Frjáls verslun - 01.05.1980, Blaðsíða 48
Sérstakar ívilnanir í Sviss (Basel)
Af skattaívilnunum er um að
ræða:
— Hærri afskriftir.skattalækkun
t.d. fyrir nýstofnuð fyrirtæki í
allt að 6 ár.
— Heimildir eru til þess að fella
niður tekjuskatta eignarhalds-
fyrirtækja (Holding Company))
— Niðurfelling tekju- og eigna-
skatts er heimil af rekstri fyrir-
tækja sem eru með lögheimili í
kantónunni án þess að stunda
þar rekstur.
Um beina fjárstyrki til iðnaðar er
ekki að ræða í þessari kantónu.
Bretland
Skattar: Fyrirtæki greiða 52% í
skatt af nettóhagnaði nema hagn-
aðurinn sé innan viö 44,5 mkr. Þá
greiða þau einungis 42%.
Enginn auðlindaskattur er
greiddur af arði nema vissar tekjur
af hlutafjáreign og tekjur vegna
einkaleyfa bera 33% auðlinda-
skatt.
Einstaklingar greiða skatta
þannig að af árstekjum sem eru
allt ,að 21,3 mkr greiðast 25—
53,5% (53,5% af 21,3 mkr). Auk
þess eru greiddir skattar af hagn-
aði vegna fjárfestinga.
Virðisaukaskattur er yfirleitt 8%.
Sérstakar ívilnanir í Bretlandi
Skattaívilnanir felast yfirleitt í
breytilegum afskriftareglum þar
sem fyrirtækjum er gert kleift að
afskrifa fjármuni á styttri tíma en
almennar reglur segja til um.
Beinn fjárstuðningur felst í
styrkjum og ríkisábyrgðum vegna
lengri tíma lána hjá lánasjóðum
Efnahagsbandalagsins og
Evrópusambandi kola- og stál-
framleiðenda.
Vestur-Þýzkaiand
Skattar: Fyrirtæki greiða 56% af
nettóhagnaði í skatt. Hluthafar fá
lægri tekjuskatt sem því nemur.
Auðlindaskattur af arði hlutafjár er
25% og kemur til frádráttar við
álagningu tekjuskatts hjá einstök-
um hluthöfum séu þeir með lög-
heimili í V-Þýzkalandi. Hlutabréfa-
hagnaður og einkaleyfistekjur
bera 25% auðlindaskatt.
í V-Þýzkalandi greiða einstakl-
ingar 22% skatt af árstekjum sem
eru á bilinu 0,85 mkr—37 mkr.
Árstekjur sem eru meiri en 301 mkr
eru skattlagðar með 56%. í raun er
skattprósentan fyrir árstekjur sem
eru 301 mkr ekki nema 45,5%.
Virðisaukaskattur er 12%.
Sérstakar ívilnanir í V-Þýzkalandi
Iðnfyrirtæki geta notið skattfríð-
inda m.a. á eftirfarandi hátt:
— Fyrirtæki í V-Berlín fá sérstak-
an 20% afslátt af skatti og 4,5%
afslátt á virðisaukaskatti.
— Afskriftir af vélum og búnaöi
iðnfyrirtækja er 75%.
— Afskriftir af byggingum eru
50%.
— Sérstakar skattaívilnanir eru
veittar þeim iðnfyrirtækjum
sem byggja verksmiðjur ná-
lægt a-þýzku landamærunum.
Beinn fjárstuðningur er í formi
styrkja sem nema 7,5% af heildar-
fjárfestingu, eru skattfríir og
óafturkræfir.
Heimild: Affársekonomi Manage-
ment nr. 6 1979.
rosir — runnarosir —
ágræddar rósir —
limgerða- og khfurrósir
runnar og tré —
limgerðisplöntur —
fjölærar blómjurtir —
steinhæðajurtir —
Garðyrkjustöðin Grímsstaðir
Heiðmörk, Hveragerði
Símar: 99-4230 og 99-4161
48