Frjáls verslun - 01.10.1993, Síða 5
RITSTJORNARGREIN
STJÓRNENDUR VANMETA
MIKILVÆGIHAGNABAR
Stjórnendur íslenskra fyrirtækja vanmeta mikilvægi
hagnaðar sem helsta mælikvarða á árangur forstjóra við
stjórnun fyrirtækja. Þetta kemur fram í mjög athyglisverðri
skoðanakönnun sem Frjáls verslun hefur látið gera og birt
er í þessu tölublaði. Niðurstaðan kemur ekki aðeins á óvart
heldur veldur hún vonbrigðum. Hún sýnir að auka þarf
umræðuna um mikilvægi hagnaðar og góðrar stjórnunar
hjá fyrirtækjum.
Frjáls verslun lét í könnuninni einnig spyrja stjórnendur
hvort skipta ætti um forstjóra ræki hann fyrirtæki með tapi
þrjú ár í röð. Meirihluti var því fylgjandi. Það þýðir að hluti
þeirra, sem ekki töldu hagnað helsta mælikvarða á árangur
forstjóra, var samt þeirrar skoðunar að skipta ætti um for-
stjóra ræki hann fyrirtæki með tapi þrjú ár í röð. Þetta svar
sýnir meiri stuðning við hagnaðarhugsunina.
Mikilvægi hagnaðar við rekstur fyrirtækja felst í því að
án hagnaðar geta fyrirtæki ekki viðhaldið styrk sínum, far-
ið út í frekari fjárfestingar, aukið umsvif sín, skapað líeir-
um atvinnu eða greitt hærri laun. Svo einfalt er það. Þess
vegna kemur það á óvart að meirihluti stjórnenda telji
hagnað ekki besta mælikvarðann á árangur forstjóra í
starfi.
Án hagnaðar næst ekki fram nauðsynleg arðsemi til eig-
enda fyrirtækjanna, hluthafanna. Þar með verður fjárfest-
ing þeirra í fyrirtækjunum óarðbær og áhugi þeirra á að
kaupa hlutafé snarminnkar. Eigendur líta á litla arðsemi
hlutabréfa sem fórnarkostnað. Þeir reikna út hvað þeir
fengju lægju þeir með peningana annars staðar, til dæmis í
ríkisskuldabréfum.
Leiðir stjórnenda fyrirtækja og eigenda þeirra verða að
liggja betur saman. Það kemur spánskt fyrir sjónir að mæli-
kvarði þeirra á árangur skuli ekki vera sá sami þegar aldrei
hefur verið eins mikilvægt að styrkja íslenskan hlutabréfa-
markað og einmitt núna; fá fólk til að leggja fé í fyrirtæki.
Miklar umræður hafa verið um óarðbærar fjárfestingar í
íslensku atvinnulífi á undanförnum áratugi. Þessar óarð-
bæru fjárfestingar hafa nú komið þjóðinni í koll með sam-
drætti og atvinnuleysi. í stað þess að kakan stækki og hagur
allra batni er kakan að minnka. Það er við þessar kring-
umstæður sem meirihluti stjórnenda telur að eitthvað ann-
að en hagnaður sé helsti mælikvarði á árangur forstjóra í
starfi.
Eflaust má finna ýmsar skýringar á þessari niðurstöðu.
Ein er sú að hið opinbera er - og hefur verið - með allt of
mikil afskipti af viðskiptalífinu, ekki síst í gegnum fjárfest-
ingarsjóði og bankakerfið. Þar hafa kröfur til arðsemi fjár-
festinga ekki verið nægilega í hávegum hafðar. Þá hafa
stjórnmálamenn verið gjarnir á að grípa til sértækra ráð-
stafana við að vernda ákveðnar atvinnugreinar.
Það má líkja því við meinsemd að á meðal stjórnenda
skuli hugsunin um hagnað og arðsemi ekki vera efst á blaði
sem mælikvarði á árangur. Stjómandi, sem veit ekki ná-
kvæmlega frá degi til dags hvernig reksturinn gengur og
hverju hann skilar, á erfitt með að ná fram aukinni fram-
leiðni í fyrirtæki sínu. En framleiðni er undirstaða hagvaxt-
ar í landinu.
Þegar á reynir er hagnaður og arðsemi mikilvægasti
mælikvarðinn á árangur stjórnenda í starfi. Könnun
Frjálsrar verslunar sýnir hins vegar að auka þarf umræð-
una um nauðsyn hagnaðar og góðrar stjórnunar.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AU GLÝ SING ASTJ ÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristín
Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið
er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 812300, Auglýsingasími 685380
— RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 — STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson
— FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.995 kr. fyrir 6.-10. tbl. — 10% lægra áskriftarverð ef greitt er
með greiðslukorti. 499 kr. á blað nema bókin 100 stærstu sem er á 999 kr. LAUSASÖLUVERÐ: 599 kr. —
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
GRAFÍK: G. Ben. prentstofa hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5