umræður fyrir örfáum árum um hugsanlegan menntaskóla á Isafirði. Virðist svo sem margir telji, að sú hugmynd hafi kafnað í fæðing- unni, en því er engan veginn svo far- ið. Þrjú undanfarin ár hefur verið veitt fé á fjárlögum til væntanlegrar menntaskólabyggingar á Isafirði, og nemur fé þetta nú 4,7 millj. króna. Undirbúningur er þó enginn hafinn. Ákveðnar óskir eru nú uppi um það að ráða fljótlega mann til rektors- starfa, og fengi hann síðan að stjórna uppbyggingu skólans. Hafa menn hér einkum í huga frækilegt starf Guð- mundar Arnlaugssonar við Mennta- skólann í Hamrahlíð. Nú í haust var tekin upp nokkur nýbreytni við framhaldsdeild gagn- fræðaskólans á Isafirði. Henni var skipt í 3 deildir, bóknámsdeild (lýkur með landsprófi), verzlunardeild (svip- að nám og i 1. og 2. bekk Verzlunar- skólans) og valdeild (24 fastir tímar, síðan 12 valtímar). Eru miklar vonir bundnar við þessa skipulagsbreyt- ingu. Það vakti nokkra athygli í valdeildinni, að piltar, sem áður hef- ur verið kennd smíði í gagnfræða- skólanum, litu nú lítt við þeirri grein, en völdu sjóvinnu og siglingafræði í þeim mun ríkari mæli. FÉLAGSMÁL. Það, sem einkennir félagslíf Vest- firðinga, er, að um algjöra áhuga- mennsku er þar að ræða. Enn gætir hér nokkurs munar á aðstöðunni í byggðarkjörnunum og í sveitunum. 1 þorpunum og viða í sveitum standa félagsheimili, og eru þau yfirleitt miðpunktur alls samkomuhalds. 1- þróttafélög, skátafélög og æskulýðs- félög eru víða virk, einkum á Isafirði. Kvenfélög vinna þarna sem annars staðar mikið og göfugt starf. Sem dæmi um áhugamennsku þá, er gæt- ir svo mjög við öll félagsmál Vest- firðinga, má nefna, að Isfirðingar reistu fullkomna skíðalyftu án þess að vinnukostnaður yrði nokkur. Ak- ureyringar keyptu hins vegar alla vinnu við uppsetningu skíðalyftunnar þar nyrðra. Sönglíf hefur lengi staðið með blóma á Vestfjörðum. Á Isafirði hafa Sunnukórinn og karlakórinn starfað af miklum þrótti um árabil. Á Patreksfirði starfar karlakór, og á vegum kirknanna er þróttmikið söng- líf. Kirkjukórasamband Vestfjarða var stofnað fyrir nokkrum árum og hefur unnið brautryðjandastarf í söngmálum. Um árabil hefur starfað lúðrasveit á Isafirði, auk þess starf- rækja ísfirzku skólarnir lúðrasveit i samvinnu við Tónlistarfélag Isafjarð- ar. Leiklist er vinsæl listgrein fyrir vestan, og starfa leikfélög áhuga- manna víða um firðina. Þessir leik- flokkar ferðast gjarnan um Vestfirði með viðfangsefni sín. Þess má geta til gamans, að Leikfélag Isafjarðar og Karlakór Isafjarðar sýndu nú ný- lega óperettuna Meyjaskemmuna, Bolvikingar sýndu Systur Maríu og Gullna hliðið, Bílddælingar Þrjá skálka, Súgfirðingar Karlinn í kassan- um og Litli leikklúbburinn á Isafirði gamanleikinn Leyndarmál öskjunn- ar. Þessi mikli áhugi á leiklist hefur m. a. valdið því, að Vestfirðingar eru nú ónæmir fyrir bralli ýmissa þeirra, er hyggjast öðlast skjótfenginn gróða með leiksýningum úti á landsbyggð- inni, telja allt ganga í strjálbýling- ana, og ná nú fáir utanaðkomandi kraftar hylli nema flokkar Þjóðleik- hússins og Leikfélags Reykjavíkur. Bókasöfn eru víða bæði í sveitum og í þorpum, enda mæla lög svo fyrir, að lestrarfélag skuli starfrækt í hverri sveit. Þróunin er hins vegar sú sama um gjörvallt land, stöðugt dregur úr útlánum bókasafna, en bókakaup fólks aukast að sama skapi. Það er mikið hlustað á útvarp á Vest- fjörðum, einkum til sveita, og tjáði okkur bóndi við Isafjarðardjúp, að nyti útvarpsins ekki við, héldistbyggð ekki í sveitinni stundinni lengur. Reyndist það hér sem á öðrum svið- um, að fámenni sveitanna veikir mjög aðstöðu íbúanna til þeirra athafna, sem hópátak þarf til. Ekki verður skilið við félagsmál þeirra Vestfirðinga án þess að geta hinnar miklu fjölskyldueiningar, sem þar verður vart. Við þekkjum það Reykvíkingar, að hlutur heimilislífs- ins hér syðra verður minni vegna ýmissa utanaðkomandi þátta. Hér standa Vestfirðingar okkur framar. Þar er færra, sem glepur, og enn sem komið er hefur þeim tekizt að varðveita náin fjölskyldutengsl og samstöðu á flestum sviðum. HEILBRIGÐISMÁL. Vestfirðir skiptast í 9 læknishéruð. Lækna vantar í þrjú þeirra, og hafa engir fengizt í þau embætti. Þessi héruð eru Reykhólahérað, því gegnir héraðslæknirinn í Búðardal, Flateyr- arhérað, nú gegnt af héraðslækninum á Þingeyri og Súðavíkurhérað, en þvi gegnir héraðslæknirinn á Isafirði. Tveir héraðslæknar sitja á Patreks- firði, og gegnir annar héraðslækms-

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.