Frjáls verslun - 01.09.1997, Page 9
Úr afgreiðslunni að Laugavegi 172. Elíza og Guðbjörg við störf.
Margrét Karlsdóttir markaðsstjóri (til vinstri)
og Bryndís Torfadóttír framkvæmdastjóri.
starfsfólks sem þolir vel álag. Aukin sam-
keppni krefst stööugra breytinga og mikils
sveigjanleika og þurfa fyrirtækin, ekki síð-
ur en starfsfólkið, á stöðugri endurþjálfun
að halda. Við getum líkt þessu við líkams-
rækt. Það þýðir ekkert að taka góða törn
og gleyma sér svo, þá næst einungis
skammtímaárangur. Hringrásin þarf sífellt
að halda áfram - órjúfanleg. Ferlið þarf að
skipuleggja; það þarf að staldra við og
taka púlsinn - og breyta eftir því sem þörf
er á til að tryggja að þjónusta fyrirtækisins
samræmist óskum og þörfum viðskiptavin-
arins."
EUROBONUS KLÚBBURINN
VERÐLAUNAÐUR
SAS býður farþegum sínum að gerast
félagar í EuroBonus sem er bónuskerfi
hannað sérstaklega fyrir viðskiptavini fé-
lagsins. Á síðasta ári vann EuroBonus
klúbburinn hin alþjóðlegu Freddie verðlaun
fyrir betri þjónustu, tækifæri og ábata en
nokkur sambærilegur klúbbur býður upp á.
Handhafar EuroBonus öðlast einnig
punkta þegar þeir fljúga með samstarfs-
flugfélögum fyrirtækisins. Fyrir utan Star
Alliance félögin er punktasamstarf við fjöl-
mörg önnur flugfélög, þar á meðal Flug-
leiðir. EuroBonus félagar geta valið hvort
ferð til Skandinavíu er skráð inn hjá SAS
EuroBonus eða Vildarklúbbi Flugleiða. Það
skal tekið fram að allir félagar Vildar-
klúbbs Flugleiða, Saga Bonus, Saga Club,
og Saga Gold korthafar geta óskað eftir
skráningu á ferðum sínum þegar flogið er
með SAS innan Skandinavíu, innan Evrópu
og flugi SAS til Delhi.
Starfsemi SAS á íslandi felst í að selja
farmiða um allan heim. Salan fer fram hjá
ferðaskrifstofum um allt land, skrifstofu
SAS á Laugavegi 172 og öllum söluskrif-
stofum Flugleiða.
Með þessu stuðlar SAS að því að ís-
lenski viðskiptahópurinn nýti sér Kaup-
mannahafnarflugvöll sem tengiflugvöll inn
á áætlunarnet Star Alliance. Frá Kaup-
mannahöfn liggja leiðirtil allra átta.
H///S4S
Laugavegi 172
Símar:
Söludeild: 562 2211
Fraktdeild: 562 3266
Aðrar deildir: 562 2281
GJA LEBIR T1L ALLRA ÁTTA