Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 50
UMRÆÐAN
50 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ákveðin með samþykkt
langtímavegáætlunar
1998. Með vegáætlun
fyrir 2000–2004 var
ákveðið að tilteknum
hlutum hennar skyldi
lokið innan þess tíma.
Nú virðast einhverjir
þeirra tefjast þar sem
skipulag skortir vegna
mikilvægra og kostnað-
arsamra áfanga.
Næsta vetur fjallar
Alþingi um vegáætlun
fyrir 2002–2006. Vegna
mjög vaxandi fjölda al-
varlegra umferðar-
slysa er afar brýnt að
bæta öryggi vegfar-
enda um brautina. Umferð um hana
er frábrugðin öðrum þjóðvegum,
mikill akstur utan dagtíma reynist
enn hættulegur þrátt fyrir veglýs-
ingu, og vegfarendur eru ævinlega
tímabundnir í áfangastað vegna
flugs, vinnu eða erinda. Þar sem und-
irbúningur annarra áfanga virðist
tefjast eru forsendur til að hraða tvö-
földun milli Suðurnesja og Hafnar-
fjarðar.
NÝLIÐIÐ ár varð eitt versta ár
mannskaða og tjóna sem Íslendingar
hafa þolað. Það er tímanna tákn að
svo var ekki af völdum sjávarháska
eins og oftast áður. Nú eru mestu
tjónaástæður innbrot, skemmdar-
verk og íkveikjur en mannsköðum
valda sjálfsvíg, umferðarslys og of-
beldis- eða óhappaverk. Nýbyrjað ár
hefur þegar slegið sama þunga
klukknahljóm mannskaða í umferð-
inni.
Á nokkrum misserum hefur fjöldi
alvarlegra umferðarslysa vaxið
hratt. Á tveimur síðustu árum hefur
orðið óskapleg fjölgun dauðaslysa á
Reykjanesbraut einni, sunnan Kópa-
vogs, og urðu þau fleiri en allan und-
anfarinn áratug samanlagt. Þegar
slík örlagabylgja gengur yfir er skilj-
anlegt að fólk örvænti og kalli á að
hraðað verði framkvæmdum, sem
þegar hafa verið ákveðnar og eru lík-
legar til að bæta öryggi vegfarenda.
Óskir Suðurnesjabúa um úrbætur á
Reykjanesbraut eru eðlilegar.
Framkvæmdir sem auka öryggi
Tvöföldun Reykjanesbrautar með
stefnugreindum vegamótum var
Undirritaður leggur
til að tvöföldun Reykja-
nesbrautar sunnan
Hafnarfjarðar að
Reykjanesbæ verði
lokið 2004. Það er raun-
hæft, en meiri flýtir
gæti skaðað fram-
kvæmdina.
Ökumenn
og aksturslag
Athuganir á umferð-
arslysum leiða í ljós að
bæta þarf hegðun öku-
manna. Rangt mat á
aðstæðum, of mikill
ökuhraði, athygli bein-
ist að öðru en akstrin-
um, óvarkárni, jafnvel glæfraakstur.
Allt eru þetta fylgifiskar þess að
menn telja sig betri ökumenn en
raun er. Aukin löggæsla hefur góð
áhrif á ökumenn: þeir aka hægar og
sýna meiri aðgætni. Lægst slysatíðni
er á þjóðvegi nr. 1 um þau svæði sem
eru þekkt fyrir góða umferðarlög-
gæslu.
Brýnt er að auka löggæslu þar
sem slysin eru flest og verst. Það er
fljótvirkara, áhrifameira og kostnað-
arminna en tvöföldun. Reynslan sýn-
ir að ökumenn venjast öflugri um-
ferðarlöggæslu og kunna sjálfir að
meta öryggið. Betra er heilum vagni
heim að aka.
Undirritaður leggur til að lög-
gæsla á Reykjanesbraut og Vestur-
landsvegi verði aukin varanlega,
a.m.k. þar til umferðaraðstæður
breytast.
Umferðarmenning í
akstri og vegagerð
Rannsóknir og greining á umferð-
arslysum eru enn skammt á veg
komnar, til þess skortir bæði heild-
ræna skráningu og ítarlegri rann-
sóknir. Með samanburði atvika má
greina betur áhættuþætti, svo sem
vegarkafla eða aðstæður. Með því
móti fást betri forsendur ákvarðana
um staðsetningu vegaframkvæmda.
Á sama grundvelli má velja stað-
setningu nýrra viðvörunarskilta sem
mætti tengja skynjunarbúnaði og
gætu varað við, ekki aðeins fyrr-
nefndum aðstæðum heldur einnig
breytingum vegna veðurfars svo sem
ísingu eða dimmviðri, ekki síst of
miklum ökuhraða. Blikkandi aðvör-
unarljós verða áhrifameiri en gömlu
skiltin sem sjást einungis augnablik
þegar dimmir.
