Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. VEÐURSTOFAN spáir hlýnandi veðri næstu daga og vaxandi vindi um allt land. Í gærkvöld gaf Veð- urstofan út viðvörun um storm, þ.e. meira en 20 m/s, á Suðurlandi, Faxa- flóa, Breiðafirði og Vestfjörðum. Búist er við vaxandi sunnanátt fram eftir degi og í kvöld verður skollinn á stormur og rigning. Þá verður allhvass vindur eða hvass- viðri annars staðar. Hiti á sunnan- og vestanverðu landinu verður yfir- leitt á bilinu 2-7°C og jafnvel meiri. Stormvið- vörun í kvöld FÉLAGAR í björgunarsveitinni Súlum á Akureyri, þeir Sigurður Hólm Sæmundsson, Vagn Krist- jánsson og Gunnlaugur Búi Ólafs- son, fóru upp á Öxnadalsheiði í vik- unni til þess að hreinsa snjó og ís af endurvarpsmastri Landssímans í NMT-kerfinu. Töluvert snjómagn hafði hlaðist á mastrið og vegna ástandsins datt NMT-kerfi Símans út um tíma á afmörkuðu svæði. Greiðlega gekk að hreinsa mastrið og um leið að koma kerfinu í lag. Hreinsa snjó af mastrinu Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Björgunarsveitarmenn frá Akureyri hreinsa snjó og ís af mastri Lands- símans á Öxnadalsheiði. FJÖGUR fyrirtæki sem starfað hafa á sviði afþreyingar og útivistar hafa sameinast í einu fyrirtæki sem hlotið hefur nafnið Íslenskar ævintýraferð- ir. Fastir starfsmenn eru um 30 tals- ins en mun fleiri starfa hjá fyrirtæk- inu á sumrin. Fyrirtækin sem sameinast eru Addís, Vélsleðaleigan Geysir, Lang- jökull og Bátafólkið. Öll fyrirtækin hafa starfað á sviði útivistar og af- þreyingar á undanförnum misserum. Arngrímur Hermannsson, hjá Ís- lenskum ævintýraferðum, sagði að undirbúningur sameiningarinnar hefði hafist í september í haust og væri nú endanlega frágenginn. Velta fyrirtækjanna sameiginlega væri eitthvað á þriðja hundrað milljónir króna og miklir vaxtarmöguleikar væru fyrir hendi í þessari grein. Mikil hagræðing fylgdi sameining- unni bæði hvað varðaði framkvæmd ferða og eins hvað varðaði markaðs- og sölumál. Arngrímur sagði að um 28 þúsund ferðamenn hefðu verið viðskipta- menn fyrirtækjanna á síðasta ári samanlagt, en fyrirtækin byðu meðal annars upp á bátaferðir, vélsleða- ferðir, jöklaferðir, jeppaferðir, þyrluferðir, köfun og fleira. Ætlunin væri að útvíkka starfsemina enn frekar. Starfssvæði fyrirtækisins væri fyrst og fremst á suðvestur- horni landsins, en þeir hefðu fullan hug á að vinna með öðrum landshlut- um að viðfangsefnum á þessu sviði. Þetta væri ung atvinnugrein hér á landi og vaxtarmöguleikarnir miklir. Yfir 50 vélsleðar Fyrirtækið hefur höfuðstöðvar að Tangarhöfða 7. Fyrirtækið á yfir 50 vélsleða, 6 átta hjóla trukka, sjö snjóbíla og fjóra fjallaskála nálægt jöklum svo eitthvað sé nefnt. Arngrímur sagði að til að byrja með hefðu útlendingar fyrst og fremst verið viðskiptamenn fyrir- tækjanna, en Íslendingar væru sí- fellt að verða hærra hlutfall af heild- inni, sem væri mjög ánægjuleg þróun. Fjögur útivistar- fyrirtæki sameinast LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Urður, Verðandi, Skuld og Landspítalinn – háskólasjúkrahús hafa undirritað samstarfssamning um krabba- meinsrannsóknir. Markmiðið er að finna ný krabbameinsgen, leita nýrra greiningaraðferða og meðferðar- möguleika og er vonast til að rann- sóknirnar verði til þess að ný lyf verði þróuð gegn krabbameini. Í samningum leggur Landspítali –háskólasjúkrahús til að stofnuð verði krabbameinsmiðstöð þar sem þekk- ing og aðstaða verði til að vinna verk- efnið og jafnframt að aðgangur að gögnum og lífssýnum verði tryggður. UVS mun leggja fram 300 milljónir til miðstöðvarinnar á næstu átta árum og mun greiða allan kostnað af verk- efninu. Þá skuldbindur UVS sig til að leggja hluta af þeim tekjum sem aflast í styrktarsjóð sem ætlað er að styrkja krabbameinsmiðstöðina, stuðla að krabbameinsrannsóknum og bæta þjónustu við krabba- meinssjúklinga á Íslandi. Magnús Pétursson, forstjóri Land- spítala – háskólasjúkrahúss, sagði á blaðamannafundi í gær þar sem verk- efnið var kynnt, að samningurinn bryti blað í samskiptum sjúkrahúss- ins við fyrirtæki. Sagði hann krabba- meinsmiðstöðina gera rannsóknirnar mögulegar og greiða götu þeirra en spítalinn og skjólstæðingar