Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 57
www.mbl.is
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Arnarnes - Garðabær - Sjávarlóð
Höfum fengið til sölu vel staðsetta 1.400 fm sjávarlóð undir ein-
býlishús á Arnarnesi í Garðabæ.
Allar nánari uppl. á skrifstofu.
Reykjanesmótið
í sveitakeppni
Reykjanesmótið í sveitakeppni,
sem jafnframt er svæðamót Reyk-
nesinga fyrir Íslandsmótið, fer
fram í Keflavík dagana 20.–21.
janúar nk. og hefst spilamennskan
kl. 10 á laugardag.
Spilað verður í félagsheimili
bridsfélaganna á Suðurnesjum en
það stendur við gamla Sandgerð-
isveginn og er keppnisgjaldið
24.000 krónur á sveit.
Spilin verða forgefin og verður
reiknaður út Butler. Keppnisstjóri
verður Sigurjón Harðarson.
Kvóti Reyknesinga í undanúr-
slitum Íslandsmótsins er 4 sveitir.
Þátttaka tilkynnist til Kjartans í
síma 421-2287 eða Sigurjóns í síma
898-0970.
Suðurlandsmót
í sveitakeppni
Suðurlandsmótið í sveitakeppni,
sem jafnframt er undankeppni Ís-
landsmóts, fer fram dagana 19.–20.
janúar í Þingborg, skammt utan
Selfoss.
Byrjað verður að spila kl. 18 á
föstudagskvöld og við stjórnvölinn
verður Eiríkur Hjaltason.
Þátttökutilkynningar berist til
Sigfúsar Þórðarsonar í síma 565-
3050 eða Helga G. Helgasonar í
síma 482-2447.
Mótið gefur fjórum efstu sveit-
unum þátttökurétt í undankeppni
Íslandsmótsins í vor.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Mánudaginn 8. janúar var spil-
aður eins kvölds tvímenningur með
þátttöku 10 para.
Úrslit urðu þannig:
Atli Hjartars. - Sverrir Jónss. 127
Helgi Sigurðss. - Jónas Ágústss. 122
Njáll G. Sigurðss. - Guðni Ingvarss. 120
Ásgeir Ásbjörnss. - Dröfn Guðmundsd. 117
Meðalskor 108
Næstkomandi mánudag, 15. jan-
úar, hefst svo aðalsveitakeppnin.
Þar er áætlað að butler-árangur
para verði jafnframt reiknaður.
Spilað er á 2. hæð íþróttahússins
við Strandgötu og hefst spila-
mennskan kl. 19.30.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Starfsemi hófst mánudaginn 8.
jan. sl. með Mitchell-tvímenningi.
19 pör mættu. Meðalskor 216 stig.
Hæsta skor í N/S:
Þórður Ingólfss. – Björn Friðrikss. 273
Geirlaug Magnúsd. – Torfi Axelss. 243
Jóna Magnúsd. – Jóhanna Sigurjónsd. 220
Hæsta skor A/V:
Jón St. Ingólfss. – Freyja Sveinsd. 244
Friðgerður Friðg. – Friðgerður Ben. 240
Stefanía Sigurbjörnsd. – Jóhann Stef. 234
Mánudagana 15. og 22. jan. nk.
verður spilaður Mitchell-tvímenn-
ingur. Verðlaun verða fyrir sam-
anlagðan árangur bæði kvöldin.
Mánudaginn 29. jan. 2001 hefst
aðalsveitakeppni deildanna. Það
eru allir velkomnir til þátttöku í
spilakeppnum hjá okkur.
Upplýsingar hjá Ólafi í síma 557-
1374 og hjá BSÍ í síma 587-9360.
Spilað er í Þönglabakka 1. Spila-
stjóri er Ísak Örn Sigurðsson, sími
hans er 896-6324.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Myndin er tekin á stórmóti Munins nú í haust. Það eru bræðurnir Böð-
var og Ragnar Magnússynir sem spila gegn Jóhanni Benediktssyni og
Einari Júlíussyni. Einar er kominn á níræðisaldur og er enn í fullu fjöri.
Hann spilar a.m.k. einu sinni í viku keppnisbrids og er án efa einn elzti
keppnisspilari landsins.
Svipmynd úr bridsheiminum
K
O
R
T
E
R
kemur þér beint að efninu!
Dregur úr sykurlöngun og
hungurtilfinningu.
Hjálpar þér að halda
línunum í lagi!
Jurtir - Vítamín - Steinefn
i
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Mikið af fatnaði í
stórum númerum
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 4.500
Stuttir jakkar frá kr. 5.900
Síðir jakkar frá kr. 6.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 990
Kjólar stuttir og síðir
Blússur