Frjáls verslun - 01.10.1993, Qupperneq 14
FRÉTTIR
ÚTGÁFU FYRIRTÆKIFRJÁLSRAR VERSLUNAR:
ÞRETTÁN GÓÐAR FRÁ FRÓÐA
Á SAMA VERÐIOG í FYRRA
Útgáfufyrirtæki
Frjálsrar verslunar,
Fróði hf., gefur út þrettán
bækur fyrir þessi jól.
Þrátt fyrir að virðisauka-
skattur sé lagður á bækur
er verð bóka frá Fróða á
sama verði og í fyrra.
Fróði tekur ekki þátt í
samráði bókaútgefenda
um að auglýsa bækur
ekki í sjónvarpi fyrir
þessi jól — til að ná
kostnaðinum niður — en
býður engu að síður bæk-
urnar á sama verði og í
fyrra. Hér fer á eftir kynn-
ing á bókum Fróða.
SPOR í MYRKRI
Spor í myrkri er skáld-
saga eftir Þorgím Þráins-
son. Bókin fjallar um
nokkur ungmenni sem
fara í útilegu í afskekkt
byggðarlag um verslun-
armannahelgina. Þetta á
fyrst og fremst að verða
skemmtiferð en málin
taka óvænta stefnu.
Þetta er dulmögnuð bók.
Þorgrím Þráinsson þarf
ekki að kynna, hann hef-
ur verið metsöluhöfund-
ur undanfarin ár.
SUNDUR OG SAMAN
Þetta er skáldsaga eftir
Jónínu Leósdóttur. Þetta
er fyrsta skáldsaga Jón-
ínu en hún hefur skrifað
ævisögur og þýtt nokkrar
bækur auk þess sem smá-
sögur eftir hana hafa
birst í tímaritum. Bókin
fjalla um unglinga sem
standa á krossgötum.
Ljúfsár ást lætur á sér
kræla og á ýmsu gengur í
samskiptum ungmenn-
anna við eldri kynslóð-
ina. Jónína skrifaði í
fyrra viðtalsbók við Rósu
Ingólfsdóttur, Rósumál.
STEPHEN KING
Stephen King bókin frá
Fróða í ár heitir Háska-
leikur. Hún er í þýðingu
Guðbrandar Gíslasonar.
Á ensku nefnist bókin
Gerald’s game.
SALTBRAGÐ
HÖRUNDSINS
Saltbragð hörundsins
er eftir frönsku skáldkon-
una Benoite Groult í þýð-
ingu Guðrúnar Finnboga-
dóttur. Bókin heitir á
frummálinu Las Vais-
seaux du cæur. Þetta er
bók sem farið hefur sigur-
för um Evrópu.
STRÁKARNIR OKKAR
Strákarnir okkar er eft-
ir Sigmund Ó. Steinars-
son blaðamann. Hún fjall-
ar um íslenskan hand-
knattleik. Sagt er frá
öllum landsleikjum sem
Islendingar hafa leikið.
Bókin er mikið mynd-
skreytt. Sigmundur hefur
sent frá sér bækur um
íþróttir og íþróttamenn
sem hafa sögulegt gildi.
Strákamir okkar er
skemmtileg uppflettibók.
BRUGGIÐ OG BANNÁRIN
Bmggið og bannárin er
eftir Arnar Guðmundsson
og Unnar Ingvarsson.
Þetta er bók um storma-
saman og umdeildan þátt
íslandssögunnar. Árið
1915 tók algert áfengis-
bann gildi á Islandi og
stóð það allt til ársins
1935. Höfundar bókar-
innar hafa lagt mikla
vinnu í að kynna sér allar
hliðar þessa máls. Unnar
er við meistaranám í
sagnfræði og Arnar
Guðmundsson er fjöl-
miðla- og bókmennta-
fræðingur, auk þess sem
hann hefur starfað sem
blaðamaður.
ÞÚ GEFST ALDREI
UPP, SIGGA
Ævisaga Sigríðar Rósu
Kristinsdóttur er kunn
fyrir skelegga útvarps-
þætti sína þar sem hún
segir mönnum umbúða-
laust til syndanna. Sig-
ríður Rósa býr á Eski-
firði. Líf hennar hefur
sannarlega ekki verið
dans á rósum. En hún hef-
ur alltaf barist og hvergi
hopað. Hún hefur aldrei
gefist upp. Elísabet Þor-
geirsdóttir blaðamaður
skrifar viðtalsbókina við
Sigríði Rósu.
SAGA HAUKS
MORTHENS
Bókin um Hauk Mort-
hens, söngvara og séntil-
mann, heitir einfaldlega
Til em fræ. Jónas Jónas-
son, útvarpsmaður og rit-
höfundur, skrifar bókina.
Þegar Jónas hóf að skrifa
bókina var Haukur orð-
inn helsjúkur af krabba-
meini og lést áður en
verkinu var lokið. En þá
hlupu vinir Hauks og
Ragnheiður Magnúsdótt-
ir, eiginkona hans, í
skarðið.
MANGAMEÐ
SVARTAN VANGA
Manga með svartan
vanga er eftir Ómar
Ragnarsson fréttamann.
Ómar er þjóðkunnur fyrir
14