Morgunblaðið - 04.01.2001, Síða 10
ÁTTA ára drengur, Davíð Árni
Guðmundsson, sem slasaðist á Pat-
reksfirði þegar hann fékk púður úr
flugeld í andlitið á nýársnótt, var út-
skrifaður af Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi við Hringbraut í gær.
Meiðsli hans reyndust mun minni
en talið var í fyrstu og hann mun
ekki bera varanlega áverka eftir
óhappið. Hann hlaut þó sár á sjón-
himnu vinstra auga. Hár hans
sviðnaði og hann hlaut nokkur smá-
sár á andliti.
Sjúkraflutningamönnum á Pat-
reksfirði gekk erfiðlega að útvega
sjúkraflug og brugðu loks á það ráð
að óska eftir aðstoð Landhelgis-
gæslunnar.
Læknir óttaðist að önd-
unarvegir myndu lokast
Neyðarlínan fékk tilkynningu um
slysið um kl. 2.40 á nýársnótt. Sam-
kvæmt upplýsingum frá neyðarlín-
unni var þá kallaður út sjúkrabíll og
læknir á Patreksfirði. Starfsmenn
neyðarlínunnar höfðu ekki frekari
afskipti af málinu fyrr en Landhelg-
isgæslan tilkynnir að þyrla sé á leið
til Reykjavíkur með slasað barn.
Þegar komið var með drenginn á
Heilbrigðisstofnunina á Patreksfirði
virtist hann talsvert slasaður. Hann
hafði fengið logandi púður í andlitið
og brennst við það í andliti og í
munnholi og var mikið kvalinn. Guð-
rún Torfadóttir læknir á Heilbrigð-
isstofnun Patreksfjarðar taldi hættu
á að öndunarvegir lokuðust vegna
bólgu. Því var ákveðið að óska eftir
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Ásgeir Einarsson sjúkraflutn-
ingamaður hringdi þá í Mýflug og
óskaði eftir sjúkraflugi en sam-
kvæmt samningi við heilbrigðis-
ráðuneytið átti félagið að annast
sjúkraflutninga frá Vestfjörðum og
var vél frá félaginu staðsett á Ísa-
firði. Honum var þá tjáð að félagið
gæti ekki sinnt sjúkrafluginu í
þessu tilfelli. Ásgeir hringdi þá í
önnur flugfélög en tókst ekki að
tryggja sjúkraflug eftir þeim leið-
um. Jónas Sigurðsson, aðalvarð-
stjóri lögreglunnar á Patreksfirði,
ákvað þá að hringja í Landhelg-
isgæsluna. Klukkustund var þá liðin
frá því slysið varð. TF-SIF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, lenti á Pat-
reksfirði um kl. 5.30 en talsverður
mótvindur var á leiðinni. Þyrlan
lenti á Reykjavíkurflugvelli með
drenginn og móður hans innanborðs
kl. 6.48 og þaðan var drengnum ekið
á Landspítalann við Hringbraut.
Þá voru rúmlega fjórar klukku-
stundir liðnar frá því slysið varð.
Hefði verið flogið með drenginn í
sjúkraflugvél staðsettri á Ísafirði,
má búast við að hann hefði verið
kominn til Reykjavíkur á helmingi
skemmri tíma.
Biðin sem heil eilífð
Guðmundur Ólafur Guðmunds-
son, faðir Davíðs Árna, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að biðin
eftir sjúkraflugi hefði verið sem heil
eilífð. „Þetta var virkilega langur
tími. Maður hélt þetta myndi engan
enda taka,“ segir Guðmundur.
Drengurinn hafi verið mjög kvalinn
auk þess sem svo virtist sem önd-
unarvegir gætu lokast.
Slysið varð með þeim hætti að
drengurinn hafði fundið stóran
ósprunginn flugeld utandyra. Guð-
mundur segir Davíð hafa laumast út
án þess að foreldrar hans eða aðrir
yrðu þess varir. Hann hefur sagt að
hann hafi sett stjörnuljós að flugeld-
inum með þeim afleiðingum að hann
sprakk og hann fékk logandi púður í
andlitið. Guðmundur segir að það
hafi komið sér illilega á óvart að
ekki skyldi takast að útvega sjúkra-
flug þegar beðið var um það. Óviss-
an um hvort það myndi takast hafi
verið ákaflega erfið.
