Morgunblaðið - 04.01.2001, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN, ÞJÁLFUN, AGI
ÞÚSUND ÁRA GRUNNUR
Á VIT NÝRRAR ALDAR
Davíð Oddsson forsætisráð-herra minntist aldamótannaí áramótaávarpi sínu til þjóð-
arinnar. Hann leit yfir líf hennar á
20. öldinni og sagði þá. m.a.:
„Tvö atriði standa upp úr, þegar
horft er um öxl til aldarinnar, og
getur þó hvorugt flokkast undir
frétt og ekki heldur atburð. Hið
fyrra er sú staðreynd, að allt þar til
tuttugasta öldin gekk í garð hafði
íbúafjöldi í landinu aldrei orðið
meiri en hann var orðinn þá er eig-
inlegu landnámi lauk eða því sem
næst 70 þúsund manns. Þar virtust
endamörk þess sem landið bar... En
síðan kom tuttugasta öldin og Ís-
lendingum fjölgaði úr 70 þúsund
manns í 283 þúsund og býr þó
drjúgur hluti landans nú erlendis
um lengri eða skemmri tíma og er
ekki talinn með að sinni.
Hitt atriðið er, að í byrjun ald-
arinnar voru Íslendingar í hópi fá-
tækustu þjóða, svo sem verið hafði
flestar aldir þar á undan, en nú við
aldarlok eru þeir óumdeilanlega
meðal þeirra, sem mest bera úr být-
um í veraldlegum efnum.“
Síðar í ræðu sinni sagði forsætis-
ráðherra:
„Og 21. öldin er auðvitað aufúsu-
gestur. Móti henni tekur þjóðin sem
þroskað, velmenntað og kappsamt
ungviði ráðið í því að nýta þau tæki-
færi sem gefast og skapa þau tæki-
færi sem vantar. Ekki dettur okkur
í hug að halda að búið sé að fjar-
lægja alla farartálma af farsældar-
vegi þessarar þjóðar. Síður en svo.
Náttúran hefur engan eilífðarsamn-
ing gert við landsmenn um óupp-
segjanlegan vinnufrið. Þar mun auð-
vitað á ýmsu ganga og flest
ófyrirséð. En skilyrðin til að bregð-
ast rétt og skynsamlega við áföllum
eru öll önnur og betri en áður var.
Þekking okkar mannanna á eðli
hlutanna er og verður brotakennd,
en viljanum og getunni til að afla
nýrrar þekkingar og bregðast hratt
við vandamálum hefur fleygt fram.“
Undir þessi orð Davíðs Oddssonar
munu flestir geta tekið. Umskiptin í
lífi þjóðarinnar á síðustu 100 árum
eru ótrúleg. Um leið og við fögnum
því skulum við hafa hugfast að
hyggilegt er að ganga hægt um
gleðinnar dyr. Reynslan hefur kennt
okkur, að skjótt geta skipast veður í
lofti. Það á við í lífi þjóðar ekki síð-
ur en einstaklinga.
Við þurfum að vakna til vitundar umþá fjölþættu ábyrgð, sem við ber-
um öll, bæði sem einstaklingar og
þjóð, gagnvart óbornum kynslóðum og
umheimi öllum; um ábyrgðina gagn-
vart uppeldi æskunnar, menntun
hennar, þjálfun og aga.“ Svo mæltist
forseta Íslands í nýársávarpi til þjóð-
arinnar á nýársdag. Ólafur Ragnar
Grímsson lýsti áhyggjum sínum m.a.
af uppeldishlutverki kynslóðanna, sem
kannski hefðu varpað um of ábyrgð
sinni á herðar kennara þjóðfélagsins.
„Þátttaka foreldra í skólastarfi hefur
verið minni hér en í mörgum löndum,
skorturinn á samvinnu og skilningi á
margan hátt bitnað á menntun og
þroska.
Það er alvarleg brotalöm, þegar
skólastarf lamast vegna ágreinings um
launakjör, skipulag náms eða vinnu-
tíma; og vissulega eru deilur af þess-
um toga mikill vandi, raska námi unga
fólksins og tefla í tvísýnu framtíð þess
og lífssýn. Brýnt er að varanlegur frið-
ur verði um skólastarfið, svo að kenn-
arar, foreldrar og nemendur geti ein-
beitt sér að því sem öllu skiptir; að búa
æsku Íslands svo ríkulega að þekkingu
og hæfni að þjóðin haldi sjó og miði
áleiðis í umhleypingunum sem ein-
kenna munu öldina sem nú er hafin.“
Forseti Íslands minnti á að fyrir um
það bil 10 árum hefði Íslendingum tek-
ist að ná þjóðarsátt um árangur í glím-
unni við verðbólguna, sem lengi hafði
„lamað framfarir og farsæld alla og þá
urðu margir að ganga til samstarfs um
leiðir sem áður voru taldar ófæra ein.
Á svipaðan hátt þarf þjóðin nú að slá
skjaldborg um skólastarfið og þróa
friðargjörð, sem tryggir nemendum
öryggi, samfellu við námið sjálft og
gerir kennurum kleift að helga sig
óskipta merku starfi, sem þeir gegna í
þjóðarþágu“.
Það getur verið álitamál, hvort þessi
samlíking forsetans á verðbólgubar-
áttu og deilum um kjaramál kennara á
við. Hitt fer ekki á milli mála, að það
skiptir miklu máli að tryggja vinnufrið
í skólum. Morgunblaðið hefur áður
lýst þeirri skoðun, sem hér skal enn
ítrekuð, að miðstýring kjarasamninga
eins og í tilviki framhaldsskólakenn-
ara sé óskynsamleg. Lausn kjaradeil-
unnar í Verzlunarskóla Íslands er enn
ein sönnun þess.
