Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 48
TOLVUR
PC- eða Macintosh-tölvu geta, í flest-
um tilfellum, sparað viðtakanda/út-
gefanda kostnað við setningu án þess
að hafa vitneskju um hvaða tölvukerfi
viðkomandi útgefandi eða prent-
smiðja notar. Um leið og greinarhöf-
undur kemur þannig í veg fyrir auka-
kostnað útgefandans dregur hann/
hún úr líkum á því að setningarvillur
slæðist inn í textann.
Lausnin er í því fólgin að skila
skránni sem ASCII-skrá (einnig nefnt
DOS-skjal) á disklingi. Öll ritvinnslu-
kerfi, frá nýjustu útgáfum af Word-
Perfect, MS Word og IBM Ritstoð og
til fornminja á borð við fyrstu útgáfu af
Hugsýn/Hugrita, eiga það sameigin-
legt að geta vistað efnisskrár sem
hráan ASCII-kóða eða DOS-skjal.
Flest ritvinnslukerfi geta jafnframt
lesið inn og birt slíkar efnisskrár á
skjá þótt þær séu skrifaðar með öðru
kerfi eða annarri útgáfu af sama kerfi.
Til öryggis getur verið rétt að hafa
það fyrir reglu að vista skjalið, þ.e.
greinina í endanlegri mynd, eins og
venja er í viðkomandi kerfi. Sé upp-
setning greinarinnar að einhverju
leyti sérstök má prenta handritið
þannig sett upp og afhenda með disk-
lingi. Að því loknu má síðan vista
skjalið sem ASCII-skrá til afhending-
ar á disklingi.
í WordPerfect 4.1 er notuð skipun-
in Ctrl-F5 (kostur 1) til að vista skrá
sem ASCII-stafakóða (DOS-skjal) en
Ctrl-F5 (kostur 2) til að breyta
ASCII-skrá í WP-skjal, eða „texta
inn“ eins og það nefnist. í WordPer-
fect 5.1 fyrir Windows er notuð skip-
unin „Vista sem“ og síðan valið
„ASCII-texti (DOS)“ úr glugganum á
valmyndinni. Ef sækja á ASCII-skrá
er það gert með skipununni „Sækja“
undir flokknum „Skrá“. Þá er spurt á
skjánum hvort breyta eigi ASCII-skrá
í WordPerfect textaskjal. Sé spurn-
ingunni svarað játandi birtist skjalið á
skjánum.
í Ritstoð er efnisskrá prentuð beint
út á diskling sem ASCII-skrá með því
að skrifa drifbókstaf og heiti skrárinn-
ar aftan við FRÁLAG: ASCII-skrá má
sækja eins og aðrar Ritstoðar-skrár.
í Word fyrir DOS er ASCII-skrá
vistuð (og sótt) með aðgerðinni
„Transfer". í Word fyrir Windows er
notuð sama skipun og í WordPerfect,
þ.e. „vista sem“ til að vista skjal sem
ASCII-skrá og skráin er sótt á sama
hátt og aðrar.
Hugsýn vistar skjöl sem ASCII-
skrár og því ganga þær snurðulaust
sem slíkar frá öðrum kerfum inn í
Hugsýn og frá Hugsýn inn í önnur
kerfi sem ASCII-skrár.
En aftur skal ítrekað að þegar skjal
er vistað sem ASCII-skrá breytist
útlit þess og uppsetning, spássíur
mást út, inndráttur, miðjun og feit-
letrun hverfur, einnig blaðhaus, fót-
ur, blaðsíðutal o.s.frv. Einungis hrár
textinn og auka línubil skilar sér en
það er í mörgum tilfellum nóg enda
varðar prentsmiðju oftast ekkert um
annað — handrit sem sýnir fyrirsagn-
ir og annað sem máli kann að skipta
leysir það mál.
PENNAR
KVEIKJARAR
REGLUSTIKUR
ÁHERSLUPENNAR
REIKNITÖLVUR
BORÐKLUKKUR
RÁÐSTEFNUMÖPPUR
SKJALATÖSKUR
LYKLAKIPPUR
BRÉFAKLEMMUBOX
SÍMABÆKUR
VASAHNÍFAR
DAGATÖL
VEGGKLUKKUR
PENNASTANDAR
AUGLÝSINGAVÖRUR
TRANAVOG11
104 REYKJAVÍK
S: 682850 FAX: 682856
ÓDÝRARA EN ÞÚ HELDUR
HAFIÐ SAMBAND OG VIÐ SENDUM MYNDA- OG VERÐLISTA
roubill W5Tm"
48