Leifur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Mýflugs, sagði að
ljóst væri að félagið hefði ekki stað-
ið við samninginn við heilbrigðis-
ráðuneytið. Samningurinn var fram-
lengdur milli jóla og nýárs og
Leifur segir félagið ekki hafa gert
nægilegar ráðstafanir til að tryggja
að það gæti sinnt sjúkraflugi. Þá
hafi flugrekstrarleyfi Mýflugs runn-
ið út um áramótin en fyrir mistök
sótti félagið ekki um endurnýjun
þess. Leifur segist harma þetta at-
vik en tekur jafnframt fram að slíkt
muni ekki endurtaka sig. Fyrir öllu
sé að drengnum heilsist vel. Leifur
býst við að félagið fái flugrekstr-
arleyfi innan tíðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn rann flugrekstrar-
leyfi Mýflugs út á miðnætti 31. des-
ember en ekki hafði borist umsókn
um endurnýjun. Þegar um neyðar-
tilfelli er að ræða hefði félagið þó
mátt fljúga sjúkraflug.
Heilbrigðisráðuneytið hefur
óskað skriflegra skýringa
Samkvæmt upplýsingum frá heil-
brigðisráðuneytingu var samningur
ráðuneytisins við Mýflug um
sjúkraflug frá Vestfjörðum fram-
lengdur um áramótin þar til nýr
samningur um sjúkraflug á Vest-
fjörðum tekur gildi á grundvelli út-
boðs. Unnið er að gerð nýs samn-
ings við Leiguflug Ísleifs Ottesen
ehf. um sjúkraflug til Vestfjarða,
Vestur- og Suðurlands.
Dagný Brynjólfsdóttir, deildar-
stjóri fjármálaskrifstofu heilbrigðis-
ráðuneytisins, segir að ráðuneytinu
hafi ekki verið kunnugt um að flug-
rekstrarleyfi Mýflugs myndi falla úr
gildi 31. desember og ráðuneytið
taldi sig því hafa tryggt sjúkraflug
frá Vestfjörðum. Hún segir ráðu-
neytið hafa óskað skriflegra skýr-
inga á atburðarásinni á nýársnótt.
Þá segir hún ljóst að tryggi Mýflug
ekki sjúkraflugið með öruggum
hætti verði samningum rift og ann-
ara leiða leitað til að tryggja sjúkra-
flug.
Unnið er að samningum við Flug-
félag Vestmannaeyja um sjúkraflug
frá eyjunum og Flugfélag Íslands
hefur annast sjúkraflug frá Norður-
og Austurlandi og Dagný býst við
því að gengið verði til samninga við
félögin alveg á næstunni. Þangað til
annast flugfélögin sjúkraflugið sem
fyrr.
Miklar tafir urðu við að útvega sjúkraflug til Patreksfjarðar á nýársnótt
Mýflug stóð
ekki við
samning við
ráðuneytið
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lokað í dag
Útsalan hefst
á morgun
KRINGLUNNI
sand@sand.is
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt rúmlega tvítugan
karlmann í 10 mánaða fangelsi fyrir
þjófnað, brot gegn ávana- og fíkni-
efnalöggjöf, umferðarlögum og nytj-
astuld og til greiðslu alls sakarkostn-
aðar. Brotin framdi maðurinn í
desember 1999 og í mars á síðasta ári.
Með brotum sínum rauf maðurinn
skilorð dóma frá árunum 1998 og 1999
og kváðu á um samtals 7 mánaða skil-
orðsrefsingu.
Fyrir dómi viðurkenndi maðurinn
að hafa brotist inn í veitinga- og
skemmtistaðinn Setrið í Sunnuhlíð á
Akureyri í desember fyrir rúmu ári
og stolið þaðan tæplega 140 þúsund
krónum en hann var þá starfsmaður
þar. Maðurinn viðurkenndi einnig að
hafa notað hluta af því fjámagni sem
hann komst yfir í innbrotinu til að
fjármagna kaup á 10 grömmum af
kókaíni og að hafa afhent pilti 1
gramm af efninu.
Maðurinn, sem hafði verið sviptur
ökuleyfi, viðurkenndi að hafa um nótt
í mars í fyrra tekið bifreið í heimild-
arleysi í Glæsibæjarhreppi og ekið
henni suður í Kópavog. Jafnframt að
hafa fyrr um nóttina ekið annarri bif-
reið frá Akureyri í Glæsibæjarhrepp.
Þá kemur fram samkvæmt gögnum
málsins að maðurinn hafði umrædda
nótt brotist út úr fangelsinu á Akur-
eyri, þar sem hann var að afplána
vararefsingu vegna ógreiddra sekta.
Dæmdur í
10 mánaða
fangelsi
DAVÍÐ Árni Guðmundsson, 8 ára piltur frá Patreks-
firði, var útskrifaður af Barnaspítala Hringsins í gær
og urðu fagnaðarfundir er frændfólk hans í Reykjavík
tók á móti honum. Hér er Davíð Árni, til hægri, ásamt
frænda sínum, Degi Benedikt Reynissyni, 7 ára, á heim-
ili hins síðarnefnda í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Kristinn
Útskrifaður í gær