Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 59
Hörður Sigurjónsson
veitingamaður í
Naustinu: „ Við bjóðum
upp á jólahlaðborð allan
desember og höfum
íslenskan brag á pví. Auk
hinnar hefðbundnu
svínasteikur höfum við
lambakjöt, hangikjöt,
hreindýr, gæsir og lax. “
litlu jólin í sölum sem við höfum yfir að
ráða á efri hæðinni. Eftir að búið er að
borða af hlaðborðinu fer fólkið að
syngja og svo er jólagjöfunum útdeilt.
Starfsfólkið tekur þá jafnvel þátt í
gleðinni og syngur með.
Við höldum okkur við danska jóla-
hlaðborðið og bjóðum jólaöl frá Tu-
borg með. Hér ríkir sérstök jóla-
stemning í desember því húsið fyllist
afþessumilmmiklamat, t.d. rauðkáli,
brúnkáli, sósum og grísakjöti. Þegar
vindlareykurinn bætist svo við er hér
orðið reglulega jólalegt,“ sagði
Bjarni.
Naustið býður upp á jólahlaðborð
allan desember og hefur íslenskan
brag á því. Auk hinnar hefðbundnu
svínasteikur hefur Naustið lamba-
kjöt, hangikjöt, hreindýr og gæsir á
sínu borði og lax er einnig framreidd-
ur á ýmsan hátt. Hlaðborðið í Naust-
inu kostar 3.700 krónur. „Ragnar
Bjarnason verður hjá okkur allan des-
ember og leikur á píanó og syngur,“
sagði Hörður Sigurjónsson eigandi
Naustsins. „Það er vinsælt fyrir fjöl-
skyldufólk að koma á sunnudögum en
þeir sem vilja halda áfram að
skemmta sér eftir að hafa gætt sér á
matnum af jólahlaðborðinu geta dvalið
hér um helgar til klukkan þrjú. Það er
nauðsynlegt að panta borð tímanlega
því uppselt er strax í nóvember suma
dagana. Það er t.d. löngu orðið upp-
selt í skötuna hjá okkur á Þorláks-
rnessu," sagði Hörður.
Jólahlaðborð í hádeginu og d kvöldin fram til 22. desember
Uppliföu aðventuna meö okk.uráHótel Loftleiðum. Jólasöngvar og lifandi tónlist hljóma alla daga
og skapa hina réttu jólastemningu, Jólaheimur Hótel Loftleiöa erfyrirpig og allafjölskylduna.
Jólaheimur út af fyrir sig
Matargestir eru sjáljkrafa þátttakendur íferðahappadrœtti
59