Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 36
LISTIR 36 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN sími 568 6062 ATH N ýtt ko rtatím abil Útsalan í fullum gangi 20-60% afsláttur HÉRAÐSRIT eru nokkuð mörg. Býst ég varla við að ég hafi séð þau öll. En þessi eru mér kunn: Árnes- ingur (V. árg.1998), Dynskógar (7. árg. 1999), Árbók Þingeyinga (XLII. árg. 1999), Skagfirðingabók (26. árg. 1999), Húnavaka (40. árg. 2000), Árs- rit Sögufélags Ísfirðinga (40. árg. 2000), Landnám Ingólfs (5. árg. 1996, Múlaþing, Strandapósturinn, Súlur, Húnvetningur, Húni, Eyja- skinna og Skaftfellingur. Vitaskuld eru rit þessi með ýms- um hætti, en í stærstu dráttum virð- ist mér mega skipta þeim í tvo meg- inflokka. Annars vegar eru rit sem fjalla eingöngu eða svo til eingöngu um sögulegt efni og eru að því leyti eins konar „safn til sögu“ héraðsins. Hins vegar eru rit sem auk sögu- legra ritgerða og frásagna taka margvíslegt efni úr nútíðinni og birta jafnvel „annál“ um helstu við- burði liðins árs, tilgreina hverjir hafa látist á árinu og birta um þá minn- ingarorð. Oftast annast prestarnir þetta síðastnefnda. Í langflestum til- vikum hafa héraðsrit þessi orðið býsna langlíf, eins og sjá má af fram- anskráðu, þó að fyrir hafi komið að þau hafi gefið upp öndina eftir skamma dvöl í þessum heimi, svo sem hin efnilega Siglfirðingabók, sem aðeins varð tvævetur, mörgum til hryggðar. Ekki varð heldur lengri ómagahálsinn á Eyfirðingariti, ef ég fer rétt með. Menn geta að sjálfsögðu haft skiptar skoðanir á því hvor tegund ritanna sé betri. Þeir sem aðhyllast sögulega sjónarmiðið líta vafalaust svo á að mestu varði að draga þau sprek að landi, sem annars myndu grafast í sand eða flæða út aftur. Þá er áherslan lögð á að setja saman sögulegar ritgerðir, fá gamalt fólk til að segja frá, prenta gamalt efni o.s.frv. Þeir telja vafalaust að nútíðin sjái um sig. En þá er það hinum flokkn- um til málsbóta, að fyrr en varir er nútíðin orðin fortíð og margt gleym- ist í önn stundarinnar ef það er ekki skráð á blað. Þó að Þingeyingar hafi í ársriti sínu alltaf að öðrum þræði verið með hugann við nútíðina er sú nútíð komin á fimmtugsaldur og þar með saga. Sama má segja um fer- tuga Húnavöku. Ekki skyldi gleym- ast hversu dýrmætar heimildir eru hér fyrir þá sem rita sögu héraðsins. Þá er það til, þó að fátítt sé, að rit hafi skipt um ham, ef svo má segja. Þannig háttar einmitt til um ritið sem hér á að fjalla um. Tímaritið Goðasteinn kom út í aldarfjórðung (1962–1986) í 34 litlum heftum, gefið út og ritstýrt af Jóni R. Hjálmars- syni og Þórði Tómassyni. Það var að mestu leyti „sögulegt“ tímarit, vin- sælt og velmetið. Þegar þeir félag- arnir hættu útgáfu sinni fengu ráða- menn í Rangárþingi nafnið Goðasteinn handa héraðsriti, sem þá var að hefja göngu sína. Hinn nýi Goðasteinn er nú nýkom- inn út í ellefta sinn. Hann er vissu- lega ólíkur forvera sínum. Kemur út einu sinni á ári, í stærra broti en hinn fyrri og hvert hefti raunar heil bók. Síðasti árgangurinn er t.a.m. 370 bls. Héraðsnefnd Rangæinga gefur ritið út og í ritnefnd þessa síðasta ár- gangs eru Jón Þórðarson, Fosshól- um, Guðmundur Sæmundsson, Skógum og Magnús Finnbogason, Lágafelli, auk þriggja varamanna. Samkvæmt efnisyfirliti skiptist ritið í fimm efnishluta, auk fjölda auglýsinga. Fyrsti hlutinn kallast Al- mennur hluti. Þar er meðal efnis rit- gerðin Stíflun Djúpóss eftir Guðjón Ármannsson. Þar segir frá merkri framkvæmd, sem forðaði Þykkvabæ frá eyðingu. Listamaður Goðasteins er María