Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 29
ERLENT FARARTÆKI með aldrif sækja enn í sig veðrið á alþjóðlegum bíla- mörkuðum, ef marka má gripina sem kynntir eru á bílasýningunni í Detroit er hófst í vikunni. Er þá átt við fólksbíla sem hafa drif á öllum hjólum en eru ekki endilega með aðra jeppaeiginleika. Markaðs- sérfræðingar segja að æ fleiri kaupendur líti á aldrif sem for- sendu þess að hægt sé að aka af ör- yggi um regnvota þjóðvegi og í hálku. Í netútgáfu Detroit News segir að aldrif sé nú að verða jafn sjálf- sagt í augum margra og læsivörn á hemla sem sló í gegn snemma á tí- unda áratugnum. En margir bíla- framleiðendur leggja einnig áherslu á nýjar gerðir jeppa og lít- illa sendibíla. Nokkrar vöflur hafa samt komið á menn varðanda jepp- ana vegna nýrrar könnunar sem stofnun, er hefur eftirlit með ör- yggi á þjóðvegum Bandaríkjanna, gerði á jeppum. Gerð var tilraun með 36 jeppa frá helstu framleið- endum og komu þeir illa út, reynd- ust afar valtir. Er bent á að þynd- arpunkturinn sé ofar en í venju- legum fólksbílum og því ljóst að þeim sé hættari við veltum. Hafa neytendasamtök lengi lagt áherslu á þennan vankant og fullyrt að í auglýsingum séu þessi óþægilegu mál kaffærð í skrumi um aðra hluti. Framleiðendur segja á móti að við einkunnagjöfina sé ekki tek- ið tillit til þess að margt geti valdið því að bíll velti, þ. á m. mistök öku- manns. Athygli vekur að Volkswagen- verksmiðjurnar sendu frá sér eins konar afkomanda gamla Rúg- brauðsins, Microbus, sem náði mik- illi hylli á sjöunda áratugnum, ekki síst í Bandaríkjunum. Var það eft- irlæti „blómabarnanna“ svo- nefndu. Útlit nýja rúgbrauðsins minnir talsvert á fyrirrennarann þótt ekki sé um jafn augljósa vísun til horfins tíma að ræða og þegar nýja Bjallan var kynnt til sögunnar fyrir nokkrum árum. Volkswagen gengur best af öllum evrópskum bílaframleiðendum á Bandaríkja- markaði, seldi þar rúmlega 355 þúsund bíla í fyrra. General Motors, stærsta bílafyr- irtæki heims, er sagt vera í far- arbroddi þeirra sem nú vilja höfða til aldrifs-áhugans en einnig er það með á prjónunum mikil áform um tvinn-jeppa er gangi fyrir gasi og rafmagni. Er ætlunin að hann verði kominn á markað innan þriggja ára. GM sýnir meðal ann- ars þrjá hugmyndabíla í Detroit sem allir eru með aldrifi auk Ponti- ac Vibe, sem hægt er að fá með aldrifi og vakið hefur athygli. Þrátt fyrir vaxandi áhuga á aldrifi gera framleiðendur Vibe ekki ráð fyrir að meira en 10% kaupenda hans velji aldrifið. Jafnt GM sem Toyota munu hafa hug á því að sækja inn á mark- aðinn fyrir tiltölulega ódýra ald- rifsbíla. Toyota er með Matrix, sem smíð- aður er í verksmiðjum fyrirtæk- isins í Ontario í Kanada og minnir mjög á Vibe. Subaru hefur á boð- stólum nýja gerð af Impreza er nefnist WRX en fyrirtækið tók þá ákvörðun 1994 að einbeita sér að framleiðslu aldrifsbíla. Árang- urinn er meðal annars sá að Sub- aru er nú með um 55% mark- aðshlutdeild í Bandaríkjunum á sviði aldrifsbíla. Að sögn Aarons Robinsons, tækniritstjóra hjá tímaritinu Car & Driver, hefur með nýrri fram- leiðslutækni tekist að lækka kostn- aðinn við aldrifsbúnað og einfalda hann svo mikið að bílaframleið- endur geta boðið hann sem auka- búnað fyrir 1200–2000 Bandaríkja- dollara, 10–17 þúsund krónur. Ekki eru samt allir jafn ákveðnir í að veðja á aldrifið. Eric Videnour, sem er aðstoðarforstjóri fram- leiðsluáætlanadeildar hjá Chrysl- er, sem er nú hluti af Daimler- Chrysler, segir að vissulega sé aldrifið eitt af því sem verði of- arlega á baugi í framtíðinni. En bílaframleiðendur verða jafnframt að huga að því að halda kostnaði niðri, segir Videnour. Og bílaframleiðendur eiga víða við þann vanda að stríða að mark- aður fyrir nýja bíla er minni en framleiðslugetan. GM hyggst minnka framleiðslu sína um 21% fyrstu þrjá mánuði ársins sem er mun meiri skerðing en áður hafði verið skýrt frá. DaimlerChrysler ætlar að minnka sína framleiðslu um 26% og Ford boðar 17% nið- urskurð. AP Volvo kynnir nýjan bíl með aldrif er nefnist ACC á sýningunni í Detroit. AP Isuzu kynnir nýja jeppategund, GBX, á alþjóðlegu bílasýningunni. Áhersla lögð á far- artæki með aldrifi Alþjóðleg bílasýning í Bandaríkjunum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.