Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 25
gengni fyrirtækja heldur starfsmennimir allir. Sá for- stjóri er þá gæddur mestum hæfileikum sem tekst að virkja mannskapinn og smita út frá sér þannig að sterk liðsheild skapist innan fyrirtækisins við að ná ár- angri. Hins vegar hlýtur málið að vandast ef stjórn- endur eru ekki sammála um það hver sé besti mæli- kvarðinn á árangur. Eitt er þó á hreinu. Eftir því sem leiðir forstjórans til að virkja starfsmenn til af- reka eru ódýrari þeim mun ánægðari verða almennir hluthafar, eigendur fyrir- tækisins. Þeir fá meiri ávöxtun af hlutafé sínu og forstjórinn hefur haft hags- muni þeirra í huga. FORSTJÓRISEM ÁLITINN ER GÓÐUR STJÓRNANDI ímyndum okkur forstjóra sem álitinn er góður stjórn- andi og hæfileikaríkur. Hann ræður til sín marga dýra aðstoðarmenn og myndar sterka liðsheild toppstjórnenda. Þeirráðatil sín marga lykilmenn á háum launum í undirdeildum fyrir- tækisins. Farið er út í að hafa aðstöðu á vinnustað eins og hún gerist best. Keyptir eru glæsilegir sum- arbústaðir í samvinnu við starfsmannafélögin til að bæta enn frekar starfsand- ann. Með öðrum orðum; lit- ið er á vinnustaðinn sem annað heimili starfsmanna og lagt er upp úr að starfs- menn séu vinir sem leggist á eitt við að standa sig. Gefum okkur að gæði vörunnar og þjónustunnar séu mikil, vegna þess að það eru góðir og klárir starfsmenn sem standa þar að baki, og fyrirtækið auki sölu sína og nái mestri markaðs- hlutdeild allra í greininni. Gefum okk- ur líka að fyrirtækið skili hagnaði eftir skatta og arðsemi eigin fjárins, hluta- bréfanna, sé um 3% á ári — og að það f3@k$mé eftir mtmmmwmmmmm telja hagnað besta mælikvarðan ◄------► Nei % Já % Heildverslun Smásala Iðnaður Útgerð Þjónusta Matvælaframl. Fiskvinnsla Hlutfall þeirra, sem töldu hagnaðinn besta mæli- kvarðann, var hæst meðal stjórnenda heildverslana en lægst meðal stjórnenda í fiskvinnslu. sé sá rekstrargrunnur sem kominn sé til að vera. Nú má velta þeirri spurningu upp hvort forstjórinn hafi ekki náð góðum árangri í starfi. Sjálfum þykir honum svo vera. Starfsmennirnir telja hann frábæran enda er sérlega góður andi á vinnustaðnum, starfsmenn eru yfír- höfuð ánægðir ekki síst þar sem þeir fá góð laun. Varla segði nokkur áhugamaður um stjómun annað en að þarna færi hinn ágætasti forstjóri og að hann hefði náð árangri. GÓÐUR STJÓRNANDIEN ÓÁNÆGÐIR HLUTHAFAR? Þrátt fyrir þetta gæti það gerst á hluthafafundi að fram kæmu raddir á meðal hlut- hafa um að þeir væm ekki sáttir við að fá „bara“ 3% arðsemi af hlutafé sínu. Þeir segðu hugsanlega að for- stjórinn hefði augljóslega náð árangri við að byggja upp sterkt og gott fyrirtæki og aukið bæði sölu og tekjur þess. Hins vegar væri leið- in, sem forstjórinn valdi til að auka tekjurnar, of dýr og hagnaður gæti verið meiri. Þeir væru því ekki ánægðir með „bara“ 3% arðsemi af hlutafé sínu enda litu þeir á bréfin sem hreina fjárfest- ingu og ekkert annað. Þeir legðu því til að forstjórinn næði sömu tekjum og áður en með minni tilkostnaði, el- legar litu þeir í kringum sig eftir öðrum hlutabréfum sem gæfu betri ávöxtun. Jafnvel keyptu þeir rílds- skuldabréf sem væru jú ör- ugg og gæfu ívið meiri ávöxtun. Þeir væru ekki nægilega sáttir við árangur hans og ef hann stæði sig ekki betur á næsta ári myndu þeir bera upp tillögu um að skipt yrði um for- stjóra. Þetta dæmi okkar sýnir vel að sínum augum lítur hver á silfrið þegar árangur forstjóra í starfi er metinn; eigendur, viðskiptavinirnir, starfs- mennirnir og forstjórinn sjálfur. Þess vegna er stjómun sem fag skemmti- legt viðfangsefni og vangaveltumar margar. STJÓRNUN FYRIRTÆKJAOG ÞJÁLFUN KNATTSPYRNULIÐS Stundum hafa áhugamenn um 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.