Morgunblaðið - 11.01.2001, Page 38
LISTIR
38 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÚSSNESKI píanóleikarinn Denis
Matsoujev kemur fram á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Há-
skólabíói í kvöld kl. 19:30. Þetta eru
fyrstu áskriftartónleikar á nýju ári
og í gulri röð. Aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníunnar, Rico Saccani, mun
leiða hljómsveitina.
Ekki veitir víst af tilburðum fim-
leikamannsins til að kljást við hinn
margflókna 3. píanókonsert Sergejs
Rakhmanínovs en af þeim mun hinn
24 ára Denis Matsoujev vera ríku-
lega búinn auk hæfileika við slag-
hörpuna.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Matsoujev þegar ferðast víða um
heim og leikið með stórum og þekkt-
um hljómsveitum á borð við Rúm-
ensku sinfóníuhljómsveitina, Sinfón-
íuhljómsveit Tókýóborgar og Fíl-
harmóníusveit Moskvu.
Nú, 20 árum eftir að hann settist
fyrst við píanóið fá tónleikagestir
Sinfóníuhljómsveitar Íslands að
heyra meðhöndlun hans á meistara-
verki Rakhmanínovs, píanókonsert
nr. 3, sem lengi þótti standa í skugga
2. píanókonserts hans. Heimsathygli
bíómyndarinnar Shine breytti því.
Þar er fjallað um brösótta ævi Ástr-
alans Davids Helfgotts og m.a.
dramatíska baráttu hans við Rach 3,
eins og konsertinn er nefndur í
myndinni.
Þriðja píanókonsertinn samdi
Rakhmanínov þegar frægðarsól
hans skein sem skærast á fyrsta tug
síðustu aldar. Hann var um þær
mundir á leið til fundar við frægðina
í Ameríku og mun ekki hafa treyst
snúnum einleikshluta konsertsins
meira en svo að hann hafði meðferðis
strengjalaust hljómborð í sigling-
unni vestur um haf til að æfa sig. En
Rakhmanínov gerði stormandi lukku
í Bandaríkjunum, enda sagði hann
alltaf sjálfur að konsertinn hafi verið
saminn fyrir Ameríku.
Verkið ber merki hinnar róman-
tísku rússnesku hefðar. Það er stórt í
sniðum og breidd hljómsveitarinnar
nýtt til hins ýtrasta þrátt fyrir að
frægðarljómi þess stafi af einleiks-
hlutanum.
1. sinfónía Tsjajkovskíjs
Finna má áhrif Tsjajkovskíjs í
verki Rakhmanínovs enda fór sá síð-
arnefndi ekki dult með aðdáunina á
landa sínum en 1. sinfónía
Tsjajkovskíjs er síðara verkið á tón-
leikunum í kvöld.
1866 flutti Tsjajkovskíj til Moskvu
til að taka við prófessorsstöðu við ný-
stofnaðan tónlistarháskóla borgar-
innar. Var það fyrir áeggjan rektors-
ins, Nikolai Rubinstein, sem hann
þáði stöðuna en sami maður hvatti
hann einnig til að semja viðamikið
verk eftir að hafa stjórnað flutningi á
hljómsveitarforleik frá námsárum
Tsjajkovskíjs sem góður rómur var
gerður að. Samsetning þess verks, 1.
sinfóníunnar, reyndist Tsjajkovskíj
hin mesta pína og kvöl. Ástæðan var
álagið sem fylgdi næturvinnunni og
ekki bætti úr skák hraksmánarlegir
dómar sem flutningur á útskriftar-
verki hans, Kantötu við Óðinn til
gleðinnar eftir Schiller, fékk um þær
mundir.
Örmagna á geði og líkama tókst
tónskáldinu samt sem áður að ljúka
við verkið og þrátt fyrir góða dóma
strax við fyrsta flutning á tveimur
þáttum úr sinfóníunni var
Tsjajkovskíj aldrei fyllilega sáttur
við verkið en afsakaði það sem eina
af syndum sinnar ljúfu æsku.
Ber merki hinnar róman-
tísku rússnesku hefðar
Morgunblaðið/ÁsdísDenis Matsoujev píanóleikari frá Rússlandi.
Þriðji píanókonsert Rakhmanínovs á Sinfóníutónleikum
KJARTANI Ragnars-
syni leikstjóra og leik-
skáldi hefur verið boð-
in staða leikhússtjóra
við borgarleikhúsið í
Borås í Svíþjóð. Kjart-
an sagði í samtali við
Morgunblaðið að samn-
ingar um ráðningar-
kjör stæðu yfir en
kvaðst búast við að nið-
urstaða lægi fyrir fljót-
lega.
Ráðningin er til fjög-
urra ára og tekur
Kjartan formlega við
starfinu 1. júlí næst-
komandi ef af verður.
Fráfarandi leikhús-
stjóri er Jarl Lindahl.
Borgarleikhúsið í Borås er að
sögn Kjartans svipað að stærð og
umfangi og Borgarleikhúsið í
Reykjavík. „Þarna eru þrjú leik-
svið, hið stærsta með 550 manna
sal og minni salur með innan við
200 sæti og síðan er leikið í gömlu
kvikmyndahúsi annars staðar í
bænum. Fastráðnir leikarar eru 14
en alls eru á launaskrá leikhússins
um 100 starfsmenn og leikarahóp-
urinn á hverju starfsári er í kring-
um 40,“ segir Kjartan.
