Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 67
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 67
Kringlunni 4-12,
sími 568 6688
Glerártorgi, Akureyri,
sími 461 1001
ÓTRÚLEGT
VERÐHRUN
Götuskór áður 5.990nú 3.990
Íþróttaskór áður 4.990
nú 2.990
Hlaupaskór áður 8.990
nú 3.990
Fótboltaskór barna
áður 3.990
nú 1.990
Peysur áður 3.990nú 1.990
Bolir áður 1.990
nú 990
Skór áður 7.990
nú 3.990
Dúndurverðlækkun!
Útsalan hefst í dag
Nýtt kortatímabil
Sími 581 1323
ÞAR SEM ég var í sveit voru ís-
lenskar kýr aldar á grasi og heyi,
þær fengu að auki sem fóðurbæti
lýsi og fiskimjöl í það litlu magni að
ég held það hafi ekki gert mjólkina
bragðverri, en gaf kúnum vítamín
og Omega-3 fitusýrur sem einnig
hefur skilað sér að einhverju leyti í
mjólkina. Þetta er nú bannað í Evr-
ópusambandinu. Mér finnst mjólk
og mjólkurafurðir úr íslenskum
kúm bragðbetri en það sem ég hef
fengið erlendis. Norskar kýr þurfa
miklu meira fóður og eru miklu lé-
legri til beitar en þær íslensku þar
sem klaufir þeirra og fætur eru of
litlir í hlutfalli við búkinn. Þær eru
mun þyngri og traðka því fljótlega
niður og eyðileggja tún og haga. Í
Noregi er víðast hlýrra og rakara
og því þolir landið betur átroðning-
inn. Í fóður handa norskum kúm
verða að sjálfsögðu notuð ódýrustu
hráefni sem til falla, það er ýmis
konar úrgangur og hert fita.
Þegar fita (jurtaolíur eða lýsi) er
hert í iðnaði myndast að jöfnu cis-
og trans-fitusýrur. Í náttúrunni
myndast lítið af trans-fitusýrum,
þær eru ónáttúrulegar og ollu því að
sú kynslóð sem alin var upp á ódýru
smjörlíki hrundi niður úr hjarta-
sjúkdómum. Það var í þeim löndum
sem mikið smjörlíki var notað þar
sem hjartasjúkdómar urðu að far-
aldri. Jafnvel þau lönd þar sem
meira var um reykingar komu betur
út en þau lönd þar sem mikils
smjörlíkis var neytt. Þessar eitruðu
fitusýrur hækka vond kólester-
ólsambönd í blóðinu og valda, ásamt
miklu sykuráti og reykingum,
skemmdum á æðum, sem svo aftur
vonda kólesterólið sest í. Það er því
ekki kólesterólið sem er frum-skað-
valdurinn þótt iðnaðinum hafi tekist
að ljúga því að almenningi nú í ára-
tugi. Trans-fitusýrur virðast einnig
auka líkur á brjóstakrabbameini.
Þegar kýr eru aldar á trans-fitu-
sýrum skila þessar fitusýrur sér út í
mjólkina í auknum mæli, sem við
svo aftur drekkum. Auk þessa má
reikna með að þrávirk eiturefni úr
fitu og úrgangi verði í fóðrinu og
þar af leiðandi væntanlega meiri úr
norskri kúamjólk, þau verða svo aft-
ur ennþá meiri í móðurmjólkinni því
þéttni þeirra eykst á hverju stigi
fæðukeðjunnar.
Conjugated Linoleic acid (CLA)
er fitusýra sem verndar líkamann
fyrir krabbameini og dregur úr fitu-
söfnun en styrkir vöðva. Hún finnst
í mjólk og kjöti en ekki hertri fitu.
Mjólk í Bandaríkjunum inniheldur í
dag aðeins 1/3 þess magns af CLA
sem var í mjólk fyrir 1960. Kjöt af
kúm sem bíta gras inniheldur allt að
fjórum sinnum meira magn af CLA
en kjöt af kúm sem aldar eru á
fóðri. Þetta er talin geta verið ein
megin skýringin á offitufaraldrinum
sem geisar nú í Bandaríkjunum og
víðar.
Það þarf ekki að minna á stórslys
sem orðið hafa við fóðurgerð víða
um heim eins og kúariðuna sem nú
herjar á fólk í Bretlandi og PCB
menguðu olíuna sem komst í fóður í
Frakklandi.
