Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1993, Qupperneq 6

Frjáls verslun - 01.10.1993, Qupperneq 6
EFNI Óskar Magnússon, forstjóri Hagkaups, er í þrælskemmtilegri nærmynd Frjálsrar verslunar. Óskar þykir mikill vinnuþjarkur og stutt er í gamansemina hjá honum. Hér stillir hann sér upp við hliðina á gínu. Sjá bls. 30. 8 FRÉTTIR 8 Sjö íslensk fyrirtæki kynntu nýjar vörur í Kringlunni. 10 Góð skáldsaga um yfirbyggingu í fyrirtækjum. 14 Myndarleg bókaflóra hjá útgáfufyrirtæki Frjálsrar verslunar, Fróða, fyrir þessi jól. 16 FORSÍÐ UGREIN Yfirgripsmikil grein um skoðanakönnun Frjálsrar verslunar á meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum. Gallup framkvæmdi könnunina. Stjórnendurnir voru spurðir hvort þeir teldu hagnað vera besta mælikvarðann á árangur forstjóra í starfi. Meirihlutinn var á móti því að svo væri og nefndi önnur atriði eins og starfsanda, söluaukningu og fleira. Þá voru þeir spurðir hvort þeir teldu að skipta ætti um forstjóra sem ræki fyrirtæki með tapi þrjú ár í röð. Þar snerist dæmið við. Meirihluti var með því. Þetta eru athyglisverðar niðurstöður sem fá verðuga umfjöllun. 28 ERLEND VEITINGAHÚS Sigmar B. Hauksson, sem skrifar reglulega um erlenda bisnessveitingastaði í Frjálsa verslun, heldur í þetta skiptið til Brussel í Belgíu og skrifar um hinn þekkta veitingastað Aux Armes de Bruxells. Staðurinn er mest sóttur af Belgum sjálfum. Fjallað er um tölvutæknina í ein- stakri kvikmynd Stevens spielberg, Jurassic Park. Sjá bls. 49. 30 NÆRMYND Þrælskemmtileg nærmynd af Óskari Magnússyni, sem tók við starfi forstjóra Hagkaups fyrr í haust. Óskar er vel þekktur innan viðskiptalífsins en hann hefur verið lögmaður nokkurra stórfyrirtækja á undanförnum árum, meðal annars Hagkaups. Hann ólst upp í Vogahverfinu. Gömlu leikfélagarnir eru núna flestir rithöfundar og skáld. í gamla daga voru þeir hins vegar nefndir Vogavillingar. 33 BÓKARDÓMUR Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifar um nýútkomna bók Þorkels Sigurlaugssonar; Frá handafli til hugvits. Hannes hælir bókinni en er ósammála bókarhöfundi í nokkrum atriðum. 36 ÁHÆ TTUFJÁRMAGN Áhættufjármagn fer minnkandi á íslandi eins og annars staðar í heiminum. Hér er sýnt hverjir eru helstu áhættufjármagnsaðilar á íslandi og nefndar ýmsar skýringar á því að þeir leggi fram minna fé til áhættusamra verkefna. Greinarhöfundur er Haraldur Þorbjörnsson viðskiptafræðingur. 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.