Morgunblaðið - 11.01.2001, Síða 32
ERLENT
32 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEFND vísindamanna á vegum
umhverfisnefndar Sameinuðu þjóð-
anna (UNEP) hefur síðan í fyrra
rannsakað staði í Kosovo sem talið
var að hefðu mengast af úrani í
árásum flugvéla Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, á stöðvar Serba.
Byssukúlur sem ætlað er að vinna á
öflugu stáli eru húðaðar með svo-
nefndu rýrðu úrani sem er mjög
þungur málmur og veldur hann því
að kúlan getur rofið brynvörn á
skriðdreka.
Margir óttast að leifar úransins,
sem er eitraður þungmálmur og
auk þess nokkuð geislavirkur, hafi
valdið heilsutjóni hjá friðargæslu-
liðum og fleira fólki á átakasvæð-
unum í Kosovo og Bosníu. Mun
meira var notað af úransprengjum í
Persaflóastríðinu gegn Írökum
1991.
Vísindamennirnir í Kosovo voru
undir forystu Pekka Haavisto sem
er fyrrverandi umhverfisráðherra
Finnlands. Haavisto hefur kvartað
undan því að bandalagið hafi í heilt
ár ekki viljað veita upplýsingar til
nefndarinnar og heimildarmenn
fullyrða að málið hafi ekki verið í
höfn fyrr en Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, fór sjálfur til að-
alstöðva NATO í Brussel til við-
ræðna við ráðamenn.
Íslenskur vísindamaður, Kristín
Vala Ragnarsdóttir jarðefnafræð-
ingur, var meðal vísindamannanna
sem tóku sýni í Kosovo en ekki er
búist við lokaniðurstöðum fyrr en í
byrjun febrúar. Kristín Vala hefur
undanfarin 11 ár starfað við Brist-
ol-háskóla þar sem hún gegnir
stöðu aðstoðarprófessors.
Sýni úr jarðvegi
og vatni
„Við vorum 14 alls,
frá ýmsum löndum,“
sagði Kristín Vala.
„Við tókum sýni á 11
stöðum af alls 112 þar
sem NATO segist
hafa notað úranvopn.
Sýnin eru úr jarðvegi
og vatni og nú erum
við að efnagreina þau.
Sjálf hef ég ekki séð
neinar niðurstöður
nema bráðabirgðanið-
urstöður úr eigin
rannsóknum og tek
það fram að ég tala
ekki fyrir hönd nefnd-
arinnar. Þar sem ég fann úran er
magnið meira en í bakgrunnsjarð-
lögum. Einnig tókum við mörg
vatnssýni en magnið af úrani er
mjög lágt í þeim, lægra en í mörg-
um tegundum sódavatns sem selt
er í flöskum.“
Geislavirknin er að sögn Krist-
ínar Völu hærri en gengur og gerist
í náttúrunni en hún
bendir á að svæðin séu
afar lítil. „Yfirleitt
fundum við ekki leifar
skotfæranna vegna
þess að kúlurnar fara
niður í jarðveginn. Þar
sem við fundum leif-
arnar var það vegna
þess að skotin voru
föst annaðhvort í
steypu eða malbiki
undir skotmarkinu.
Þar er geislavirkni
meiri en annars staðar
en þetta var á mjög
fáum stöðum og litlar
líkur á að hún hafi
nokkur áhrif á heilsu
fólks. Ég tók sýni á öllum stöðunum
ellefu en hef hins vegar ekki séð
niðurstöður hinna vísindamann-
anna og get ekki talað fyrir þá.“
Úran hagar sér eins og aðrir
þungmálmar, það getur sest í nýru,
lifur og milta, einnig getur það far-
ið í beinin. Ef málmurinn er lengi í
líkamanum getur geislavirknin haft
áhrif og valdið heilsuspjöllum. Þeg-
ar úran brennur, sem það gerir ef
það lendir á brynvörn, verður til
fíngert duft. Duftið getur síðan
borist í lungu fólks við innöndun og
munu vera dæmi um slíkt í Persa-
flóastríðinu 1991.
