Frjáls verslun - 01.09.1978, Qupperneq 61
Skotlandi (Hillman, Sunbeam og
Commer) en á þegar stóran hlut í
framleiðslufyrirtæki Mitsubishi í
Japan sem framleiðir Galant og
Lancer.
Fróðir á þessu sviði telja að
endirinn hljóti að verða sá, að allir
frönsku bílaframleiðendurnir muni
sameinast í einu fyrirtæki og að-
eins sé tímaspursmál hvenær
Saab-Scania AB í Svíþjóö gangi til
einnar sængur með hinum ríkis-
reknu Volvoverksmiöjum.
Ekki er talið loku fyrir það skotið
að meira muni ganga á meðal evr-
ópskra bílaframleiðenda þegar
þeir fara að brynja sig gegn
hættulegasta óvininum, sem nú er
ekki frá Japan heldur bandarískir
smábílar. Ekki er talið ósennilegt
að Mercedes muni sameinast VW,
Fiat hefur þegar keypt bæði
Lancia og Autobianchi og rekur
einnig verksmiðjur á Spáni (Seat).
Fiat hefur einnig samvinnu við
Steyr-Puch í Austurríki og hefur
haslað sér völl austan járntjalds-
ins. Það er talið öruggt að bæði
franskir og vestur-þýzkir bílafram-
leiðendur myndu ekki slá hendinni
á móti einhvers konar samvinnu
við Fiat og er þá ekki mjög langt í
samtök flestra, ef ekki allra bíla-
framleiðenda Evrópu.
Allt bendir til þess að mestu
átökin muni verða á milli japanskra
og bandarískra bílaframleiöenda á
heimsmarkaöinum á komandi ár-
um. Hvor um sig þarf ekki að hafa
miklar áhyggjur af samkeppninni
heima fyrir og báðir munu gera
verulegan usla á kaupsterkum
markaði í Evrópu og sívaxandi
markaði í Asíu og Afríku. Evrópu-
búar hafa löngum vanmetið
tæknikunnáttu bandaríkjamanna
og ekki talið þá framleiða bíla sem
stæðust samkeppni þegar kemur
að hagkvæmni í rekstri og akst-
urseiginleikum. Sem dæmi um hve
hættulegt þetta vanmat getur
reynzt evrópskum bílaframleiö-
endum hafa sérfræðingar bent á
að þótt þjóðverjar séu búnir að
framleiða dísildrifna fólksbíla í
áratugi, hafi fyrsti dísildrifni ame-
ríski fólksbíllinn frá General Mot-
ors reynzt hafa tæknilega yfirburði
fram yfir þá fullkomnustu í Evrópu,
bæði með tilliti til eyðslu, meng-
unar og hávaða. Þá benda þeir
ennfremur á, að þrátt fyrir fjar-
lægðarvernd hafi evrópskir bíla-
framleiðendur sífellt verið að
missa markaöshlutdeild heima
fyrir í hendur japönskum bílafram-
leiðendum.
Með þetta í huga þyrfti engum
að koma á óvart þótt verulegar
breytingar séu í uppsiglingu á sviði
bílaframleiðslunnar i Evrópu.
Nú bjóða öll umboðsverkstæói VOLVO umhverfis landið sérstaka
VETRÁRSKOÐUN
VOLVO tilboó fram til 30.11.
1. Vélarþvottur
2. Hreinsun og
feiti á geymissambönd
3. Mæling á rafgeymi
4. Mæling á rafhleöslu
5. Hreinsun á blöndung
6. Hreinsun á bensíndælu
7 Skipt um kerti
8. Skipt um platínur
9. Stilling á viftureim
10. Skipt um olíu og olíusíu
11. Mæling á frostlegi
12. Vélastilling
13. Ljósastilling
Vferð meó söluskatti:
4cyl. B14, B18,B20,B21 Kr 27256
6cyl. B27 Kr. 29.975
6cyl. B30 Kr. 29.231
Innifalið í verði: Platínur, olíusía, þurrkublöð,
ventlalokspakkning.kerti, vinna, vélarolía.
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200