Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Femínismi við aldamót Úreltur boðskap- ur eða brýn sam- félagsgagnrýni ÍHÁDEGINU í dagverða á vegum Rann-sóknastofu í kvenna- fræðum flutt tvö erindi í stofu 101 í Odda. Erindin flytja Kristbjörg Kristjáns- dóttir og Hugrún R. Hjaltadóttir. Hugrún var spurð að því hvað fjalla ætti um í erindum þeirra.„Okk- ur langar til að brydda upp á umræðum um hvað við eigum sameiginlegt, við sem þýddum sænsku bók- ina Píkutorfuna og Þor- gerður Einarsdóttir sem gaf út bókina Bryddingar.“ – Um hvað fjalla þessar bækur? „Þær eru báðar greina- söfn. Bryddingar eru grein- ar eftir Þorgerði og fyrir- lestrar sem ekki hafa birst á prenti áður en Píkutorfan er samansafn af greinum eftir ungar konur í Svíþjóð og á Íslandi.“ – Hvaða efni er verið að taka fyrir í þessum greinum? „Greinarnar í Píkutorfunni eru mjög ólíkar en eiga þó það sameig- inlegt að fjalla allar um þá reynslu að vera unglingsstúlka sem þrosk- ast í nútímasamfélagi og verður að konu. Þetta er mikil sjálfs- og sam- félagsgagnrýni. Það sem gerir þessar greinar merkilegar er m.a. hvað þær eru persónulegar. Í Bryddingum Þorgerðar er meira fræðilegt efni. Þar má nefna um- fjöllun um doktorsritgerð hennar og fleira í þeim dúr. Þó er þessi umfjöllun ekki á neinni fræði- tungu, heldur mjög aðgengileg hinum almenna lesanda. Það sem þessar bækur eiga sameiginlegt er samfélagsgagnrýni sem er stór hluti af femínisma nútímans.“ – Hefur femínismi nútímans tekið miklum breytingum frá t.d. kvennabaráttu ’68 kynslóðarinnar? „Auðvitað þróast samfélagið og breytist og með því breytast öll samfélagsgagnrýni. Þótt ýmislegt breytist til batnaðar gerist jafn- framt eitt og annað sem við ungar konur erum ekki sáttar við og vilj- um fá til gagnrýninnar umfjöllun- ar.“ – Svo sem hvað? „Kynslóðirnar á undan okkar þurftu að berjast fyrir lagalegum réttindum til jafnrar menntunar kvenna og karla svo eitthvað sé nefnt. En við viljum meina að lögin í dag séu í anda jafnréttis en séu hins vegar ekki notuð sem skyldi. Þar má nefna launamun kynjanna sem enn er mjög áberandi þótt hann sé ólöglegur. Við viljum færa umræðuna meira út í samfélagið og að fólk sé sér meðvitandi um stöðu sína, bæði konur og karlar. Það er ein ástæðan til þess að við Kristbjörg fórum að þýða greina- safnið Píkutorfuna.“ – Er svipað ástand í Svíþjóð í þessum málum og hér á landi? „Ég vil meina að það sé svipað en auðvitað ekki eins. Það sem segir mér að þetta sé svipað eru við- brögðin sem ég sjálf sýndi þegar ég las bók- ina. Þessi viðbrögð eru „alveg rétt“-tilfinning – svona var þetta. Ég var hissa og loks mjög reið. Það er kannski hættulegt að segja að ég hafi orðið reið af því að femínistar eru alltaf mjög reiðir en ég ákvað að beina reiðinni í jákvæðan farveg og þýða bókina svo að fleiri stelpur fengju að upplifa þær tilfinningar sem hún hafði vakið með mér.“ – Hvað gerði þig svona reiða? „Ein grein fjallar um „druslu- stimpilinn“ sem stelpur fá margar á sig. Það var léttir að uppgötva að þessi stimpill voru viðbrögð sam- félagsins við því sem þær gerðu og leið til að halda þeim í skefjum en ekki það að þær væru í rauninni „druslur“. Þessi grein er að mínu mati einn stærsti boðskapurinn. Þá er í bókinni gert mikið af því að taka persónulega reynslu sem mjög erfitt er að segja frá og op- inbera hana. Til dæmis er fjallað um hvernig stúlku líður sem upp- götvar að hún er lesbísk en veit ekki einu sinni að til sé orð sem lýs- ir þeirri staðreynd. Bókin er ekki bara alvarleg umfjöllun heldur er hún líka bæði fyndin og kaldhæð- in.“ – Er femínisminn vaxandi hreyf- ing núna? „Við fáum mjög jákvæð við- brögð við þessari bók, bæði frá stelpum og strákum á öllum aldri. Við höfum fengið persónulegar tölvupóstsendingar þar sem okkur er þakkað fyrir að hafa komið fram með þetta efni. Þetta blæs lífi í femínismann. Ég er með leg í Bríeti, starfa með þeim og einnig Kristbjörg.“ – Hvað þýðir það að hafa leg í Bríeti? „Okkur finnst orðið meðlimur ekki skemmtilegt orð og þar sem við erum stelpur og erum með leg fannst okkur þetta tilvalinn útúr- snúningur.“ – Hvað eruð þið hjá Bríeti annars að gera núna? „Við getum orðið allt að tuttugu og fimm tals- ins en erum mismargar eftir því hvað við erum að gera. Flestar okkar eru enn í námi. Bókin Píkutorfan er helsta viðfangsefnið núna en félagar í Bríeti eru að vinna að ýmsum öðrum verkefnum, svo sem að safna efni í heimildarmynd og skrifa greinar í Spegilinn á Vísir.is. Einnig er stutt síðan við opnuðum heimasíðuna okkar sem er Briet.- is.“ Hugrún R. Hjaltadóttir  Hugrún R. Hjaltadóttir fædd- ist í Reykjavík 7. nóvember 1976. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskólanum við Ármúla 1997 og stundar nú nám við Há- skóla Íslands í mannfræði og kynjafræði. Hún hefur starfað sem þýðandi, m.a. þýddi hún sænsku bókina Píkutorfuna sem kom út nú fyrir jól. Einnig hefur Hugrún unnið á kaffihúsinu Mokka. Kærasti Hugrúnar er Guðjón Hauksson félags- fræðinemi. Samfélags- gagnrýni er stór hluti af femínisma nútímans Kom, sá og þraukaði. NÚ ÞEGAR rúmar tvær vikur eru liðnar frá því að daginn tók aftur að lengja mun skuggi ljósmyndarans styttast og Helgafell mun ekki skyggja á Heimaklett, helsta stolt Vestmannaaeyinga, þar sem hann stendur norðan við bæinn, 283 metrar á hæð og skýlir bænum og innsiglingunni fyrir napri norðan- áttinni. Morgunblaðið/Sigurgeir Helgafell skyggir á Heimaklett LÖGREGLUMENN í Reykjavík urðu varir við ökumann sem ók núm- erslausu bifhjóli um malargryfjur í Elliðaárdal síðdegis á þriðjudag. Þegar lögreglumennirnir hugðust ná tali af manninum reyndi hann að komast undan á hjólinu. Lögreglu- mennirnir gerðu sér þá lítið fyrir og hlupu bifhjólið uppi og stöðvuðu öku- manninn. Þá kom í ljós að ökumað- urinn var 15 ára og ekki með öku- réttindi á svo stórt bifhjól. Hlupu uppi bifhjól ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.