Ekki fundust nein dæmi um slíkt
duft í Kosovo, að sögn Kristínar
Völu. Það sem flugmenn NATO
skutu á voru yfirleitt tálbeitur, ekki
raunverulegir skriðdrekar heldur
eftirmyndir úr segli eða öðrum efn-
um sem Serbar bjuggu til og
blekktu þannig andstæðinginn.
Flugvélarnar voru látnar fljúga í
mikilli hæð til að draga úr líkum á
að Serbum tækist að skjóta þær
niður og því erfitt fyrir flugmenn-
ina að forðast þannig mistök.
„Til að úran brenni þarf það að
lenda á hörðum málmi og hitna
mikið, fara yfir 1.000 gráður. En ef
það lendir bara í malbiki eða jarð-
vegi brennur það ekki. Við sáum
engin ummerki þess í Kosovo að úr-
an hefði brunnið. Hvergi sáust flök
af skriðdrekum Serba, búið að fjar-
lægja allt, við sáum nokkra gamla
bíla en engin geislavirkni mældist
þar. Fólkið á þessum svæðum sagði
okkur að aðallega hefðu það verið
Serbarnir sem fjarlægðu brakið
strax eftir stríðið. Þeir vildu ekki að
Bandaríkjamenn gætu skoðað bún-
aðinn. Við vitum heldur ekki hvort
einhverjir hafi farið inn í skrið-
dreka og önnur farartæki Serba
meðan þau voru þar enn þá og ef til
vill andað að sér úrandufti í þeim,“
segir Kristín Vala Ragnarsdóttir.
Íslenskur vísindamaður í rannsóknanefnd SÞ í Kosovo
Ólíklegt að úranleifar
hafi valdið heilsutjóni
Kristín Vala
Ragnarsdóttir
Reuters
Þrjátíu millimetra úranhúðuð
byssukúla, sem sýnd var á
fréttamannafundi NATO í
Brussel í gær. Talsmenn banda-
lagsins segja að ekki sé nein
hætta á heilsutjóni af völdum úr-
anleifa úr kúlunum á átaka-
svæðum á Balkanskaga.
EFTIR fyrsta áfall sitt í undirbúningi
forsetaskiptanna leitaðist George W.
Bush, væntanlegur Bandaríkjafor-
seti, við að snúa vörn í sókn í gær.
Bush flaug til Washington seint á
þriðjudagskvöld, eftir að Linda Chav-
ez, sem útnefnd hafði verið sem at-
vinnumálaráðherra næstu ríkis-
stjórnar, dró sig í hlé vegna máls
Mörtu Mercado, ólöglegs innflytj-
anda sem bjó hjá henni um skeið.
Bush sótti varnarmálaráðuneytið
heim í gær í fylgd Williams Chohens,
fráfarandi varnarmálaráðherra, og
einnig var fundur á dagskránni við
ráðgjafa í ríkisfjármálum. Þannig
leitaðist Bush við að draga athyglina
frá Chavez málinu sem þykir hafa
verið hið klúðurslegasta.
Bush hefur sagt að ákvörðunin sé
algerlega hennar og sama sagði
Chavez á fréttamannafundinum.
Hátt settir repúblikanar sögðu hins
vegar AP-fréttastofunni frá því að
Chavez hefði dregið sig í hlé vegna
þrýstings frá ráðgjöfum Bush. Áhugi
þeirra á að verja hana hefði minnkað
þegar dró úr trúverðugleika hennar
og meira kom í ljós um málið. Í sam-
tali við blaðamenn sagði Bush að hon-
um þætti miður að Chavez hefði dreg-
ið sig í hlé, en hann skildi hana vel.
„Ég er þess fullviss að hún hefði orðið
mjög góður atvinnumálaráðherra.“
Chavez hefur sjálf sagt að hún
hefði átt að vera hreinskilnari um
kringumstæður Mercado en kallaði
það stjórnmál persónuárása sem
urðu til þess að hún dró sig í hlé. Dan
Bartlett, talsmaður Bush, greindi frá
því að Bush hefði frétt af ákvörðun
Chavez nokkrum klukkustundum áð-
ur en hún greindi frá því á blaða-
mannafundi og hefði Dick Cheney,
varaforsetaefni hans, sagt honum frá
ákvörðuninni.
