Frjáls verslun - 01.10.1993, Blaðsíða 22
STJÓRNENDUR í KÖNNUN GALLUP
TEUA HAGNAÐ EKKI
- A ARANGUR FORSTJORAISTARFI
- HELDUR STARFSANDA, SÖLUAUKNINGU OG FLEIRA
Þótt mikill meirihluti stjórn-
enda í íslenskum fyrirtækjum,
sem spurðir voru í könnun Gall-
up fyrir Frjálsa verslun, telji að
skipta eigi um forstjóra reki
hann fyrirtæki með tapi þrjú ár í
röð, er í sömu könnun mikill
meirihluti stjórnenda sem telur
að hagnaður fyrirtækja sé EKKI
besti mælikvarðinn á árangur
forstjóra í starfi. Könnunin var
framkvæmd dagana 16. til 24.
september. Spurt var: „Telur þú
að hagnaður fyrirtækja sé besti
mælikvarðinn á árangur for-
stjóra í starfi?“
Rúmlega 41% stjómenda, sem
tóku afstöðu, voru sammála því að
hagnaður væri besti mælikvarðinn á
árangur forstjóra í starfi en tæplega
59% vom hins vegar ekki þeirrar
skoðunar.
Alls voru 420 stjómendur spurðir
og tóku 383 afstöðu, eða 91,2%, en
37 stjórnendur, 8,8% tóku ekki af-
stöðu. Af þeim, sem tóku afstöðu,
sögðust 225 ekki telja hagnað besta
mælikvarðann á árangur forstjóra en
158 töldu svo vera.
EFEKKIHAGNAÐUR,
HVAÐ ÞÁ?
Þeir, sem töldu að hagnaður væri
ekki besti mælikvarðinn, voru þá
spurðir: „Hver telur þú að sé besti
mælikvarðinn á árangur forstjóra í
starfi?“
Flestir nefndu þá starfsanda og al-
menn góð samskipti við starfsmenn,
hagnað að hluta til en ásamt öðru,
aukna sölu og markaðshlutdeild,
stjórnunarlegan árangur innan fyrir-
tækisins, góðan árangur miðað við
ástandið almennt í þjóðfélaginu og ár-
angur í samanburði við önnur fyrir-
tæki í atvinnugreininni. Þá nefndu
menn góða afkomu, lækkun rekstrar-
kostnaðar, bætta ímynd fyrirtækis-
ins, hagnað til langs tíma og ánægða
viðskiptavini.
Svör annarra dreifðust nokkuð og
voru flokkuð undir liðunum „annað“
enda var þeim ekki komið fyrir annars
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON GRAFÍK: G. BEN.
22