Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 51 Kringlunni 8-12  sími 568 6211 Skóhöllin, Bæjarhrauni 16  sími 555 4420 AT H. Ný tt ko rta tím ab il Útsalan í fullum gangi 20-60% afsláttur Borgarafundur verð- ur haldinn í kvöld kl. 20:00 í Félagsheimilinu Stapa í Njarðvík á veg- um áhugahóps um tvö- földun Reykjanes- brautar. Kanna á möguleika á flýtingu tvöföldunar Reykja- nesbrautarinnar. Þeg- ar talað er um Reykja- nesbraut hér er átt við kaflann sem liggur frá Ásbraut í Hafnarfirði og suður til Njarðvík- ur. Í dag gerir lang- tímavegaáætlun ráð fyrir að verkinu ljúki árið 2010. Bent hefur verið á að verkinu sé tæknilega hægt að ljúka mun fyrr og í kvöld leitum við svara við því hvað þarf til að svo verði. Óskir okkar og væntingar eru að framkvæmdum ljúki ekki síðar en á árinu 2004. Ef litið er á staðreyndir um Reykjanesbrautina var heildarfjöldi ökutækja, sem leið átti um Reykja- nesbraut árið 1999, rúmlega tvær og hálf milljón en umferðarþunginn hefur fimmfaldast síðan vegurinn var byggður. Vegagerðin hefur reiknað slysastuðul Reykjanes- brautarinnar sem mun vera um 0,36 slys á hverja milljón ekna kílómetra. Sömu útreikningar benda til þess að ef Reykjanesbraut verður breikkuð í 4 akreinar með mislægum gatna- mótum lækkar þessi stuðull úr 0,36 og niður í 0,09 eða um 75%. Á tíu ára tímabili námu heildar- greiðslur tryggingafélaga 1,3 millj- arðar fyrir slys á þessum vegi. Ef slysastuðull er rétt reiknaður má gera ráð fyrir að heildar- greiðslur trygginga- félaganna lækki um tæplega milljarð fyrir 10 ára tímabil. Flýting þessarar framkvæmdar er þjóð- hagslega hagkvæm vegna þess að ekki ein- ungis kostnaður trygg- ingafélaganna lækkar heldur einnig kostnað- ur heilbrigðis- og tryggingakerfisins og félagslega kerfisins þar sem færri þurfa á ör- orkubótum og umönnun að halda. Vantar löggæslu? Sumir hafa bent á að aukin lög- gæsla muni koma í veg fyrir mörg þessarra slysa en um það eru skiptar skoðanir. Árið 1998 voru að meðal- tali 2,5 ökumenn teknir fyrir of hrað- an akstur daglega sem gera u.þ.b. 0,04% af umferðinni. Hvort það er mikið eða lítið skal ósagt látið. Öll berum við jafna ábyrgð á því að koma í veg fyrir slys. Með því að draga úr ökuhraða og sýna ýtrustu gætni getum við dregið verulega úr slysatíðni. Að sama skapi geta stjórnvöld lagt stóran skerf að mörkum með aukinni löggæslu, bættum vegum og öðrum umbótum – og það er okkar allra að fylgja því máli eftir. Reykjanesbrautin ekki verst! Menn hafa reiknað út að Reykja- nesbrautin sé ekki hættulegasti vegakafli landsins og nota til þess ýmsa tölfræði. Það er hins vegar ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera mun betur og ekki þar með sagt að íbúar þessa lands, sem mjög margir aka Reykjanesbraut vegna ferðalaga sinna til útlanda, ætli að láta sér það lynda að ekkert verði að gert fyrr en alltof seint. Svörin við því hvaða vegakaflar eru hættuleg- astir sveiflast milli ára eftir slysa- tíðni á hverjum stað. Mörgum er í fersku minni alvarlegt rútuslys í Hrútafirði sem gerði þann vegakafla svartasta kafla íslenskra þjóðvega það árið og ekki þarf nema örfá at- vik, jafnvel bara eitt, til að breyta þessum tölum. Við biðjum ekki um rútuslys á Reykjanesbraut til að komast í efsta sætið á þessum lista. Staðreyndin er hins vegar sú að Reykjanesbraut er óumdeilanlega einn umferðarmesti þjóðvegur landsins og ekkert lát er á aukningu. Gert er ráð fyrir 10-15% aukningu ferðamanna á næstu árum. Þeir þurfa allir að aka um Reykjanes- braut. Þá gerir hönnun og lega Reykja- nesbrautar ökumönnum erfitt fyrir en óvíða er að finna jafnmargar blindhæðir og blindbeygjur ásamt miklum hæðarsveiflum þar sem veg- urinn er lagður eftir landslaginu auk þess sem vegmerkingum virðist ábótavant. Hvað er hættulegt við Reykjanesbraut? 