hans myndu njóta ávaxtanna. Meðferð við krabbameini yrði bætt sem frekast yrði kostur. Samstarf um krabba- meinsrann- sóknir  300 milljónir/10 1.200 til 1.400 öryrkjar fá auknar greiðslur Alls munu 1.200 til 1.400 öryrkjar, sem fengið hafa skerta tekjutrygg- ingu örorkubóta vegna tekna maka, fá greiddar fjárhæðir vegna leiðrétt- ingar á bótum fjögur ár aftur í tím- ann, með 5,5% vöxtum, skv. tillögum starfshópsins. Þá leggur starfshóp- urinn til að bætt verði inn í lög um al- mannatryggingar sérreglu sem ætl- að er að tryggja að öryrki hafi sjálfur a.m.k. ákveðnar lágmarkstekjur án tillits til tekna marka. Leggur starfs- hópurinn til að sú tekjutrygging verði 300 þús. kr. á ári, eða 25.000 kr. á mánuði, sem á að tryggja að við- komandi öryrkjar hafi að lágmarki 43.424 kr. á mánuði, að grunnlífeyri meðtöldum, í stað 18.424 kr. sam- kvæmt gildandi reglum. Tekið er fram í skýrslu starfshópsins að hann telji það ekki vera verkefni sitt að gera tillögur um aðrar og meiri breytingar á lögum en nauðsyn kref- ur vegna dóms Hæstaréttar. Bætur greiddar skv. breyttu fyrirkomulagi 1. febrúar Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna uppgjörs við öryrkja fjögur ár aftur í tímann geti numið 650-700 milljónum króna, að viðbættum vöxt- um. Þá er talið að árlegur kostnaðar- auki ríkisins vegna breytinga sem gerðar verða á lögum um almanna- tryggingar verði um 100 milljónir og að um 19% öryrkja fái auknar tekju- tryggingargreiðslur með þessari breytingu. Er stefnt að því að byrjað verði að greiða út bætur skv. breyttu fyrirkomulagi 1. febrúar en uppgjöri vegna fyrri ára verði lokið 1. apríl. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í gær að ákveðið hefði verið að kveðja Alþingi saman næstkomandi mánudag svo afgreiða mætti frum- vapið sem lög og efna þar með dóms- niðurstöðu Hæstaréttar. Davíð sagði einnig að ef dómurinn hefði verið tekinn bókstaflega skv. forsendum hans þá hefði það leitt til þess að að- eins yrðu greiddar bætur tvö ár aft- ur í tímann. „Lögfræðingar ríkis- stjórnarinnar töldu að það fengi ekki staðist og því yrði að ganga heldur lengra hvað þetta varðaði heldur en virtist mega lesa úr dómi Hæstarétt- ar. Því er það niðurstaða þeirra að lög um fyrningu miði við að þessar bætur skuli greiddar fjögur ár aftur í tímann,“ sagði hann. Í skýrslu starfshópsins segir að í forsendum hæstaréttardómsins sé að finna beina vísbendingu um að ekki megi heimfæra niðurstöðu hans beint á ellilífeyrisþega. Það verði því að teljast pólitísk ákvörðun, sem ekki eigi undir starfshópinn að fjalla um, hvort gera beri breytingar á reglum laganna um ellilífeyri til sam- ræmis við breytingar sem gerðar verða á reglum um örorkulífeyri. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra segir að samþykkt hafi ver- ið í ríkisstjórn í gær að hraða endur- skoðun á almannatrygginga- löggjöfinni þannig að niðurstaða nefndar sem um það fjallar liggi fyr- ir innan þriggja mánaða. Lagði hún áherslu á að fulltrúar Öryrkjabanda- lagsins, aldraðra og vinnumarkaðar- ins kæmu að þeirri vinnu. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði í gær að dómur Hæsta- réttar og viðbrögðin við honum væri flóknasta mál sem hann hefði komið að á sínum pólitíska ferli. Stjórnarandstaðan boðar harða mótspyrnu á þingi Forsvarsmenn Öryrkjabandalags- ins héldu fund með þingmönnum stjórnarandstöðunnar í gær, sem lýstu því yfir að frumvarpið myndi mæta harðri mótspyrnu á komandi þingi. Samkomulag í ríkisstjórn um greiðslu bóta vegna öryrkjadóms Hæstaréttar Bótagreiðslur leiðréttar fjögur ár aftur í tímann  Öryrkjadeilan/12, 14-16, 40-41 RÍKISSTJÓRNIN kynnti í gær ákvarðanir sem samkomulag hefur náðst um varðandi breytingar á lögum um almannatryggingar í kjölfar dóms Hæsta- réttar í máli Öryrkjabandalagsins gegn Tryggingastofnun. Er niðurstaða rík- isstjórnarinnar byggð á skýrslu og frumvarpstillögum starfshóps fjögurra lögfræðinga, sem forsætisráðherra skipaði vegna málsins. Forsvarsmenn Ör- yrkjabandalagsins gagnrýna harðlega ákvarðanir og frumvarp ríkisstjórn- arinnar og segja að niðurstaða Hæstaréttar sé virt að vettugi. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.