Frjáls verslun - 01.06.1978, Blaðsíða 95
Fólk þarf ekki ad leita til
Revkiavíkur eflir tízkufatnafli
— Spjallað við Finn-
boga Guðmundsson,
verzlunarstjóra í Epl-
inu á Akranesi
„Þessi verzlun er alfarið í eigu
Karnabæjar í Reykjavík, sagði
Finnbogi Guðmundsson verzlun-
arstjóri í tízkuverzluninni Eplinu á
Akranesi, þegar blaðamaður
Frjálsrar verzlunar leit þar inn.
„Verzlunin er um þaö bil 6 ára
gömul og hefur smám saman auk-
ið vöruúrval og þjónustu viö við-
skiptavini. Það hefur svo leitt af
sér, að miklu minna er nú um það
en áður að fólk fari til Reykjavíkur
til að kaupa föt. Karnabær hefur
sýnt landsbyggðinni áhuga og lagt
áherzlu á þjónustu við fólk utan
Reykjavíkursvæðisins. Þannig er
til dæmis ekkert lagt á vörur sem
fluttar eru hingað upp á Skaga.
Þrátt fyrir að heimilt só að leggja á
vörur fyrir flutningskostnaði.
Tízkuvörur hjá okkur eru því á
sama verði og í Reykjavík".
Er úrvalið í þessari verzlun eitt-
hvaö sambærilegt við það sem er í
verzlunum Karnabæjar í Reykja-
vík.
„Við leggjum áherzlu á að vera
með það sem efst er á baugi hverju
sinni. Þess má svo geta að vöru-
úrvalið hér er eins konar þversnið
af því sem fæst í öllum Karnabæj-
arbúðunum. Þannig erum við með
ýmsar vörur hér, sem fást kannski
ekki í öllum búðum Karnabæjar í
Reykjavík. Nú, það sem við höfum
ekki, en fólk hefur kannski hug á
að eignast, getum við pantað því
að kostnaðarlausu. Það sem við
pöntum frá Reykjavík að morgni er
yfirleitt komiö hingað um miðjan
dag“.
Býður Eplið upp á svipaða þjón-
ustu og tízkuverzlanir í Reykjavík
hvað varðar fatabreytingar og
annað slíkt?
„Já, vissulega. Við höfum á
okkar snærum konu sem sér um
allt slíkt og af þeim sökum ætti ekki
aö vera ástæða til aö leita til
Reykjavíkur".
Er rekstrargrundvöllur fyrir sér-
verzlun sem þessa í ekki stærra
bæjarfélagi?
„Jú, það held ég hljóti að vera.
Ekki veit ég hvort einhver gróði er
af Eplinu, en verzlunin stendur
undir sér. Nú, það er ein önnur
tízkuverzlun hér í bænum, svo
grundvöllurinn virðist fyrir hendi".
Hvernig er þessi verzlun stödd
með húsnæöi?
„Við erum hér í eigin húsnæöi
og fluttum hér inn í nóvember
1976. Ágætlega er búið að verzl-
uninni sjálfri, en eins og þið sjáið
er lagerpláss í það minnsta. Nú,
Karnabær á eitthvað stærri part í
þessu húsi en við höfum til um-
ráða, svo hugsanlega getum við
stækkað við okkur þegar fram líða
stundir".
Er það eitthvað meira en tízku-
fatnaður sem þið eruð með á boð-
stólum?
„Já, eins og ég sagði erum við
með allar þær vörur sem Karna-
bær hefur í sínum búðum í
Reykjavík og þar á meðal hljóm-
plötur og hljómflutningstæki, sem
við höfum selt gríðarlega mikiö
af".
Innréttlngln í Epllnu er lltrfk og skrautleg.
wSíV|[ 1 n lilill ' rf flv JSm t 71 -Mv:. r mm r j 1 jflJm r|vW ^ VII
1 < ii \i» i \ \ ''JJ /Jf & .4
95