1. Framúrakstur er mjög hættu- legur á Reykjanesbraut þar sem vegsýn er mjög víða skert. Blind- hæðir og blindbeygjur eru margar og þess vegna erfitt að gera sér grein fyrir því hvort óhætt er að taka fram úr eða ekki. Ekki eru allir ökumenn sem fara um Reykjanes- braut daglega sammála því hvernig staðið er að vegmerkingum og marg- ir telja að þeir kaflar, þar sem fram- úrakstur er bannaður, þurfi að vera lengri en þeir eru merktir í dag og þessar merkingar geri ókunnum ökumönnum erfitt fyrir þegar meta skal hvort framúrakstur er öruggur. 2. Umhverfi Reykjanesbrautar- innar er talsvert frábrugðið um- hverfi annarra þjóðvega. Úfið hraunið og brattir fláar meðfram veginum gera það að verkum að við- tökurnar utan vegar eru heldur hvassar. Þetta umhverfi kallar á mikið eignatjón sem og alvarlega áverka á farþegum bifreiðanna. 3. 136 milljónum lítra af eldsneyti var ekið eftir Reykjanesbraut árið 1999 í 3.359 ferðum. Flugfarþegar þurfa flestir að fara eftir brautinni og margir í stórum rútum. Allar vörur sem koma inn í landið með flugi, sem og póstur, er fluttur eftir Reykjanesbrautinni, varlega áætlað má gera ráð fyrir að þar liggi 20-30 þúsund tonn. Fiskflutningar til og frá Suður- nesjasvæðinu eru töluverðir svo þungaflutningar eru býsna miklir. 4. Einhverra hluta vegna virðist eðli umferðarinnar á Reykjanes- brautinni vera annað en víða ann- arsstaðar. Aksturslag sem við verð- um vitni að daglega, eins og t.d. þar sem þrír bílar mætast á tveimur ak- reinum, sést ekki í jafnmiklu mæli á öðrum þjóðvegum. Þegar Reykjanesbrautin var lögð upphaflega var haft eftir Ólafi Ket- ilssyni, fv. sérleyfishafa „Reykjanes- brautin er ágæt en það vantar veg- inn til baka“ og segir þessi skemmtilega setning meira en mörg orð. Í dag viljum við veginn til baka. Ég vil sérstaklega þakka Körfu- knattleikssambandi Íslands og for- ráðamönnum körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og KR fyrir þann skiln- ing og samstöðu sem þeir sýndu með því að fresta stórleik kvöldsins sem mun í staðinn fara fram annað kvöld klukkan 20:00. Þeim skulum við sýna þakklæti okkar og fjölmenna annað kvöld. Það er mér persónulega mikill heiður að hafa fengið að vinna með þeim kraftmikla hóp sem með ómældri vinnu síðustu vikur hefur sýnt stuðning sinn við tvöföldun Reykjanesbrautar í verki. Það er ekki nóg að styðja málefnin, það þarf að vinna og framkvæma! Og við – þessi hópur munum vinna áfram og fylgja málinu til enda. Því get ég lof- að ykkur. Þessi borgarafundur er vissulega ekki fyrsta skrefið í átt að tvöfaldri Reykjanesbraut, og vissulega ekki það síðasta. En ég trúi því og veit að þessi fundur er og verður eitt af stóru skrefunum þegar upp er stað- ið. Kæru landsmenn. Það er hrein- lega skylda okkar sem styðja flýt- ingu á tvöföldun Reykjanesbrautar að sýna samstöðu og mæta á borg- arafundinn í kvöld. Samstaða kjós- enda hlýtur að hjálpa þingmönnum okkar og ráðamönnum til að fylgja málinu eftir og klára það með sóma. Þá minni ég einnig á undirskriftalist- ann á vf.is. Reykjanesbrautin – borgarafundur Steinþór Jónsson Umferðin Það er hreinlega skylda okkar sem styðja flýt- ingu á tvöföldun Reykjanesbrautar, seg- ir Steinþór Jónsson, að sýna samstöðu. Höfundur er hótelstjóri í Keflavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.