Jónsdóttir frá Kirkjulæk í Fljótshlíð, afkomandi Bólu-Hjálm- ars, listfeng kona mjög og hefur unn- ið mikið með grjót. Eru hér myndir af nokkrum verka hennar og frá henni sagt. Annar listamaður, Jón Kristinsson, á hér margar teikning- ar af Austur-Eyfellingum. Þá eru og Konuvísur úr Fljótshlíð frá 1915 eft- ir Helgu Pálsdóttur. Er það mikill bálkur. Óskar Sigurjónsson segir frá Uppbyggingu Austurleiðar í Þórs- mörk, en það fyrirtæki hefur um langan aldur haft áætlunarferðir í Þórsmörk og komið sér upp aðstöðu þar fyrir ferðamenn. Nýtt kaup- félagssafn á Hvolsvelli fær hér um- fjöllun. Guðmundur Jónsson segir frá ferð um Sprengisand árið 1924 (dagbók hans). Ljóð eru eftir hinn merka fræði- mann Valgeir Sigurðsson og vísur eru birtar úr fórum hans eftir aðra. Magnús Finnbogason birtir gamlar sögur úr Landeyjum og Sveinbjörn Benediktsson aðrar nýrri. Bænda- vísur úr Austur-Landeyjum frá 19. öld er hér og að finna. Ritgerð frá árinu 1909 eftir Halldór Her- mannsson er hér endurprentuð. Hún segir frá hinum franska Íslandsvini og rithöfundi Xavier Marmier. Ragnar Böðvarsson lýsir Mann- skaðaveðri 1940. Ræða á degi aldr- aðra 1999 er eftir Matthías Péturs- son. Og enn koma Bændavísur, nú úr Fljótshlíð frá 1848. Ýmislegt fleira er í þessum hluta, minningargreinar, ljóð, bókadómar og frásagnir. Annar hluti er um Kristnihátíð í héraði. Þar er auk yfirlits um hátíða- höldin ræður, erindi og ritgerðir. Í þriðja hluta segir frá Oddastefnu 1999, eru í þeim flokki fjórar fræði- legar ritgerðir. Þá koma í fjórða hluta annálar ársins 1999 og er þar farið eftir sveit- arfélögum, átta talsins, svo og prestaköllum og sóknum og ýmsum félögum. Loks er í fimmta og síðasta kafla sagt frá látnum í Rangárþingi 1999 og eru alllangar minningar- greinar um þá alla. Af þessari upptalningu sést að Goðasteinn er mikið rit. Að sjálf- sögðu mun þetta mikla efni höfða misjafnlega til lesenda. Sjálfur fann ég þar margt, sem vakti áhuga minn. Helst finn ég að hversu miklu og sundurleitu efni er hér safnað sam- an. Þá kann ég því ekki vel þegar auglýsingar eru á víð og dreif innan um texta. Að öðru leyti tel ég að vel sé frá ritinu gengið. Goðasteinn hinn nýi BÆKUR H é r a ð s r i t Héraðsrit Rangæinga, 2000 36. ár- gangur, 2000, 11. árg. nýs flokks. Ábyrgðarmaður og form. ritnefnd- ar: Jón Þórðarson. Útg.: Héraðs- nefnd Rangæinga, 2000, 370 bls. GOÐASTEINN Sigurjón Björnsson FREKAR lítið en nett pró- gramm var á boðstólum á tónleik- um Evu Mjallar Ingólfsdóttur og Svetlönu Gorokhovich í Salnum á þriðjudagskvöld. E.t.v. hefði smærra húsnæði hentað betur, því tónleikagestir hefðu vel komizt fyr- ir í t.a.m. Norræna húsinu, auk þess sem bæði efnisval og spila- mennska voru að mestu á lág- stemmdum og „intímum“ nótum. Hversu lágstemmdum sást m.a. af því að píanólokið var niðri allan tímann, sem var viturleg ráðstöfun, enda fiðlutónn Evu Mjallar af klið- mýkri sortinni. Viðamesta verkið kom fyrst, Sónata Sergeis Prokofievs fyrir fiðlu og píanó í d-moll. Sónatan var raunar frumsamin fyrir flautu og píanó og telst sem slík meðal merk- ustu kammerverka þeirrar áhafnar á 20. öld, en fyrir áeggjan Davíðs Oistrakh lét Prokofiev til leiðast að umrita verkið fyrir fiðlu tveim ár- um síðar, eða 1944. Einhvers stað- ar kvað haft eftir tónskáldinu, að fyrirmyndin væri fiðlusónata eftir Händel í sömu tóntegund, en burt- séð frá ytra fjórþættu kirkjusón- ötuformi beggja verka (hægt-hratt- hægt-hratt) er vitanlega fátt annað sameiginlegt að finna með tveggja alda tímahaf á milli. Tvö