Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1993, Page 59

Frjáls verslun - 01.10.1993, Page 59
Hörður Sigurjónsson veitingamaður í Naustinu: „ Við bjóðum upp á jólahlaðborð allan desember og höfum íslenskan brag á pví. Auk hinnar hefðbundnu svínasteikur höfum við lambakjöt, hangikjöt, hreindýr, gæsir og lax. “ litlu jólin í sölum sem við höfum yfir að ráða á efri hæðinni. Eftir að búið er að borða af hlaðborðinu fer fólkið að syngja og svo er jólagjöfunum útdeilt. Starfsfólkið tekur þá jafnvel þátt í gleðinni og syngur með. Við höldum okkur við danska jóla- hlaðborðið og bjóðum jólaöl frá Tu- borg með. Hér ríkir sérstök jóla- stemning í desember því húsið fyllist afþessumilmmiklamat, t.d. rauðkáli, brúnkáli, sósum og grísakjöti. Þegar vindlareykurinn bætist svo við er hér orðið reglulega jólalegt,“ sagði Bjarni. Naustið býður upp á jólahlaðborð allan desember og hefur íslenskan brag á því. Auk hinnar hefðbundnu svínasteikur hefur Naustið lamba- kjöt, hangikjöt, hreindýr og gæsir á sínu borði og lax er einnig framreidd- ur á ýmsan hátt. Hlaðborðið í Naust- inu kostar 3.700 krónur. „Ragnar Bjarnason verður hjá okkur allan des- ember og leikur á píanó og syngur,“ sagði Hörður Sigurjónsson eigandi Naustsins. „Það er vinsælt fyrir fjöl- skyldufólk að koma á sunnudögum en þeir sem vilja halda áfram að skemmta sér eftir að hafa gætt sér á matnum af jólahlaðborðinu geta dvalið hér um helgar til klukkan þrjú. Það er nauðsynlegt að panta borð tímanlega því uppselt er strax í nóvember suma dagana. Það er t.d. löngu orðið upp- selt í skötuna hjá okkur á Þorláks- rnessu," sagði Hörður. Jólahlaðborð í hádeginu og d kvöldin fram til 22. desember Uppliföu aðventuna meö okk.uráHótel Loftleiðum. Jólasöngvar og lifandi tónlist hljóma alla daga og skapa hina réttu jólastemningu, Jólaheimur Hótel Loftleiöa erfyrirpig og allafjölskylduna. Jólaheimur út af fyrir sig Matargestir eru sjáljkrafa þátttakendur íferðahappadrœtti 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.