Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 28

Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 28
Mál Steingríms hefur valdið uppnámi í Seðlabanka íslands við Arnarhól. Það hefur varpað Ijósi á að bankaráðið hefur ekki fullt vald yfir bankastjórunum heldur sækja þeir vald sitt til bankamálaráðherra - og sitja í skjóli hans. „Ég tel að við íslendingar séum stutt á veg komnir í umhverfisvernd. Það ríkir enn of mikill steinaldarhugsun- arháttur í þessum málum, bæði hjá ai- menningi og stjórnendum í fyrirtækjum. Það vantar mikið á að hinn dæmigerði stjórnandi sjái markaðsmöguleika umhverfisverndar.” Guðjón Jónsson, deildarstjóri hjá Iðntæknistofnun, f 3. tbl. Frjáisrar verslunar 1995. STEINALDARHUGSUNAR- HÁTTUR skoðuð í hnotskurn kemur enn betur í ljós að allar aðgerðir bankaráðs Seðlabankans eiga sér eitt markmið. Að koma böndum á ferðalög Stein- gríms Hermannssonar, að ná stjórn á starfsmanni sem er stjórnlaus. HVAÐA REGLUR ERU ÞETTA? Þessar starfsreglur, sem Seðla- bankinn hefur nú samþykkt og tóku gildi 1. október, eru í sjálfu sér eins- dæmi í bankakerfinu. Engar slíkar reglur eru til í hinum ríkisbönkunum og hafa ekki verið til. Þessar reglur eru tilraun bankaráðsins til þess að stjórna þannig að ekki leiki vafi á. I reglunum segir orðrétt: „Ferðalög innanlands Kostnaður vegna ferðalaga innan- lands greiðist eftir reikningi, enda fylgi fullnægjandi ffumgögn, svo sem farmiðar, gistihúsareikningar og kvitt- anir frá hlutaðeigandi greiðasölum. Utanferðir l.Fargjöld á ferðalögum erlendis skulu greiðast eftir reikningi. Far með flugvélum miðast við betra farrými flugvéla. Far með skipum, lestum eða langferðabifreiðum miðast við 1. far- rými ef við á. 2. Bankastjórar fá greiddan kostn- að við gistingu (með morgunmat), risnukostnað og símtöl eftir framlögð- um reikningum og dagpeninga sem skulu vera 80% af dagpeningum bankastarfsmanna. Tvisvar á ári er bankastjóra heimilt að fá greitt far- gjald og gistingu fyrir maka. Ef sér- staklega stendur á er bankastjóra þó leyfilegt að fá oftar greitt fargjald og gistingu fyrir maka. 3. Af dagpeningum ber að greiða allan venjulegan ferðakostnað, annan en fargjöld og þann kostnað sem greinir í lið 2. 4. A þriggja mánaða fresti skal bankastjórn gera formanni bankaráðs grein fyrir utanlandsferðum banka- stjóra á vegum bankans á liðnum árs- fjórðungi, tilefni ferða og öðru sem máli kann að skipta. Ef um er að ræða sérstakar eða óvenjulegar ferðir skulu bankastjórar hafa samráð við formann bankaráðs áður en ákvörðun um ferð er tekin.“ TRAUSTIÐ ROFIÐ Af reglunum má ljóst vera að hafi ríkt fúllkomið traust milli bankaráðs Seðlabankans og bankastjóranna er það traust rofið með þessum reglum. Starfsmenn, sem áður höfðu í fram- kvæmd sjálfdæmi um ferðalög sín, inn- an vissra marka, verða nú að sæta eftir- liti. Slíkt lítur út eins og ráðið treysti ekki lengur starfsmönnum sínum. HVERT ER VALD BANKARÁÐS? Bankaráð Seðlabankans er skipað ALVEG HARRETT: UMHVERFISMAL ERU EFNAHAGSMAL! íslandsbanki hefur til dæmis sérstaka umhverfisstefnu - en ekki Seblabankinn. HVERS VEGNA UMHVERFISVERND? 1. Mengun og ágangur af mannavöldum eru aö stefna öllu lífríki jaröar í hættu. 2. Eyðing ósonlagsins er lífi hættuleg. 3. Eiturefni, sem úrgangur iönaöarframleiöslu, finnast víða í náttúrunni og þúsundir deyja vegna neyslu á ódrykkjarhæfu vatni eöa vegna vatnsskorts. 4. Sex milljónir hektara veröa aö eyðimörk á ári hverju (rúmlega hálft island) og eru helstu orsakirnar skógarhögg (30%) og ofbeit (35%). 5. Regnskógar jaröar, sem eru mikilvægir vegna framleiöslu súrefnis, eru aö eyðast. 6. Víöa er rányrkja; of mikil veiöi, akuryrkja eöa hráefnisöflun sem leiðir til mikils vanda. 7. Enn er endurnýting hráefnis og úrgangs aöeins lítiö brot af framleiðslu í heiminum. (Úr bæklingi íslandsbanka). 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.