Í Evrópusambandinu hefur verið
sett sú lagaskylda að merkja vörur
sem koma úr erfðabreyttum lífver-
um. Fyrir þessu eru ekki mikil vís-
indaleg rök þar sem vísindamenn
gera ekki mikinn mun á erfðabreyt-
ingum og kynbótum og ekki eru vís-
indaleg rök fyrir því að erfðabreytt
vara þurfi að vera hættulegri en
önnur. Það er fyrst og fremst réttur
neytandans til að ákveða sjálfur
hvað hann lætur ofan í sig sem þessi
lagasetning er grunduð á. Ég vona
að réttur neytandans verði ekki fót-
um troðinn í þessu máli þar sem
hagsmunir okkar sem neytenda eru
miklu greinilegri. Ekkert virðist
geta stöðvað innflutning á norskum
mjólkurkúm úr þessu en við eigum
rétt á að ekki verði merkt sem ís-
lensk mjólk og mjólkurvara annað
en það sem kemur úr upprunalegum
íslenskum kúm.
Það hlýtur að koma að því að ís-
lenskur landbúnaður verði að stand-
ast samkeppni við innfluttar vörur
og sækja á erlenda markaði. Þá
mun skipta öllu máli að hafa varð-
veitt þau gæði sem við kunnum að
hafa einstök að bjóða, bragðgóða og
holla mjólk úr íslenskum kúm. Það
getur því einnig skipt landbúnaðinn
máli að íslenskri kúamjólk sé haldið
vel aðskildri, og sé vel merkt, og
standi þá undir því merki.
ÞORVALDUR
GUNNLAUGSSON
stærðfræðingur.
Hollusta mjólkur
og norskar kýr
Frá Þorvaldi Gunnlaugssyni:
KANNSKI finnst einhverjum að
verið sé að bera í bakkafullan læk-
inn að fjalla frekar en orðið er um
jólaklúður Íslandspósts. Þó langar
mig að tína til þrjú dæmi, sem sýna
að eitthvað er að hjá þessari stofn-
un og að vandræðagangurinn er
ekki bara bundinn við jólaösina.
Eitt barna minna átti von á
litlum jólapakka utan af landi fyrir
þessi jól. Að kvöldi Þorláksmessu
er bankað uppá og úti stendur
kona, ekki starfsmaður Íslands-
pósts, með pakkann, sem hún seg-
ist hafa fundið úti á götu við heimili
sitt u.þ.b. einum km frá okkar
heimili. Pakkinn var greinilega
áritaður og með póststimpli þess
pósthúss, sem hann kom upphaf-
lega frá. Ég færi hinni hugulsömu
konu þakkir fyrir að koma pakk-
anum í réttar hendur en spyr jafn-
framt: Hvað brást hjá Íslands-
pósti?
Bréfritari þekkir fólk í vesturbæ
Kópavogs, sem í haust fékk nokkur
bréf í hendur. Kannski ekki merki-
legt, nema fyrir þá sök að bréfin
fundust blaut og hrakin í húsagarði
talsvert frá heimili viðtakenda.
Aftur var það skilvís og hugulsam-
ur borgari, sem kom póstinum á
leiðarenda eftir að Íslandspóstur
hafði brugðist skyldu sinni.
Bréfritari, sem býr í blokk, hefur
oft á liðnum mánuðum orðið var við
að í stigaganginn berst póstur, sem
á alls ekkert erindi þangað, þ.e.
bréf, sem eru stíluð á allt annað
heimilisfang í annarri götu. Það er
því undir framtakssemi íbúa hér
komið hvort þessum pósti er skilað
aftur á pósthúsið eða beint til
réttra viðtakenda.
Hér hafa aðeins verið nefnd þrjú
dæmi, sem styðja raddir um klúður
hjá Íslandspósti. Þar þurfa menn
greinilega að taka til hendinni bæði
hvað varðar flokkun og dreifingu
pósts. Að öðrum kosti glatar stofn-
unin trausts almennings enn frekar
en nú er orðið.
SIGURBJÖRN H.
MAGNÚSSON,
Lækjasmára 86, Kópavogi.
Íslandspóstur,
hvað er að?
Frá Sigurbirni H. Magnússyni: