Frjáls verslun - 01.09.1997, Page 57
fjárfestar hefðu ekki verið til-
búnir til að koma á móti hinum
erlendu fjárfestum hefði fjár-
mögnun sennilega ekki tekist
og engin göng verið grafin
þar sem erlendir aðilar vilja
gjarnan sjá áhuga innlendra
ijárfesta - og fá þá með. Er-
lendu tjárfestarnir sjá stöðu
sína tryggari með því að inn-
lendir aðilar eigi einnig sitt-
hvað í húfi með því að verk-
efnið gangi upp. Islenskir
stofnanafjárfestar, þar á
meðal lifeyrissjóðirnir, geta
því í mörgum tilvikum
gegnt lykilhlutverki við
uppbyggingu á ýmsum
sviðum hér á landi í fram-
tíðinni. Mér virðist sem
'eS° "8 ■^’S ££££?** VB Hvaigörðinn
hafa komið skemmti-
flestum þeirra sé þetta
ljóst.”
GÖNGIN GEFA GÓÐ FYRIRHEIT
Gunnar Helgi segir að tjármögnun
Hvalfjarðarganganna hafi verið
skemmtilegt verkefni en engu að síð-
ur fremur erfitt - enda um brautryðj-
endastarf að ræða. Það hafi verið
ánægjulegt og fróðlegt að vinna með
hinum alþjóðlegu tjármálastofnunum
að gerð flókinna lánasamninga. Sjálft
verkið hafi einnig verið sérlega vel
undirbúið og fagmannlega að því stað-
ið á allan hátt - og verða verklok senni-
lega níu mánuðum á undan áætlun.
„Hvalfjarðargöngin gefa mikil fyrir-
heit, bæði framkvæmda- og fiármögn-
unarlega, um að auðveldara verði að
ráðast í stór og mikil framfaraverkefni
síðar meir. Þarna voru fyrst og fremst
einkaaðilar að störfum með veru-
lega mikið undir. Það er ánægjulegt
að sjá hvað verkið hefur gengið vel og
hve verktakinn uppsker ríkulega með
því að vera á undan áætlun. Öguð
vinnubrögð á öllum sviðum hafa ein-
kennt þetta verk. Það var afar gaman
að fá að taka þátt í því.”
700 MILUÓNA KRÓNA ÚTBOÐ VEGNA
ÁLVERSINS
Landsbréf eru núna með í vinnslu
útboð vegna byggingu álvers Norður-
áls á Grundartanga og eru að kynna
það á meðal fiárfesta. Skuldabréfaút-
boðið nemur að lágmarki 700 milljón-
um króna. „Öfugt við fiármögnun
ganganna er um miklu meira eigið fé
að ræða við byggingu álversins. Þetta
ALFJORDUR
fjármögnun jardganganna - en núna eru það álverið
Grundartanga.
LANDSBREF OG
HVALFJÖRÐUR
Þátttaka í 4,3 milljarða
króna fjármögnun
jarðganga undir
Hvaifjörð.
Um 700 milljóna króna
skuldabréfaútboð
vegna álvers Norðuráls.
Sala hlutabréfa ríkisins
í íslenska járnblendifé-
laginu á Grundartanga
að andvirði um 800
milljónir króna að nafn-
verði.
57