Bush flýtti sér of mikið
The New York Times bendir á að
mál Chavez bendi til þess að Bush og
hans lið hafi flýtt sér of mikið að út-
nefna tilvonandi ráðherra, nokkuð
sem Bush var einmitt hrósað fyrir í
síðustu viku þegar hann hefði valið
alla ráðherrana. Blaðið veltir einnig
fyrir sér hvort að endalok Chavez
muni ekki gefa andstæðingum hinna
mjög umdeildu ráðherraefna Bush,
Johns Ashcrofts, verðandi dóms-
málaráðherra, og Gales A. Nortons,
verðandi innanríkisráðherra, byr í
seglin.
The Washington Post kallar hins
vegar Chavez nýjasta fórnarlamb
ferlisins í kringum útnefningar verð-
andi forseta. Það sé orðið svo flókið
og firrt að margir færir einstaklingar
hafi nú orðið ekki áhuga á valdamikl-
um stöðum innan ríkisstjórnarinnar.
Ný útnefning hið fyrsta
Hvað sem því líður er búist við því
að Bush útnefni arftaka Chavez hið
fyrsta. Þeir sem nefndir hafa verið til
sögunnar eru m.a. Elain L. Chao, að-
stoðarsamgöngumálaráðherra,
Stephen Goldsmith, ráðgjafi Bush,
Jim Talent, frambjóðandi í kosning-
um til ríkisstjóra Missouri, Rich
Bonn, háttsettur repúblikani, Jenni-
fer Dunn frá Washington-ríki og
Eloise Anderson, fyrrverandi yfir-
maður félagsþjónustu í Wisconsin og
Kaliforníu.
Ráðgjafar þrýstu á Chavez að draga sig í hlé
Fyrsta áfallið fyrir Bush
Washington. AFP, AP.
KYNLÍF, peningar eða einfald-
lega blóðþorsti kann á endanum
að verða til þess að „illyrmin sjö“
í Texas komist undir
manna hendur. Sú er
von lögreglunnar
sem fínkembir ríkið í
leit að þessum hópi
fanga sem strauk úr
fangelsi með bíræfn-
um hætti fyrir mán-
uði. Hefur leitinni
verið lýst sem um-
fangsmestu manna-
veiðum í sögu
Bandaríkjanna frá
því armur laganna
seildist eftir Bonnie
og Clyde.
Mennirnir sjö
sluppu úr Connally-
fangelsi í Suður-Tex-
as með því að yfir-
buga fangaverði og
narra aðra. Þrátt fyrir að hafa
gert sitt ýtrasta hefur Texaslög-
reglan, vegalögregla Texas,
bandaríska alríkislögreglan
(FBI) og fleiri lögreglusveitir
ekki hugmynd um hvar fangarn-
ir, sem sátu inni fyrir allt frá
þjófnaði til morðs, halda sig. Á
flóttanum hafa þeir myrt lög-
reglumann í Dallas.
Gætu verið hvar sem er
David Tull, talsmaður lögregl-
unnar í borginni, segir að talið sé
líklegra að þeir séu í Norður-
Texas því það sé svæði sem þeir
þekki. „En þeir gætu verið hvar
sem er.“ Riddaralögreglumenn
leita í dreifbýli í grennd við Dall-
as og þyrlur fljúga yfir borgina
og fylgja eftir öllum þeim hundr-
uðum ábendinga sem berast um
að sést hafi til fanganna.
Helsta von yfirvalda er nú
bundin við að einn fanganna,
Patrick Murphy, láti undan
girndum sínum og veiti með því
vísbendingu. Murphy, sem er
sagður einfarinn í hópnum, sat
inni fyrir nauðgun. Sálfræðingar
segja að hann sé veikasti hlekk-
urinn í óaldarflokkn-
um.
