Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 47
Þegar maður er
ungur leiðir maður
sjaldan hugann að því
hver örlög þeirra sem
maður umgengst gætu
orðið.
Maður gleymir sér í
ærslafullum leik æskunnar, stefn-
andi á vit þess óþekkta og gerir ráð
VALGEIR MAGNÚS
GUNNARSSON
✝ Valgeir MagnúsGunnarsson
fæddist á Neskaup-
stað 18. febrúar
1965. Hann lést 22.
desember síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Digranes-
kirkju 3. janúar.
fyrir því að þannig sé
það með alla.
En sumir áttu þess
ekki kost að fara neitt,
heldur sátu eftir og
horfðu á samferðar-
fólkið tínast eitt og eitt
í burtu, eltandi sín er-
indi sem og erindsleys-
ur, rekið áfram af sín-
um draumum og þrám.
Var kannski draum-
urinn og þráin til stað-
ar en fékk hvergi
hljómgrunn og kafnaði
í fálæti okkar er lá
svona mikið á?
Þegar ég sá þig fyrst eftir ára-
tuga aðskilnað hvarlaði ekki að mér
að þú myndir eftir mér. En raunin
var önnur og kom mér skemmtilega
á óvart því tími barnæskunnar var
fyrir mér að falla inn í þoku
gleymskunar.
Þú hafðir engu gleymt og í þessi-
skipti sem ég rakst á þig á förnum
vegi var mér alltaf kippt jafn snögg-
lega til baka þar sem hugurinn fékk
að reika um stund.
Ég hitti þig síðast í Bankastræt-
inu í haust og við tókum tal saman
að venju um allt og ekki neitt.
Við kvöddumst og mér varð hugs-
að til þess hvernig þinn uppreisn-
argjarni klæðaburður og þín ró-
lynda framkoma stakk í stúf við allt
og alla er áttu leið hjá.
Hvernig þú náðir að lita mannlífið
og gera það áhugaverðara. Slíkt er
ekki öllum gefið.
Vertu sæll Valli og megi vonir
þínar og þrár fá að blómstra á nýrri
grundu.
Óskar Hannesson.
Það er synd að þessi
elskulegi maður hann
Stefán skuli vera far-
inn frá okkur öllum.
En ég er þakklátur
fyrir allar góðu stundirnar sem ég
fékk að vera með honum. Það var
alltaf jafn skemmtilegt þegar hann
kom að horfa á leiki með pabba.
Þegar Arsenal klúðraði góðu tæki-
færi var pabbi svo reiður og Stefán
hló alltaf að honum en þegar Arse-
nal skoraði og var að vinna söng
Stefán alltaf „one nil to the Arse-
nal“. Ég fór oft með pabba til Stef-
áns að horfa á leiki, hann bakaði
pítsu sem var svo sterk. Hann
spurði mig hvort ég vildi pítsu og
ég sagði já, svo tók ég bita, hljóp
inn á bað og spýtti bitanum og
drakk mikið vatn og svo var ég allt-
STEFÁN
ERLENDSSON
✝ Stefán Erlends-son fæddist í
Vestmannaeyjum 5.
september 1965.
Hann varð bráð-
kvaddur 31. desemb-
er síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Landakirkju í Vest-
mannaeyjum 6. janú-
ar.
af að segja að ég ætl-
aði ekki að fá mér
svona pítsu aftur.
Hann hló alltaf yfir
því og það var bara
þetta sem ég vildi
segja við hann Stefán.
Ragnar Þór
Jóhannsson.
Elsku Stefán minn.
Ég vil fá að kveðja þig
með nokkrum orðum.
Þú varst fjörugur og
skemmtilegur maður
með góðan húmor,
sem ég kunni mikið að meta.
