Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1968, Qupperneq 61

Frjáls verslun - 01.02.1968, Qupperneq 61
FRJÁLS VERZLUN 61 SKÓLAR — MENNTUN MÍMIR: málaskóli með stærðfræðideild Islendingar eru sagðir námíús- ir með afbrigðum, þótt ekki gæti þess kannski alltaf, meðan þeir eru á skyldunámsstiginu. Alls konar scrskólar þrífast því ágæt- lega í Reykjavík og víðar um land, ekki sízt málaskólar. Stærsti og umfangsmesti málaskólinn er Mímir, en hann átti einmitt 20 ára afmæli ekki alls fyrir Iöngu. Skóla- stjóri og cigandi er Einar Pálsson, og Frjáls Verzlun hitti hann að máli stundarkorn í liinum glæsi- legu húsakynnum skólans að Brautarholti 4. „Það var Halldór Dungal, sem stofnaði Mími árið 1947. Ég kom svo að honum árið 1949 og keypti hann allan 1955. Þá vorum við í leiguhúsnæði en skömmu eftir að ég varð eigandi flutti ég hann nið- ur i Hafnarstræti, þar sem hann hefur verið æ síðan. Fyrir tveim árum eða þar um bil höfðum við svo lokið við að byggja þetta hús nokkrir saman og ég fékk fyrstu hæðina til umráða.“ „Hvaða mál eru kennd hjá ykk- ur?“ „Þau eru nokkuð mörg, en nern- endafjöldinn í hverjum flokki er mismunandi. Við kennum t. d. ensku, dönsku, þýzku, frönsku, spönsku, ítölsku, sænsku og svo islenzku. Við getum líka kennt rússnesku, hollenzku og finnsku, en það er lítil aðsókn að þeim málaflokkum.“ „Ertu í vandræðum með kenn- ara?“ „Nei, það gengur allt samun vel og úrvalsfólk, sem ég hef á að skipa, enda ekki aðrir tekmr til kennslu. Það gilda hér strangar reglur, til dæmis er harðbann- að að láta kennslustund falla nið- ur. Ef einhver verður veikur, sem sjaldan kemur fyrir, verður að ut- vega annan í snarheitum. Ég hef átján manna kennaralið, þar af átta útlendinga, en alls vinna tuttugu og fjórir við skólann. Við verðum að hafa duglegar velrit- unarstúlkur til að vélrita ve>'k- efni fyrir okkur, því að við búum þau til sjálfir.“ „Á hvaða aldri er íólkið sem sækir skólann?“ „Það er á öllum aldri. Skólan- um er skipt í þrjár megindeildir: fullorðinsdeild, sem er aðalskól- inn, barnadeild, þar sem kennt er með „beinu aðferðinni“ (umræður allar fara fram á því máli sem ver- ið er að læra), og svo hjálpardeild- ir skóla. í síðastnefndu deildinni kennum við unglingum þau fög sem þeir þurfa að læra undir prof, svo sem tungumál og stærðfræði.'1 „Þú ert ekki alveg sáttur við all- ar kennslubækurnar sem hér eiu notaðar?“ „Nei. Kennslubækur þarfnast stöðugrar endurnýjunar. Það er fjarstæða að halda að einhvereinn maður geti sett sig niður við skrif- borðið sitt og samið á einu ári eða svo kennslubók, sem notuð verði upp frá því. Mér finnst fráleitt að nota við kennslu í dag sömu bæk- ur og notaðar voru fyrir aldai- fjórðungi og það algerlega ó- breyttar. Það er mikið verk að skrifa góða kennslubók og alltaf þarf miklar endurbætur áður en hún getur talizt góð. Þetta kostar að vísu mikið fé, en það vinnst undantekningalaust upp með betri námsárangriogskemmri námstima. Það eru alltaf nokkrir útlendingar við skólann sem eru að læra íslenzku, og því hef ég verið að berjast við að semja kennslubók í íslenzku. Það eru nú liðin fimm ár síðan ég byrjaði og þetta er búið að kosta óhemju fe. En ég er ennþá að skrifa viðbæt- ur við fyrstu kaflana svo að það er langt í land ennþá. „Er þetta málfræðibók?" „Nei, nei, þetta eru textar og æfingar. Þegar búið er að læra þá almennilega er málfræðin ekki svo erfið. Við vinnum líka að vei k- efnum í dönsku, ensku og þýzku, það eru þær bækur, sem mest liggur á.“ Einar Pálsson skólastjóri Mímis. „Hvað eru nemendurnir alls margir?“ „Þeir eru um 900, og langflestir leggja stund á ensku. Við erum með einar níutíu deildir í ensku, það er fólk sem er mismunandi langt komið í náminu. Fullorðna fólkið er hér innfrá, en yngri flokkarnir niðri í Hafnarstræti. „Ertu að hugsa um nokkra frekari aukningu á starfseminni?“ „Gaman væri að því. Eitt af því sem ég hef lengi verið að hugsa um er að stofna sérstaka verzlunardeild við skólann. Að henni myndu fá aðgang ungling- ar á aldrinum 16—20 ára. Þessi deild yrði með Pitman-sniði, og þar yrði fyrst og fremst kennd verzlunarenska og verzlunarís- lenzka. Nemendur myndu læraallt sem lýtur að því að fara í tollinn, bankana, svara í síma, svara bréí- um og þess háttar. Þetta yrði alls ekki með sama sniði og gagnfræða- skólar eða verzlunarskólinn. Þar yrði að sjálfsögðu einnig kennd vélritun, og í stuttu máli allt sem lyti að hinni praktísku hlið veizl- unarstarfa. Piltur eða stúlka sem færi héðan út með prófskírteini myndi sem sagt vera fær í hag- nýtum skrifstofustörfum. Ég vildi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.