Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 65
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 65
EITT AF því sem kemur mér jafnan
úr jafnvægi er hræsni og svo sann-
arlega er nóg af henni. Gott dæmi
um yfirgengilega
hræsni er kristið
fólk, eða flest
þeirra a.m.k. Ég
vil reyndar taka
það fram að sjálf-
ur er ég ekki
kristinn heldur er
ég það sem
kristnir kalla
heiðingja en ég
kýs að kalla
trúarbragðalaus.
Gott dæmi því til sönnunar að
kristið fólk er í sumum tilvikum
hræsnarar er samkynhneigð. Í Bibl-
íunni stendur mjög skýrt að guð vill
meina að samkynhneigð sé lítt æski-
legt lífsmynstur. Um þetta verður
ekki deilt, þetta stendur í Biblíunni:
„Eigi skalt þú leggjast með karl-
manni sem kona væri. Það er við-
urstyggð“ (3M 18:22). Einnig er
samkynhneigð talin upp meðal
synda svo sem í 1. Kor 6:9-10. Og það
fer ekki beinlínis á milli mála að guð
er mjög harður á því að allt sem í
Biblíunni stendur séu hans orð og sé
það eina rétta: „Sannlega segi yður:
Þar til himinn og jörð líða undir lok,
mun ekki einn smástafur eða staf-
krókur falla úr lögmálinu, uns allt er
komið fram. Hver sem því brýtur
eitt af þessu minnstu boðum og
kennir öðrum það, mun kallast
minnstur í himnaríki“ (Mt 5:18-19).
En sama fólkið og segist telja guð
óskeikulan og almáttugan telur að
það viti betur: Guð sé ekkert á móti
samkynhneigð; kannski að guð hafi
ekki kynnt sér málið nægjanlega vel
eða að hann hafi jafnvel skipt um
skoðun – sem væri stórmerkilegt í
ljósi þess að hann vill meina að hon-
um skjátlist aldrei. En þrátt fyrir
þessi skýru tilmæli guðs um að fólk
láti sitt eigið kyn í friði og einblíni
svona meira á hitt kynið, þá virðist
jafnvel kirkjan ekki kaupa þetta og
ekki einu sinni biskupinn sjálfur,
Karl Sigurbjörnsson. Honum finnst
að kirkjan ætti að skoða möguleika á
því að blessa sambúð samkyn-
hneigðra. Þarna segir biskup að
hann viti betur en drottinn sjálfur og
fólk eigi frekar að treysta
mennskum biskupi heldur en guði.
Karl gerist þarna sekur um að beina
trúnni frá guði og til sín sjálfs og
stofnunarinnar sem kirkjan er, í von
um auknar vinsældir. Þetta myndu
sumir kalla skurðgoðadýrkun.
En fólk á ekki blanda vinsældum
saman við trú og guð. Fólk á ekki að
taka trúarbrögðum af léttúð; það á
ekki að endurskrifa það sem því þyk-
ir slæmt og horfa bara á það sem því
líkar. Annaðhvort er fólk kristið og
trúir á Biblíuna eða ekki: það er ekk-
ert hálfkák í þessu sambandi. Ef fólk
trúir því að guð sé til, þá trúir það því
að Biblían sé hans orð. Ef guð er al-
máttugur ætti það ekki að vefjast
fyrir honum að koma sínum boðskap
á framfæri, þótt hann geri það í
gegnum menn. Og þar sem guð hlýt-
ur að vera máttugri en nokkur
manneskja hlýtur hann að geta kom-
ið sínum boðskap ómenguðum til
skila, þrátt fyrir að breyskur maður
sé tengiliður. Því hlýtur allt sem í
Biblíunni stendur að vera beint frá
guði. Ef fólki finnst samkynhneigð
ekki slæm eða sé það jafnvel sam-
kynhneigt trúir það ekki á guð hinn-
ar kristnu Biblíu þar sem það er ekki
sammála honum og er því að afneita
honum. Þannig að ég mæli með því
að Karl Sigurbjörnsson, samkyn-
hneigðir og allir hinir sem trúa í raun
og veru ekki á guð sætti sig við það,
segi sig úr þjóðkirkjunni og skilji eft-
ir þá örfáu sem raunverulega trúa á
guð almáttugan, en þeir eru senni-
lega örfáir.
GÚSTAF ÓLAFSSON,
nemi í Tækniskóla Íslands.
Nokkur
orð um
hræsni
Frá Gústafi Ólafssyni:
Gústaf
Ólafsson
Teg. 58520
Stærðir 41-46
Litur: Svartur
Verð 5.900
Tilboð 3.990
Tilboð
Herrakuldaskór
Tilboðið gildir fimmtudag til laugardags
Aðrir herrakuldaskór
kr. 3.990.
ECCO kuldaskór
20% afsláttur.
Teg. 0201
Stærðir 41-46
Litur: Svartur
Verð 5.900
Tilboð 3.990
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 SÍMI 554 1754
Þjónusta í 35 ár
Kringlunni — sími 568 1822
Útsalan er
byrjuð
t l r
rj
Nýtt kortatímabil
BÆNDAFERÐIR
kynna
Spennandi vorferðir
Nánari upplýsingar hjá Bændaferðum
í Byggðarenda 2, símar 533 1335 og 553 7677
Vor 1
Vor 2
Vor 3
Flogið verður til Frankfurt 20. mars og
tilbaka 31. mars.
Gist verður eina nótt í Ulm, sjö nætur í Riva á Ítalíu og þrjár
nætur í Oberkirch í Svartaskógi. Farnar verða skoðunarferð-
ir flesta daga m.a. til Feneyja - Verona og um dali
Dolómita fjalla. Frá Oberkirh verður farið til Strassborgar
og um Svartaskóg.
Verð 77.600
Innifalið: Flug og skattar, gisting á góðum hótelum, morg-
un- og kvöldverður alla daga, skoðunarferðir og fararstjórn.
Fararstjóri: Hólmfríður (Hófý) Bjarnadóttir
Flogið til Frankfurt 5. apríl og
til baka 12. apríl.
Gist verður á sama hóteli í bænum Cochem við Mosel í sjö
nætur. Farnar verða stuttar skoðunarferðir alla daga, m.a til
Rüdesheim, Trier, Bonn, Kölnar og Koblenz.
Verð kr. 62.600
Innifalið: Flug og skattar, gisting í sjö nætur, morgun- og
kvöldverður alla daga, allar skoðunarferðir og fararstjórn.
Fararstjóri: Agnar Guðnason
Harmónikuleikari: Jón Árni Sigfússon
Flogið til Frankfurt 17. apríl og
til baka 28. apríl.
Sama ferðatilhögun og í Vor 1, sami fararstjóri, sömu
hótel og sama verð.
Harmónikuleikari: Jón Árni Sigfússon.
Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217
Útsala - Útsala
20-70% afsláttur
Gullbrá
Tískuverslun • Kringlunni 8-12 • Sími 553 3300
Útsala
50%
afsláttur
Nýtt kortatímabil
Hamraborg 7,
200 Kópavogur
sími/fax 564 4131
Verslunin hættir 28. jan.
Bútasaumsefni og
hannyrðavörur á verði
sem sést ekki aftur.
Opið virka daga kl. 10-18, laugard. 11-16, sun. 13-15.
Rýmingarsala
á stálborðbúnaði
30—50%
afsláttur
Kringlunni.