Glæpum þeim er
fangarnir voru
dæmdir fyrir svipar
ekki augljóslega
saman að öðru leyti
en því að vera of-
beldiskenndir. Ein
kenningin er sú, að
þeir haldi saman
sem þjófaflokkur.
Önnur hugmynd er
að þetta séu and-
félagslegir menn
sem séu farnir að
líta á sig sem sam-
hentan hóp hetju-
legra stigamanna,
sem staðráðnir eru í
að lifa eða deyja allir
sem einn.
Líkindi við Bonnie og Clyde
Clint van Zandt, fyrrverandi
manngerðaskýrandi hjá FBI,
nefndi þennan möguleika við
blaðið Dallas Morning News.
„Þeir sjá sjálfa sig sem 21. aldar
óþokkagengi.“ Í Texas er hefð
fyrir slíkum gengjum. Þeirra
frægast var gengi Clydes Barr-
ows og Bonnie Parker, sem fór
með ránum og morðum um ríkið
uns þau dóu í skotbardaga við
lögreglu í nágrannaríkinu Louis-
iana 1934.
Þriðja kenningin er svo sú, að
hópurinn sé sameinaður í ótta
sínum við meintan leiðtoga sinn,
George Rivas, sem er þrítugur
fyrrverandi skáti sem varð að
miskunnarlausum þjófi. Hann
hlaut 17 lífstíðarfangelsisdóma
árið 1993 fyrir fjölda vopnaðra
rána og er talinn hafa sterkasta
persónuleikann og vera altekinn
af töfraljóma glæpamennsku
sinnar.
„Illyrmin sjö“
leika enn
lausum hala
Dallas. The Daily Telegraph.
Einn strokufang-
anna, Patrick
Murphy jr.
AP
STJÖRNUFRÆÐINGAR hafa upp-
götvað það sem kann að vera stærsta
smíð sem til er í sýnilegum alheimi.
Samsafn kvasa, eða dulstirna, og
vetrarbrauta er í þyrpingu á svæði
sem er meira en 600 milljóna ljósára
stórt.
Þessi mikla smíð, sem í er að finna
milljarða af stjörnum á borð við sólina
í okkar sólkerfi, er í um 6,5 billjóna
ljósára fjarlægð og kemur fram sem
ljós sem lagði af stað frá uppsprettu
sinni áður en okkar sólkerfi myndað-
ist.
Safnið er rétt fyrir neðan stjörnu-
merkið Ljónið og nær yfir svæði á
himninum sem er tvær gráður á
breidd og fimm að lengd. „Við höfum
ekki fundið [stjarnfræðilegar] rit-
gerðir um neitt stærra og það hefur
enginn bent okkur á neitt stærra,“
sagði dr. Gerard Williger, starfsmað-
ur Goddard geimvísindastöðvar
Bandarísku geimvísindastofnunar-
innar, NASA, í Maryland í Bandaríkj-
unum. Hann kynnti uppgötvunina á
fundi Stjarnvísindafélags Bandaríkj-
anna og ætlar að leggja hana fram til
birtingar í The Astrophysical Journ-
al. Dr. Williger segir að ekki sé vitað
hvort þyrpingin haldist saman vegna
þyngdarafls eða hafi myndast fyrir
tilviljun við gáru í útþenslu alheimsins
í kjölfar Miklahvells.
Hafi svo stór smíð orðið til svo fljótt
eftir Miklahvell myndi það kveikja
efasemdir um sumar viðteknustu
kenningarnar um hvernig alheimur-
inn þróaðist. Sagði dr. Williger að erf-
itt væri að útskýra hvernig þyngd-
arafl gæti dregið saman svona
gífurlega smíð á tiltölulega skömmum
tíma.
„Stærsta smíð“ í alheimi
The Daily Telegraph.
AP
Mynd af hinu mikla samsafni að kvösum, dulstirnum og vetrarbrautum,
sem stjarnfræðingar hafa uppgötvað.