Fjárveiting til leikhússins er
svipuð og til Þjóð-
leikhússins íslenska
eða um 360 milljónir
íslenskra króna.
Borås er um 150
þúsund manna borg í
Vestur-Svíþjóð og
tilheyrir sama þétt-
býlissvæði og Gauta-
borg en á því svæði
búa um 1,5 milljónir
manna. Leikhúslíf í
Gautaborg og Borås
er í miklum blóma
enda er þetta annar
stærsti þéttbýlis-
kjarni Svíþjóðar.
Kjartan er vel
kunnugur sænsku
leikhúslífi en hann hefur starfað
talsvert í Svíþjóð á undanförnum
árum og leikstýrt sýningum við
m.a. borgarleikhúsin í Gautaborg
og Málmey.
Kjartan leikstýrði Antígónu,
jólasýningu Þjóðleikhússins sem
frumsýnd var á annan jóladag en
hann hefur samið um að leikstýra
tveimur sýningum við íslensk leik-
hús síðar í vetur. „Þegar ég hef
lokið þeim verkefnum er mér ekk-
ert að vanbúnaði að hefja störf í
Borås ef um semst við stjórn leik-
hússins.“
Boðið starf leik-
hússtjóra í Borås
Kjartan
Ragnarsson.
TRÚIN flytur fjöll, segir máltækið, en það á líka við um
listamanninn Pál Guðmundsson frá Húsafelli sem hefur
flutt með sér hluta úr bæjargilinu við Húsafell vegna
sýningar sem verið er að setja upp í Listasafni Reykja-
víkur – Ásmundarsafni.
Sýningin, sem verður opnuð laugardaginn 20. janúar,
ber yfirskriftina „Fjöll rímar við tröll“ þar sem verkum
Páls mun verða stillt upp með verkum Ásmundar Sveins-
sonar, en báðir hafa þeir sótt efnivið og hugmyndir sínar
í hina hrikalegu fegurð sem fjöllin ein búa yfir.
Páll er löngu orðinn þjóðkunnur fyrir höggmyndirnar
sem hann hefur unnið beint í náttúruna í sínu næsta ná-
grenni, þangað sem hann sækir efni sitt, íslenskt grjót í
öllum regnbogans litum.
Hér sést hvar verið er að flytja höggmynd Páls „Sörli
er heygður Húsafells í túni“, inn í Ásmundarsafn en
verkið vegur hátt á sjöunda tonn. Í bergið hefur Páll
hoggið mannsandlit og hesthaus.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að flytja fjöll
ÍSLENSKA kvik-
myndin Ikingút eftir
Gísla Snæ Erlingsson
hefur verið valin til
þátttöku á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í
Berlín 7.–18. febrúar
næstkomandi.
Ikingút var valin úr
hópi yfir 200 kvik-
mynda hvaðanæva úr
heiminum.
Kvikmyndahátíðin í
Berlín er í flokki virt-
ustu „A“-hátíða ársins
og skipar sér í flokk
með kvikmyndahátíð-
unum í Cannes og Fen-
eyjum.
Myndin keppir í flokki barna-
mynda, Kinderfilmfest, og er það
eina keppnin á því sviði sem er hluti
af „A“-hátíð.
Tvær dómnefndir
starfa á hátíðinni;
barnadómnefnd, skip-
uð ellefu stúlkum og
drengjum á aldrinum
ellefu til fjórtán ára,
veitir uppáhaldsmynd-
inni sinni „Kristal-
björninn“ og alþjóðleg
dómnefnd fagfólks
veitir verðlaun fyrir
bestu kvikmynd og
bestu stuttmynd.
Dagskráin kynnt í
lok mánaðarins
Almennar upplýs-
ingar um Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðina í
Berlín er að finna á vefsíðu hennar:
berlinale.de, en endanleg dagskrá
hátíðarinnar 2001 verður gerð opin-
ber 30. janúar næstkomandi.
Ikingút til Berlínar
Gísli Snær
Erlingsson
HAFNAR eru æfingar á leikritinu
Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson og verður leikritið frum-
sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri í
febrúarmánuði. Í mars færist sýn-
ingin til Reykjavíkur og verður sýnd
í Iðnó fram eftir vori.
Aðalhlutverk leikur Gunnar Eyj-
ólfsson en Sigurður Sigurjónsson
leikstýrir. Leikgerðin er unnin af
Ólafi Jóhanni, höfundi samnefndrar
bókar, ásamt Sigurði Hróarssyni.
Leikmynd og búninga hannaði Elín
Edda Árnadóttir. Tónlistarhöfundur
er Hilmar Örn Hilmarsson og lýs-
ingu hannar Halldór Örn Óskarsson.
Aðrir leikarar eru Sigurþór Albert
Heimisson, Sunna Borg og Hrefna
Hallgrímsdóttir.
Í leikritinu segir af Gils Thordar-
sen stórkaupmanni sem hefur þann
árlega sið að halda stórveislu fyrir
sjálfan sig og sparar hvergi veislu-
föng. Að þessu sinni ber óvæntan
gest að garði, Gils býður honum að
þátttöku, grunlaus um erindið.
Þegar líður á kvöldið magnast
spennan. Sniglaveislan er samstarfs-
verkefni Leikfélags Akureyrar og
Leikfélags Íslands.
Æfingar hafnar á
Sniglaveislunni
Morgunblaðið/Kristinn
Frá fyrsta samlestri í Iðnó.