Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 26
FORSIÐUGREIN
Stundum hafa áhugamenn um stjórnun líkt stjórnun fyrirtækja við þálfun og
stjórnun á knattspyrnuliðum.
stjómun líkt stjórnun fyrirtækja
við þjálfun og stjórnun á knatt-
spyrnuliðum. Eitt lið stendur
uppi sem sigurvegari í lok
mótsins og fær bikarinn. Það
þarf hins vegar ekki að vera
liðið sem var best á pappírn-
um; liðið sem réði dýra þjálfa-
rann og keypti alla dýru leikmennina.
Kannski lenti það í öðru sæti en liðið
með ódýru leikmennina vann titilinn.
Það að dýra liðið náði öðru sæt-
inu þótti knattspyrnuáhuga-
mönnum í sjálfu sér ekki slak-
ur árangur. En eigendur liðs-
ins voru eflaust á annarri
skoðun, þeir vildu meira, þeir
vildu bikarinn og ekkert annað.
Og liðið sem náði fjórða sætinu,
sem var besti árangurinn í sögu þess,
var himinlifandi yfir árangrinum.
Þetta sýnir enn betur að allir skil-
greina ekki árangur eins. Meira að
segja ekki í knattspyrnu.
Þrátt fyrir að nokkur meirihluti ís-
lenskra stjórnenda í Gallup-könnun
Frjálsrar verslunar telji hagnað ekki
vera besta mælikvarðann á árangur
forstjóra í starfi skiptir hagnaður
fyrirtækja afar miklu máli — og öllu til
langs tíma. Stjórnendur og starfs-
menn missa vinnuna ef fyrirtækið er
ekki arðbært, skilar ekki hagnaði og
fer í gjaldþrot. A sama hátt tapa eig-
endur fyrirtækisins, hluthafarnir, fé
og eign sinni.
FYRIRTÆKI ÞURFA AÐ HAGNAST
TIL AÐ HALDA STYRK SÍNUM
Fyrirtæki þurfa að hagnast til að
geta viðhaldið styrk sínum, farið út í
frekari fjárfestingar, aukið umsvif sín,
skapað fleirum atvinnu og greitt
hærri laun. Fyrirtæki þurfa líka að
skila hagnaði til að almenningur vilji
leggja fé íþau. Á sama hátt og sá, sem
leggur fé í banka vill fá raunvexti, vill
sá sem leggur fé í fyrirtæki, fá ávöxt-
un af hlutafé sínu.
Ef litið er á dæmið í víðara sam-
hengi þá verða lífskjör í einu þjóðfé-
lagi ekki bætt nema að þjóðarkakan
stækki. Annars lifa menn hverjir á
öðrum. Og þjóðarkakan stækkar ekki
nema fjárfest sé í atvinnugreinum og
fyrirtækjum sem eygja von um hagn-
að og arð, aukna framleiðni og verð-
mætasköpun.
KÖNNUN GALLUP FYRIR FRIÁLSA VERSLUN
1. Æðstu stjórnendur, oftast framkvæmdastjórar,
voru eingöngu sþurðir í könnuninni. Urtakið var
500 fyrirtæki. 420 stjórnendur svöruðu.
2. Könnunin var framkvæmd ígegnum síma dagana
16. til 24. september. Fyrst var spurt hvort hagnað-
ur fyrirtækja væri besti mælikvarðinn á árangur
forstjóra. Efsvariðvarnei, varspurthverværibesti
mælikvarðinn á árangurforstjóra. Síðan var spurt
hvort skipta ætti um forstjóra sem rekið hefði fyrir-
tæki með tapi 3 ár í röð.
3. Mikill meirihluti þeirra, semtóku afstöðu, telurað
hagnaður sé ekki besti mælikvarði á árangur for-
stjóra í starfi.
4. Svipuð afstaða er hjá stjórnendum úti á landi og á
höfuðborgarsvæðinu.
5. Helstufylgismenn peirrar skoðunar að hagnaður sé
besti mælikvarðinn eru stjórnendur heildverslana.
Helstu andmælendur eru stjórnendur í fisk-
vinnslu.
6. Þrátt fyrir að meirihluti telji hagnað ekki besta
mælikvarðann á árangur er mikill meirihluti fyrir
því að skipta um forstjóra reki hann fyrirtæki með
tapi þrjú ár í röð.
7. Mesta fylgið við að skipta um forstjóra er að finna
hjá stjórnendum smáfyrirtækja og meðalstórra.
8. Afþeim, sem telja hagnað ekki besta mælikvarðann
á árangur, nefna stjórnendur smáfyrirtækja oftast
atriði eins ogstarfsanda og söluaukningu en stjórn-
endur stórfyrirtækja nefna afkomuna ásamt öðru.
Sem sagt ekki afkomuna eina og sér.
26