Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 23
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 23 Rafdrifin göngu- og hlaupabraut Hraði 0-16 km/klst. Fjaðrandi bretti sem minnkar álag á liðamót. Rafstýrður hæðarstillir (3-10%), vandaður tölvumælir, statíf fyrir vatnsbrúsa og handklæði. 2ja hestafla mótor. Hægt að leggja saman og því hentug fyrir heimili og vinnustaði. Stgr. 158.075. Kr. 166.394. Stærð: L. 161 x br. 80 x h. 135 cm - ÞREKTÆKJADEILD - Skeifan 11, sími 588 9890 Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki. HLAUPABRAUTIRHægt aðleggja saman 525EX Ólafsvík - Karlinn í tunglinu glotti glaðhlakkalega í nótt, búinn að takast á við almyrkva og hafa betur. Frétta- ritari var á ferð um svokallaða Breið. Þar gnæfir Snæfellsjökull í suðvestri en nær er Bárfell sem sjófarendur mega ekki kalla annað en Matarfell. Ingjaldshóll er í norður þegar komið er innst á Breiðina. Það var synd að vera á bíl því næstum var hægt að þreifa á kyrrðinni. Skyndilega kom snjóhvít tófa inn í bjarma bílljósanna. Hún fór rólega yfir vegslóðann og lagðist niður milli þúfna til þess að láta bílinn fara hjá og virtist mjög róleg. Það var ekki hægt annað en að stoppa, skrúfa nið- ur rúðuna og dást að þessu fallega dýri. Þetta hlaut að vera dama í svona undurfögrum pelsi, líklega ungfrú Ennisdalur á leið í fjöru. Sú þarf ekki að kvíða einlífinu. Eftir nokkrar vik- ur leggur hún blíðutón í gaggið og getur þá valið úr biðlunum. Til dæmis er Tághálsajarlinn ekkill síðan í vor. Þegar næturþulur útvarpsins hóf að lesa fréttir var þeirri hvítklæddu nóg boðið og hún hljóp kippkorn frá. Ekki þó langt, fjaran beið með allar sínar nægtir. Dama í hvít- um pelsi ♦ ♦ ♦ LIONSKLÚBBUR Akraness og Lionsklúbburinn Eðna á Akranesi afhentu nú í byrjun desember gjöf að upphæð rúmlega ein milljón króna til Dvalarheimilisins Höfða á Akra- nesi. Fjárhæðinni verður varið til uppbyggingar á fullkominni baðað- stöðu við dvalarheimilið. Hluti af fjárhæðinni eða 500 þús- und komu úr Rauðufjaðrarsöfnun- inni sem fram fór á landsvísu á sl. ári. Klúbbarnir lögðu síðan til mót- framlag að upphæð rúmlega 500 þúsund sem fengið var úr líknarsjóð- um klúbbanna. Lionsklúbbarnir hafa undanfarin ár haft perusölu sem aðalfjáröflun en einnig hafa verið ýmsar aðrar smærri fjáraflanir í gangi. Klúbb- arnir vilja færa Akurnesingum og nærsveitamönnum bestu þakkir fyr- ir góðar móttökur við fjáraflanir á liðnum árum. Gáfu Höfða eina milljón króna Afhendingin í Höfða: Halldór Stefánsson, Ásmundur Ólafsson og Rósa Mýrdal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.