Þegar ég og fjölskylda mín
þurftum á þér að halda varstu allt-
af til staðar fyrir okkur. Ég hafði
þekkt þig síðan ég fæddist og þú
hefur alltaf verið jafn yndislegur
og góður við mig. Alltaf þegar ég
kom með pabba til þín að horfa á
Arsenal-leik eða bara í heimsókn
fenguð þið ykkur alltaf bjór og þú
bauðst mér alltaf appelsínusafa. Þú
gerðir oft grín af mér þegar ég var
að gera mig fína áður en ég fór
eitthvað út og það fannst mér gam-
an og við hlógum mikið að því sam-
an. Og svo líka þegar situm saman
og erum að horfa á sjónvarpið og
það kemur auglýsing með Magnúsi
og Eiríki, ég spyr þig hvort að það
hafi ekki verið þú og Ólafur bróðir
þinn sem lékuð þá oft, og þú segir
jú og ferð að leika þá fyrir mig og
ég hélt að ég ætlaði aldrei að hætta
að hlæja. Þetta fannst mér alveg
frábært. Ég á mikið eftir að sakna
þess að sjá þig og pabba vera að
drekka bjór, borða pítsu, öskra og
æpa þegar þið eruð ósáttir við
dómarann og heyra ykkur syngja
„one nil to the Arsenal“ saman. Ég
vil þakka þér fyrir allan vinskap-
inn, heimsóknirnar, góðar mót-
tökur, grill og tuðruferðirnar,
Elliðaaeyjarferðirnar, allar sam-
verustundirnar og auðvitað fyrir að
vera þú, svona yndislegur og góður
maður. Ég bið góðan Guð að geyma
þig og vaka yfir Gauju, Ella, Ólafi,
öðrum systkinum, aðstandendum
og vinum. Ég mun ávallt geyma þig
í hjarta mínu og hugsa fallega til
þín. Ég sakna þín.
Þín
Berglind Jóhannsdóttir.
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg
fyrir tvíverknað. Þá er enn
fremur unnt að senda grein-
arnar í símbréfi (569 1115) og
í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er,
að símanúmer höfundar/send-
anda fylgi.
Um hvern látinn einstak-
ling birtist formáli, ein uppi-
stöðugrein af hæfilegri lengd,
en aðrar greinar um sama
einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við með-
allínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstofa Íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
&" "
$2
--
2 (= 6 '' * (,**+
&% *<>
,! %(,
" ("
7
4
("
8
7
.
". "
5**7'95+" " )
(#
-*+ $ *+ + +*'5 .
* ) 56*
"*'5
.$ *+56* )+5 ".
* ) +
3 $ *+ + 1 ( "!&' 56*
)+*$ *+ + -'(+4' *+
35(.$ *+56*
6'% * $ *+56* ++ : '; +
) () $ *+56* ' .-.
?+5 +
-* (, $ *+ + "'5 " ''56 56*
('*.$ *+ + -'(+:." ''% )56*
( $ *+56*
)*)!# + +
+ # + + + # +.
&"
"
*
$2
-
6, + ?)*+
"
9
:
(
8
* !6+-*+ +
@
* !6+56*
+* ' *
4 *''
* !6+ + $6 5(" 55 8+ % 56* .
&"
""
"
1"
42/--
"& ' **>
4 ' %(,
; (
8
$6 ) 6+ +
-*+ -*+ + + *) 6 ++56*
* ) 56* 6+
%()2' * +
+ *) ) 56*
&+.' +
*+5 !# ,$6 ) 56* A 1 + +
" ' + * + $6 ) 56* $ # + + +
+ % $ *++$6 ) +
6'% * *'! 6 ++56* 6+!# +& +
35(
.-*+ 56*
* .+ (' +
+ # +.
&"
"
""
-13
2 3 )*BC
,! %(,
"
("
8
$6 5(" *) -*+ 56* 3 ( )+5 +
35(- ' 3 (56* 3 ( 9 ++ 3 ( +
" +*'5 -% -*+ 56* '*+5 ) 56*
4 *(++5 A56* -*+ ! +*
' +.
"
071/
2 " *) % *D
: ++ !
2
(
8
.
"#
"; *
!
++
* () (56*
!#','5 *+'&+ .