Slök umferðarmenning Íslendinga
kemur víðar fram en á þessum mestu
umferðarþjóðvegum landsins. Öku-
hraði er oft langt umfram aðstæður,
að ekki sé minnst á veghönnun. Til-
litssemi á ekki upp á pallborð Íslend-
inga undir stýri, þar virðist m.a.s.
hæglætismaður komast í bardaga-
ham og böðlast áfram svo venjulegur
bíll verður manndrápstól.
Undirritaður leggur til að komið
verði á heildrænni skráningu um-
ferðarslysa og reglubundnum rann-
sóknum á þeim alvarlegri. Niður-
stöður verði notaðar til
umferðarfræðslu og ákvarðana. Eflt
verði samstarf allra aðila sem starfa
að umferðarmálum og allar aðferðir
til að hafa áhrif á hegðan ökumanna
teknar til endurskoðunar og öku-
kennsla bætt. Bætum umferðar-
menningu Íslendinga.
Betri umferðarmannvirki
og umferðarmenningu
Árni Ragnar
Árnason
Umferðin
Á tveimur síðustu árum,
segir Árni Ragnar
Árnason, hefur orðið
óskapleg fjölgun dauða-
slysa á Reykjanesbraut.
Höfundur er alþingismaður.
Á SÍÐUSTU dögum
þinghalds á Alþingi
fyrir jól var tekið fyrir
frumvarp um innflutn-
ing dýra og gert að lög-
um. Málið hefur nokk-
uð lengi verið að
velkjast fyrir landbún-
aðarnefnd en var nú
tekið út úr nefndinni og
keyrt í gegnum þingið í
miklum skyndingi þó
að fyrir lægju nýjar
umsagnir í málinu sem
að mínum dómi vörp-
uðu nýju ljósi á málið
og hefði þurft að kanna
ítarlega.
Að hluta til er ég
mjög sátt við meginefni þessa frum-
varps, þ.e.
hvað varðar mikilvægi þess að
staðið sé vel að öllum útbúnaði sótt-
varnar- og einangrunarstöðva sem
taka á móti dýrum sem verið er að
flytja til landsins. Hins vegar tel ég
að það sé úrelt fyrirkomulag að
rekstur slíkra stöðva heyri beint
undir landbúnaðarráðherra ellegar
að útvaldir aðilar sjái um slíkan
rekstur í umboði ráðuneytisins og
geri það nánast á reikning þess eins
og lagt er til í frumvarpi þessu sem
nú hefur verið gert að
lögum. Í því sambandi
má nefna að rekstur
einangrunarstöðvar
fyrir gæludýr í Hrísey
hefur kostað ríkissjóð
umtalsverða fjármuni.
Fyrir hefur legið að
aðrir aðilar hafa haft
áhuga á að reka slíka
einangrunarstöð ná-
lægt Keflavíkurflug-
velli sem er sá staður
sem langflest þessi dýr
koma inn í landið og
vilja þá gera það á eigin
ábyrgð. Engin rök eru
fyrir því að standa
gegn slíkum áformum
falli reksturinn í öllu að gildandi lög-
um og reglugerðum og uppfylli skil-
yrði um aðbúnað og rekstur slíkra
sóttvarnar- og einangrunarstöðva.
Landbúnaðarráðherra, sem sam-
kvæmt nýsettum lögum hefur öll ráð
um veitingu leyfa til slíks rekstrar
samkæmt eigin túlkun, hefur lýst því
yfir að hann hyggist ekki heimila
nýjum aðilum slíkan rekstur og leyfi
ég mér að draga í efa að slíkt standist
jafnræðisreglu stjórnarskrár.
Auðvitað er ekki rekstrargrund-
völlur fyrir margar einangrunar-
stöðvar fyrir gæludýr hér á landi en
það ætti þó að vera góður grundvöll-
ur fyrir eina slíka stöð í nágrenni
Keflavíkurflugvallar og yrði slíkur
rekstur til mikilla hagsbóta fyrir þá
sem eru að flytja hingað gæludýr.
Þegar málið var tekið út úr nefnd
höfðu daginn áður borist til nefnd-
arinnar nokkrar umsagnir sem sum-
ar hefði þurft að kanna mjög ítarlega
áður en málið var tekið til lokaaf-
greiðslu. Ein þessara umsagna var
frá Hundræktarfélagi Ísland en þar
segir m.a. að langvarandi óánægja
hafi ríkt meðal gæludýraeigenda
með staðsetningu einangrunarstöðv-
ar í Hrísey. Með umsögn Hunda-
ræktarfélagsins fylgdu undirskriftir
1.000 manna sem skora á landbún-
aðarráðherra að gera breytingar á
núverandi fyrirkomulagi. Þar segir
enn fremur að ástandið í innflutn-
ingsmálum gæludýra hafi verið óþol-
andi um langa hríð vegna staðsetn-
ingar stöðvarinnar sem geri flutning
dýranna erfiðan og áhættusaman
fyrir dýrin auk þess sem dýraeigend-
ur hafi þurft að bíða mánuðum sam-
an eftir plássi.
