Frjáls verslun - 01.08.1981, Qupperneq 81
Ahrif verslanastríðsins á Akureyri að koma í Ijós
Stækkandi markaðssvæði
Akureyrarverslunarinnar
Stórhýsi Hagkaupa er þegar orðið of lítið miðað við umfang verslunarinnar, að
sögn verslunarstjórans.
Miklar breytingar eiga sér nú
stað á verslunarháttum Akur-
eyringa og bera þær óneitan-
lega svip af verslunarþróun-
inni í Reykjavík undanfarin ár.
Þá sérstaklega af vexti og við-
gangi stórmarkaða á kostnað
smærri kaupmanna. Þó er ekki
alveg saman hægt að jafna, því
á Akureyri hafa verið færri
sjálfstæðir smákaupmenn en
ráða mætti af fjölda íbúa.
Hinsvegar hefur KEA rekið
margar hverfaverslanir sem
einkum versla með svonefnda
dagvöru, eða vöru til daglegrar
neyslu. Vegna þessa er
tvennskonar þróun á ferðinni
innan fyrirtækisins, annars-
vegar versnandi hagur hverfa-
verslananna og hinsvegar
uppgangur markaðsversl-
unarinnar.
Eftir þvi sem FV kemst næst
hefur dregið úr verslun hjá t.d.
Kaupfélagi verkamanna og
Hafnarbúðinni, sem eru heldur
smærri verslanir. Þá hefureigandi
Kjörbúðar Bjarna, sem er stór
verslun, hætt rekstri og selt KEA
hann. Vitað er, að tilkoma kjör-
markaðar KEA fyrir tveim árum og
stórverslunar Hagkaupa fyrir einu
ári komu illa niður á þeim rekstri.
KEA hefur leikinn
Það var einmitt tilkoma kjör-
markaðar KEA við Hrísalund fyrir 2
árum, sem hrundi af stað breyttum
verslunarháttum á Akureyri. Þar
var verslað með nokkuð aðra
vöruflokka en í Kjörbúð Bjarna,
svo báðir aðilar þrifust þótt
skammt sé á milli þeirra. En þegar
Hagkaup komu til skjalanna fyrir
rösku ári og tóku að versla með
fjölda vöruflokka Kjörbúðar
Bjarna, og það yfirleitt á lægra
verði, fór að herða verulega að
Kjörbúð Bjarna.
Hagkaup hafa verslað á Akur-
eyri í fjölda ára en nýja verslunin er
geysileg aukning frá gömlu versl-
uninni hvað vöruval og húsrými
snertir. Rekur menn vafalítið minni
til fjaðrafoksins útaf opnun þeirrar
verslunar í fyrra, svo nú, ári síðar,
er fróðlegt að líta aðeins á þróun
samkeppninnar.
Hagkaup að
sprengja utanaf sér
Ómar Kristvinsson, verslunar-
stjóri Hagkaupa, segir verslunina
hafa gengið framar björtustu von-
um og væri þúsund fermetra hús-
næðtð þegar að verða of lítið
miðað við umfang verslunarinnar.
Því til áréttingar benti hann á
nokkra gáma utanhúss, sem þjóna
nú hjutverki lagers vegna skorts á
lagerplássi. Sagði hann veltu nýju
verslunarinnar hátt í tífalt meiri en
hinnar gömlu. Á þessu ári sagði
hann komið nokkuð jafnvægi á,
þannig að glöggt sæist nú hvað
seldist best og því væri unnt að
byggja upp lager samkvæmt því.
Ekki óttaðist hann að viðtökur
Hagkaupa væri bara bóla, sem
- Ekkert lát á Hagkaupum og hinir hafa flestir náð
sinni hlutdeild aftur
81