Frjáls verslun - 01.10.1993, Síða 58
VEITINGAREKSTUR
Wilhelm Wessman,
hótelstjóri á Holiday Inn:
„Það höfðu fáir trú á að
þetta yrði vinsælt þegar ég
útbjó þetta fyrst, í hádegi
22. og23. desember, en
þeir sem komu voru svo
hrifnir að næsta ár
byrjaði ég viku fyrr. “
höfðu jólaglöggi erlendis, hafi innleitt
drykkju á jólaglöggi hér á landi um
1967.
„Það var fastur liður í mörg ár að
Flugfélagið byði starfsmönnum sínum
í jólaglögg á Hótel Sögu um miðjan
desember og einnig var starfsmönn-
um ferðaskrifstofanna boðið,“ segir
Wilhelm.
BEAUJOLAIS NOUVEAU
En hvað er þá drukkið í staðinn
fyrir jólaglögg?
Frá Frakklandi hafa veitingahúsin
nú tekið upp þann sið að bjóða glæ-
nýtt, kælt rauðvín í desember og
kjósa margir að drekka það með jóla-
hlaðborðunum. Frakkar skapa mikla
stemningu í kringum það þegar tapp-
inn er tekinn í fyrsta sinn úr Nouveau
rauðvínsflösku en það er vín sem búið
er til úr uppskeru sumarsins. Hefur
sá siður myndast að drekka þetta
unga vín í desember og hafa íslend-
ingar slegist í hóp veitingamanna víða
að úr heiminum sem keppast við að
bjóða Nouveau sama dag og leyfilegt
er að byrja að neyta þess.
Nokkur veitingahús sameinuðust
um að ná í Beaujolais Nouveau með
flugvél til Frakklands og var það kom-
ið til landsins þegar leyfilegt var að
opna fyrstu flöskuna, þann 18. nóv-
ember, klukkan 18:00. Var saman-
kominn hópur fólks í Perlunni til að
gæða sér á nýja víninu á sömu stundu
og flöskumar voru opnaðar í París og
annars staðar í heiminum. Beaujolais
Nouveau verður einnig til sölu í út-
sölustöðum ÁTVR og getur fólk því
notið þess heima hjá sér að smakka á
uppskerunni frá því í sumar.
Beaujolais er syðsta héraðið af sex
í Burgundi (Bourgogne), en svo nefn-
ist austurhluti Mið-Frakklands.
Beaujolais vín eru nánast eingöngu
búin til úr Gamay vínberjum, þau eru
létt og með ávaxtakeim og þeirra má
neyta meðan þau eru „ung“. Oftast
þurfa vín að vera eins til þriggja ára
þegar þeirra er neytt en Nouveau vín-
in eru frábrugðin og mega framleið-
endur selja þau frá 15. desember upp-
skeruárs til 31. ágúst næsta árs en
með sérstakri undanþágu yfirvalda er
nú leyfilegt að byrja mánuði fyrr. Vín-
ið er ekki orðið fullgerjað og líkist
ávaxtasaft. Best er að bera það fram
léttkælt og því freyðir það dálítið á
meðan það er enn ungt. Nouveau vín
er orðið að venjulegu Beaujolais víni
um páska.
GIRNILEG TILBOÐ
Á Hótel Sögu hefur verið stöðug
aukning gesta í jólahlaðborð frá því
byrjað var að bjóða upp á þau í Grillinu
upp úr 1980 og þar hefur íslenskum
réttum verið bætt við hið hefðbundna
danska jólaborð, svo sem laxi, hangi-
kjöti, lambalæri og fiskrétti dagsins.
„í tengslum við jólahlaðborðið höf-
um við skipulagt tvö skemmtikvöld í
desember og ball á eftir, laugardags-
kvöldin 4. og 11. desember. Verðið
fyrir matinn og þessa skemmtun
verður aðeins 2.500 krónur," sagði
Sveinbjöm Friðjónsson, yfirmat-
reiðslumaður á Hótel Sögu. „Fyrir
hópa höfum við sér sali þar sem hægt
er að njóta þess að borða mat af jóla-
hlaðborði. Við munum bjóða nýja
rauðvínið frá Frakklandi en ætlum að
breyta aðeins áherslum varðandi vín-
in, t.d. bjóða kampavín til að auka
stemninguna og þurrt sherry fyrir
matinn,“ sagði Sveinbjörn.
„Það má segja að um þriðjungur
gesta okkar séu fastagestir sem eru
bókaðir ár hvert,“ sagði Bjarni Árna-
son á Óðinsvéum en hann sér einnig
um veitingarekstur í Viðeyjarstofu
þar sem einnig er boðið upp á jóla-
hlaðborð og hægt verður að fá séra
Þóri Stephensen staðarhaldara til að
flytja jólahugvekju. „Nokkur lítil fyrir-
tæki koma reglulega til okkar og halda
Sveinbjörn Friðjónsson,
yfirmatreiðslumaður á
Hótel Sögu: „Við munum
bjóða nýja rauðvínið frá
Frakklandi en ætlum að
breyta aðeins áherslum
varðandi vínin, bjóða
kamþavín ogþurrt sherrý
fyrir matinn. “
58