Biskup Íslands flutti nýárspredik-un í Dómkirkjunni á nýársdag.
Karl Sigurbjörnsson minntist tíma-
mótanna á síðastliðnu ári er minnst
var 1000 ára afmælis kristninnar á Ís-
landi og hann sagði að Kristnihátíðin
hefði vakið ýmar nærgöngular spurn-
ingar um stöðu kirkjunnar í íslensku
þjóðlífi og framtíð hennar.
Karl Sigurbjörnsson sagði: „Við
höfum byggt á grundvelli kristins sið-
ar í þúsund ár. Það sem mestu varðar
um framtíð íslensku þjóðarinnar er
siðgæðisþroski fólksins, hvort hið
kristna siðgæði nær að móta hugsun,
vilja og verk einstaklinga og sam-
félags. Menning er ekki aðeins listir
og ljóð, menning er siðgæði, virðing
fyrir dýpri og æðri gildum, og menn-
ing er þjóðernisleg sjálfsmynd. Þjóð
sem gleymir sögu sinni og uppruna og
hefðum verður aldrei menningarþjóð
til lengdar. Það er staðreynd samtím-
ans að í iðuköstum hnattvæðingar og
fjölþjóðamenningar eiga smáar þjóð-
ir í vök að verjast, fámenn málsam-
félög standa afar höllum fæti. Þar á
meðal eru Íslendingar. Við verðum að
halda vöku okkar að tunga okkar og
menningararfur glatist ekki. Við
þurfum að taka höndum saman um
varðveislu og þroska hins dýrmæt-
asta sem þjóðararfur okkar geymir
jafnframt því sem við tileinkum okk-
ur hið besta sem alþjóðlegt samfélag
hefur upp á að bjóða.“
Þessi orð biskupsins eru orð í tíma
töluð.
LOÐNUVEIÐAR og verð-mæti útfluttra loðnuaf-urða hafa dregist samansíðustu tvö árin, eftir mik-
inn uppgang í veiðum og hátt verð
loðnuafurða á árunum 1996 til 1998.
Óhætt er að segja að menn renni
nokkuð blint í sjóinn hvað varðar
loðnuveiðar og sölu á loðnuafurðum
á komandi vertíð. Nýjar reglur Evr-
ópusambandsins um innflutning á
fiskimjöli og lýsi setja sölu á loðnu-
mjöli í mikla óvissu og segir forstjóri
SR-mjöls að horfur séu frekar dapr-
ar í útflutningi og sölu á lýsi og fiski-
mjöli á þessari stundu. Þá gerir mik-
ið framboð á frystri loðnu erfitt um
vik að ná hagstæðu verði á frystri
loðnu á Japansmarkaði.
Fiskifræðingum Hafrannsókna-
stofnunar hefur ekki ennþá tekist að
gera mælingar á stofnstærð loðn-
unnar, sökum þess að lítið fannst af
fullorðinni loðnu í mælingaleiðangri
fyrrihluta vetrar. Slíkt hið sama hef-
ur reyndar átt sér stað undanfarin
tvö ár og því ekki loku fyrir það
skotið að loðnan láti sjá sig á mið-
unum á þessari vertíð, en í janúar í
fyrra var loðnuveiðin með besta
móti.
Loðnuveiðar hafa verið nokkuð
stöðugar undanfarin tíu ár, ef undan
er skilið árið 1991 þegar aðeins
veiddust tæplega 260 þúsund tonn
af loðnu. Árið 1992 veiddust hins
vegar um 800 þúsund tonn og ríflega
940 þúsund tonn árið 1993. Næstu
tvö árin var veiðin rúmlega 800 þús-
und tonn, en árið 1996 fór loðnuafl-
inn upp í 1.179 þúsund tonn og 1.139
þúsund tonn árið 1997. Áætluð veiði
ársins í fyrra er um 950 þúsund
tonn, en tvö árin þar á undan veidd-
ust rúmlega 800 þúsund tonn.
Verðmæti útfluttra loðnuafurða
hefur hins vegar sveiflast mun
meira. Sökum lélegra veiða nam
verðmæti útflutnings árið 1991 að-
eins um 2,3 milljörðum króna, en
mikil uppsveifla varð á árunum 1996
til 1998, þegar verðmæti útfluttra
loðnuafurða nam frá rúmlega 15,5
milljörðum upp í tæpa 16 milljarða
árið 1998. Síðustu tvö árin hefur
verðmæti aflans aftur dregist sam-
an og er áætlað verðmæti útfluttra
loðnuafurða 9,8 milljarðar króna á
síðasta ári.
Jón Reynir Magnússon, forstjóri
SR-mjöls hf., segir að ástand og
horfur varðandi útflutning og sölu
lýsis og fiskimjöls séu frekar dap-
urleg á þessari stundu, enda ríki þar
veruleg og talsvert meiri óvissa en
oft áður.
Efnahagsbandalagið lauk nýverið
Veiðar og útflutningur á loðnu hafa dregist sam
Daprar horfu
flutningi fiski
Mikil og góð loðnuveiði var á síðustu vetrarvertíð, m.a. hjá Bjarna
!
" !
#
$
!
Loðnuvertíð fór mjög vel af stað í upp
síðasta árs og náðist þá besti árangu
loðnuveiðum í heilan áratug. Sveiflu
loðnuveiðum og verði loðnuafurða ha
gegnum tíðina verið miklar og nú vir
sem blikur séu á lofti. Eiríkur P. Jöru
son kynnti sér málið og komst að því
nýjar reglur ESB varðandi innflutnin
lýsi og mjöli setja útflutning í mikla óv
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.