Frjáls verslun - 01.09.1997, Síða 74
Elísabet Sveinsdóttir, starfsmannastjóri Vífilfells. Elísabet lærði markaðsfræði í
Bandaríkjunum en síðar bjó hún í fjögur ár í Þýskalandi. Hún þekkir hvern einasta
starfsmann Vífilfells með nafni. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
unin að fylgjast með lang-
tímaáhrifum þessara að-
gerða á þætti eins og veik-
indaforföll til að meta hverju
það skilar fyrir fyrirtækið.
En það er ekki bara líkam-
inn sem er ræktaður því Víf-
ilfell býður þeim starfs-
mönnum sem vilja á tölvu-
námskeið af ýmsu tagi og
nýlokið er stuttu námskeiði
um Ijármál sem góð þátttaka
var í.
Elísabet varð stúdent frá
Kvennaskólanum í Reykja-
vík 1983 og lærði síðan
markaðsfræði og fleira við
Rockford College í Banda-
ríkjunum. Hún starfaði síðan
í Iðnaðarbankanum en það-
an lá leiðin til Þýskalands
ELÍSABET SVEINSDÓTTIR, VÍFILFELLI
ið hjá Vífilfelli viljum
reka mannvæna
starfsmannastefnu.
Við viljum að starfsfólki okk-
ar liði vel og gerum okkur
grein fyrir að fjölmargir
þættir aðrir en laun geta haft
áhrif á það,“ sagði Elísabet
Sveinsdóttir, starfsmanna-
stjóri Vífilfells.
Elisabet hefur gegnt
þessu starfi í rúmt ár en áður
hafði ekki verið starfandi
sérstakur starfsmannastjóri í
yfir 2 ár. Það var því spenn-
andi hlutverk sem hún fékk í
hendurnar, þ.e. að móta
starfið upp á nýtt og koma
því í það horf sem samræm-
ist stefnu fyrírtækisins. Hjá
Vífilfelli vinna að jafnaði um
150 manns í fjölmörgum
deildum svo það er í mörg
horn að líta.
„Einn þátturinn er að taka
á móti öllum umsóknum
sem berast, fara í gegnum
þær og leggja gróft mat á
umsækjendur. Hingað koma
um 20 umsóknir á viku án
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
74
þess að sérstaklega sé verið
að auglýsa eftir starfsfólki og
þær eru auðvitað miklu fleiri
þegar við auglýsum. Hér
vinnur iðnverkafólk, skrif-
stofufólk, sölumenn, alls
konar tæknimenn svo við
erum alltaf á höttunum eftir
fólki með víðtæka menntun,
þekkingu og reynslu."
í Vífilfelli er reynt að meta
frammistöðu hvers og eins
og þjálfa hann og hvetja til
dáða. Dæmi eru um fólk
sem hefur hafið sinn feril á
verksmiðjugólfinu og unnið
sig upp í t.d. stöðu innkaupa-
stjóra.
Elísabet segist líta svo á
að hennar starf sé þjónustu-
starf, gagnvart deildarstjór-
um að útvega rétta fólkið og
gagnvart starfsfólki almennt
að sjá til þess að það sé
ánægt í starfi. Hún segist
reyna að vera nálægt fólkinu
og forðast að loka sig inni á
skrifstofu.
„Eg tel að ég þekki alla
starfsmenn Vífilfells með
nafni og það sé gagn-
kvæmt.“
Elísabet var formaður
starfsmannafélags Vífilfells í
tvö ár áður en hún tók við
núverandi starfi og þekkir
því ýmsar hliðar starfs-
mannamála.
Það er Ijölmargt gert til
þess að gera Vífilfell að betri
vinnustað. Nýlega er afstað-
ið sérstakt heilsuátak sem
stóð í heila viku og á hveij-
um degi voru kynningar á
heilsufæði, sérstakt fæði var
í mötuneytinu, farið í sund
síðdegis og gönguferðir og
þannig reynt að kynna heil-
brigt liferni og aðgerðir til
bættrar heilsu með sem
flestum ráðum.
„Við teljum að með því að
styrkja starfsmenn til heil-
brigðara lífs stuðlum við að
betri líðan og færri veikinda-
dögum. Við greiðum niður
fyrir starfsfólkið árskort í lík-
amsræktarstöðvar og sund-
laugar.“
Að sögn Elísabetar er ætl-
þar sem Elísabet var búsett í
rúmlega ijögur ár. Þar stund-
aði hún nám og ýmis störf
en kom heim til Islands fyrir
um fjórum árum og fór að
starfa hjá Vífilfelli.
Elísabet situr ekki auðum
höndum utan vinnutímans
því hún leggur stund á hag-
nýta fjölmiðlun við Háskóla
Islands. Hún fær nokkra æf-
ingu í starfinu þar sem hún
sér um útgáfu innanhúss-
fréttabréfs Vífilfells, sem
heitir Fólk í fókus og kemur
út mánaðarlega.
Elísabet er gift Aðalsteini
Jónssyni, íþróttakennara og
handboltaþjálfara. Þau eiga
tvo syni og Elísabet segist
reyna að nýta tómstundir
sínar til samvista við fjöl-
skylduna.
„Eg fer í sund og leikfimi
og held mér þannig í þjálfun.
Synir okkar eru mikið í
íþróttumog ef svo ber undir
set ég upp markmanns-
hanskana og spila fótbolta
með strákunum." 53