Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 64

Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 64
Bg er dæmigerður sunnudagsmálari. Eg eyði ekki mikl- um tíma í þetta tómstundagaman mitt en geri miklar kröfur til sjálfs mín. Þess vegna hef ég ekki afkastað miklu í þessu efni,“ segir Bragi Hannesson, forstjóri Iðn- lánasjóðs sem hefur í bráðum 30 ár málað í frí- stundum sínum. „Eg get verið fljótur að mála eina mynd en það getur svo liðið langur tími þangað til ég lýk henni endanlega og sleppi af henni hendinni. Það eru smáatriði sem skipta miklu máli.“ Bragi hefur fengist við málaralist allt frá árinu 1969 þó að hann hafi ekki fengið neina hefðbundna menntun á því sviði. „Eg var lélegur í leikfimi og teikningu í gamla daga í skólan- um. Eg leysti málið að hálfu með því að fá vottorð í leikfimi en það var ekki hægt í sambandi við teikninguna." Bragi er lögfræðingur að mennt og hefur áratugum saman starfað sem forstjóri í lánastofnunum, fyrst hjá Iðnaðarbankanum og síðan hjá Iðnlánasjóði. „Þetta getur verið mjög krefjandi starf og erfitt, sérstaklega hér áður þegar ásókn í lánsfé var mikil og það þurfti að neita mörgum um lán. Að mála er sérstakur heimur og maður hugsar ekki um neitt annað á meðan. Þetta tvennt, starfið og listsköpunin, hafa alltaf verið tveir óskyldir heimar sem ekki koma hvor öðrum við. í vinnunni hugsa ég ekki um listina og ekki um vinnuna við listina." Málaralist er ekki eina listgreinin sem Bragi dáir því hann hlustar mikið á sígilda tónlist, einnig meðan hann er að mála. Hann segist sækja sér innblástur á ferðalögum um íslenska nátt- úru á sumrin, með heimsóknum á söfn og einnig á hann stórt safii listaverkabóka. „Þegar ég ferðast um Iandið, hvort sem er til að veiða eða gera eitthvað annað mér til skemmtunar, þá hef ég alltaf auga með landslaginu og leita að formum og myndum. Myndlist er litir og form og hvorugt er nokkurs virði án hins. Liturinn lifnar við í samfélagi við aðra liti.“ Bragi málar nokkuð óhlutbundnar myndir, eða abstrakt, en ís- lensktlandslag er einnig mjög rikur þáttur í myndum hans. Bragi segist vera íhaldssamur listamaður í leit að formum og einfald- leika. „íslenskt landslag er einstætt hvað varðar liti og form og það er, að mínu mati, með ólíkindum hve marga mjög góða málara ís- land hefur alið.“ Hann segist halda meira upp á fortíðina en nútímann í listum. Þegar rætt er um uppá- haldsmálara nefiiir hann Asgrím Jónsson sem sinn áhrifavald og það hafi verið myndir Ás- gríms sem urðu honum innblástur til þess að hefj- ast handa. Eflaust mætti nefna Louisu Matthías- dóttur og Ragnheiði Jónsdóttur Ream sem áhrifavalda en báðar eru þær í miklu dálæti hjá Braga. Hann segist ekki safna myndum sjálfur. „Það er ef til vill með það eins og mína eigin listsköpun. Eg á fáar myndir en vil að þær séu góðar. Meðal þeirra, sem ég á myndir eftir, eru Hringur Jóhannesson, Louisa Matthíasdóttir, Gunnlaugur Scheving, Ásgrimur Jónsson, Þor- valdur Skúlason og Ragnheiður Ream.“ Hringur heitinn Jóhannesson skipar sérstakan sess í huga Braga. Hringur lést síðastliðið sumar fyrir aldur fram. „Þegar ég segist vera ómenntaður í myndlist er það rétt að því leyti að ég hef ekki setið á skólabekk en allt frá 1970 var Hringur minn kennari og leiðbeinandi og mikill vinur auk þess að vera mikilhæfur listamaður. Kennslan fór lengst af þannig fram að hann kom í heimsókn til mín einu sinni til tvisvar eða oftar á hveijum vetri og gagnrýndi það sem ég var að gera. Þegar ég tók þátt í sýningum með öðr- um eða hélt eigin sýningar þá aðstoðaði hann mig við að velja og hengja upp myndir. Þannig má segja að ég hafi allan minn feril verið undir handleiðslu hans og var þar mjög heppinn. Eg vissi ekkert um veikindi hans en það var sérkennilegt að þegar ég var á leið norður i land síðastliðið sumar í veiði þá datt mér í hug að koma við í Haga og heimsækja Hring þar sem hann dvaldi á sumrin. Þangað hafði ég ekki komið áður og hringdi tvis- var á leiðinni en enginn svaraði svo ég lét kyrrt liggja en þennan sama dag dó Hringur. Ég sakna hans mikið.“ Bragi hefur þrisvar sinnum haldið einkasýningar á verkum sínum í Gallerí Borg og auk þess tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum frá árinu 1975 til þessa dags. Hann er fæddur árið 1932 og segist munu láta af störfum um næstu áramóL Iðnlánasjóður verður um líkt leyti hluti af hinum nýja Fjárfestingabanka at- vinnulífsins. En munu þessi umskipti þýða að Bragi fari að mála meira en áður? „Ég er ekki svo viss um það. Ég hef mörg fleiri áhugamál sem ég mun væntanlega hafa meiri tíma til að sinna en áður. Það að mála verður eflaust áfram eitt mitt helsta áhugamál en óvist að það fái meiri tíma en hingað til. Ég hætti hins vegar aldrei að mála.“ S5 Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlánasjóðs, hefur í bráðum 30 ár málað ífrístundum sínum. „Þetta tvennt, starfið og listsköpunin eru tveir óskyldir heimar. I vinnunni hugsa ég ekki um listina og ekki um vinnuna við listina. ” FV-mynd: Kristín Bogadóttir. Við trönurnar á runnudöpr 64 Tómstundir stjórnandans. Viðtal: Páll Asgeir Ásgeirsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.