Þá koma mörg sömu gagnrýnisat-
riði fram í umsögn frá Sambandi
dýrarverndunarfélaga Íslands auk
þess sem að þeir benda á að ferðalag
dýranna norður til Hríseyjar í viðbót
við flugferðina erlendis frá sé brot á
væntanlegri samþykkt Evrópuráðs-
ins um flutningsvegalengd dýra en
þar er kveðið á um að það mætti í
mesta lagi vera átta tíma flutningur
milli heimilis og sóttvarnarstöðvar.
Auk þess kemur fram í þessu áliti
Sambands dýraverndunarfélaga lýs-
ing á aðstæðum við flutning dýranna
norður sem er svo alvarleg að ég tel
að það atriði kalli á sérstaka skoðun
yfirdýralæknis og vitna ég hér orð-
rétt í umsögnina: „Jafnframt fer ein-
angrunin að verulegu leyti forgörð-
um á leiðinni til Hríseyjar.
Þegar til Keflavíkur er komið er
ekki gert ráð fyrir neinum stað fyrir
hundana eða kettina og er þeim kom-
ið fyrir í vistarverum efnaleitar-
hundanna sem þurfa að víkja á með-
an. Kostar þetta mikla sótthreinsun
og vinnu. Þaðan er dýrunum ekið á
Reykjavíkurflugvöll en þar eru þau
geymd í almennri vörugeymslu þar
til flogið er til Akureyrar. Ekki er
hægt að vakta það sérstaklega að
enginn komist í búrin sem eru oft
mjög óhrein eftir flugið erlendis frá
og hefur SDÍ oft orðið vitni að því að
fólk flykkist að búrunum til að láta
vel að dýrunum. Á Akureyrarflug-
velli eru dýrin geymd í almennri
flugfrakt á sama hátt og í Reykjavík
þar til þeim er ekið til Árskógssands
og sett þar um borð í Hríseyjarferj-
una en þar eru þau höfð uppi á dekki
og ekki vöktuð sérsaklega. Síðan er
þeim ekið í einangrunarstöð gælu-
dýra að Hrífunesi.“ Það er mikið um-
hugsunarefni að hér er verið að lýsa
flutningi á dýrum sem eru í algjörri
sóttkví og verður að teljast vítavert,
ef að þessi lýsing er rétt, að slíkt sé
látið viðgangast á sama tíma og í
gildi eiga að vera lög um mjög
strangar sóttvarnir við slíkar að-
stæður. Ekki síst þegar unnt væri að
bjóða upp á mjög góða valkosti varð-
andi einangrun í nágrenni flugvall-
arins og sleppa þannig við allar þær
hremmingar sem áðurnefndur flutn-
ingur norður í Hrísey hefur í för með
sér.
Það liggur fyrir að sótt hefur verið
um rekstur slíkrar stöðvar og synjað
um rekstrarleyfi og mun sú af-
greiðsla hafa verið kærð til umboðs-
manns Alþingis.
Ég vil skora á landbúnaðarráð-
herra að endurskoða hug sinn í þessu
máli og veita leyfi fyrir einangrunar-
stöð fyrir gæludýr sem uppfyllir
ströngustu skilyrði í nágrenni Kefla-
víkurflugvallar. Það yrði öllum fyrir
bestu, gæludýraeigendum sem losn-
uðu þar með við langa biðlista og til-
heyrandi vandræðagang, dýrunum
sjálfum sem losnuðu þar með við erf-
itt viðbótarferðalag norður í land og
að ég tali nú ekki um þeim sem eiga
að gæta sóttvarna í landinu, sem er
greinilega mjög erfitt að framfylgja
við þær aðstæður sem lýst er í um-
sögn SDÍ.
Einangrun
gæludýra
Sigríður
Jóhannesdóttir
Dýrahald
Ég skora á landbún-
aðarráðherra, segir Sig-
ríður Jóhannesdóttir,
að veita leyfi fyrir ein-
angrunarstöð í nágrenni
Keflavíkurflugvallar.
Höfundur er þingmaður Samfylk-
ingar í Reykjaneskjördæmi.
ÚTSALAN
hefst í dag
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 SUÐURLANDSBRAUT 54,(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY).
SÍMI 533 3109
Ný
tt k
ort
atí
ma
bil Nýtt kortatímabil