angurvær verk fylgdu á eftir. Fyrst Nigun, 2. þáttur úr stærra verki eftir Ernst Toch (Baal Shem), og síðan Sérénade Mélancolique eftir Pjotr Tjækovskíj, áður en klykkt var út án hlés með Souvenir d’un lieu cher eftir sama höf- und. Hinn „kæri staður“ minning- anna var sveitasetur Nadesjdu von Meck í Brailov, velgjörðar- konu tónskáldsins, sem áskildi sér að þau hittust aldrei augliti til aug- litis. (Staðhæfing tónleikadagskrár um að Tsjækovskíj hafi notið fjár- stuðnings hennar meðan hann lifði er ekki alveg rétt, því hún sleit skyndilega sambandinu nokkrum árum áður en hann lézt.) Sónatan var snoturlega flutt og af góðri yfirvegun, en náði í heild ekki miklu flugi þrátt fyrir nokkra fallega staði. Til þess voru hröðu þættirnir of varfærnislega leiknir og áferð hinna hægu of einsleit. Þó að Nigun Blochs kalli tæplega á mikla flugeldafimi hefði samt mátt gæða það meira krafti og blóðhita en gert var, en fíngert niðurlagið tókst engu að síður vel. Inntónun fiðlunnar var hins vegar víða óör- ugg, og þótt mig skorti viðmiðun af fyrri leik Evu Mjallar bar spila- mennskan að þessu sinni a.m.k. sjaldan með sér að fiðluleikarinn væri í sínu bezta formi. Mest bar á því í knúsuðum kóda sónötunnar og í Serenöðunni, þar sem moll-þrí- undir voru margar í skarpara lagi og sam- stígar áttundir sömu- leiðis oft óhreinar, þó að hvíslkenndur „quasi con sordino“ tónblærinn væri í sjálfu sér heillandi á lágværum stöðum. 1. þáttur Souv- enir (Meditation) var fallega mótaður í fiðl- unni, en píanóleikurinn var á hinn bóginn ýmist fullýtinn í tempói eða jafnvel ósamtaka. Scherzóið var í það fág- aðasta og hefði þurft á töluvert meiri snerpu, hraða og spennu að halda, og hinn alþekkti syngjandi lokaþáttur (Melodie) náði ekki heldur öllum þeim glansi sem í honum bjó, kannski ekki sízt fyrir fremur rislága og andstæðusnauða mótun. Píanóleikur Svetlönu Gorokho- vich var þokkafullur og í góðu styrkjafnvægi við fiðluna, en ein- kenndist að mínum smekk fullmik- ið af síkviku rúbatói, sem hentar ekki alltaf í samleik og gat á köfl- um jaðrað við að verka tilgerð- arlegt. Snoturt og yfirvegað TÓNLIST S a l u r i n n Prokofiev: Sónata í d Op. 94a. Bloch: Nigun. Tsjækovskíj: Sér- énade mélancolique; Souvenir d’un lieu cher. Eva Mjöll Ingólfsdóttir, fiðla; Svetlana Gorokhovich, píanó. Þriðjudaginn 9. janúar kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Eva Mjöll Ingólfsdóttir Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU eru hafnar æfingar á leikritinu Laufin í Toskana eftir sænska leikskáldið Lars Norén í þýðingu Hlínar Agn- arsdóttur. Í verkinu segir frá stór- fjölskyldu sem kemur saman á hverju sumri til að treysta böndin, þótt það kosti átök og árekstra. Meinfyndið verk um ráðvillt nú- tímafólk eftir einn þekktasta leik- ritahöfund Norðurlanda en hann hlaut Norrænu leikskáldaverð- launin 1999 fyrir leikritið Per- sonkris 3:1. Leikendur eru Atli Rafn Sigurð- arson, Erlingur Gíslason, Guðrún S. Gísladóttir, Hjalti Rögnvalds- son, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sig- urður Skúlason, Stefán Jónsson og Valdimar Örn Flygenring. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Hljóðmynd: Sigurður Bjóla. Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson. Búningar: Filippía I. Elísdóttir. Dramatúrg: Bjarni Jónsson og leikstjóri er Viðar Eggertsson. Frumsýning er fyr- irhuguð í mars. Morgunblaðið/Ásdís Leikhópur Þjóðleikhússins æfir Laufin í Toskana. Laufin í Toskana www.leir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.