Morgunblaðið - 11.01.2001, Side 71

Morgunblaðið - 11.01.2001, Side 71
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 71 ÚTSALAN BYRJAR Í DAG Allt að 60% afslátturDæmi: X-tra.is bolir frá 2.900 Stussy jakkar 50% afsl. Fubu peysur frá 3.900 Freshjive buxur frá 2.900 Snjóbrettajakkar frá 7.900 Axion skór frá 3.900 Opið til kl. 21.00 fimmtudaga NÝTT KORTATÍMABIL Opið til kl. 21.00 alla fimmtudaga NÝTT KORTATÍMABIL SMASH Laugavegi s. 511 1750 - Kringlunni s. 553 1717 DÚNDUR ÚTSALA HEFST Í DAG Diesel gallabuxur frá 3.900 Levi’s buxur „ 3.900 Fila úlpur „ 4.900 Is it ZO jakkar 30% afsl. Urban kápur „ 6.900 X-18 skór „ 2.900 Fila skór „ 3.900 Nike skór „ 3.900 Adidas skór „ 3.900 Kringlunni s. 533 1717 Kvikmyndaklúbbur- inn Filmundur stendur fyrir franskri kvik- myndahátíð, dagana 11. til 22. janúar, í samvinnu við Alli- ance Francaise. Hér er um að ræða nýlegar verð- launamyndir sem eiga það sammerkt að hafa ekki verið sýndar hérlendis áður. Átta myndir verða sýndar og eru þær af ýmsum toga, allt frá spreng- hlægilegum försum yfir í kolsvartar glæpamyndir. Þær myndir sem um er að ræða eru þessar; Place Vendôme eftir Nicole Garcia, Vénus beauté (institut) eftir Tonie Marshall, Post-coitum animal triste eftir Brigitte Roüan, Le Cous- in eftir Alain Corneau, Serial Lover eftir James Huth, Le Pari eftir Did- ier Bourdon og Bernard Campan, Le Fils préfere eftir Nicole Garcia og Y-aura-til de la neige a Noel? eftir Sandrine Veysset. Flestar myndanna hafa unnið til eða verið tilnefndar til verðlauna eins og Cesarverðlaunanna og evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og komið fram á hátíðum eins og Cannes-kvik- myndahátíðinni og ýmsum alþjóðleg- um hátíðum sambærilegum. Af ein- stökum myndum er hægt að nefna t.d. Place Vendôme en hún skartar sjálfri Catherine Deneuve í aðalhut- verki, en hún er ein af frægari leik- konum Frakka og sást síðast í Myrk- radansaranum eftir Lars von Trier ásamt Björku Guðmundsdóttur. Vénus beauté (insti- tut) var svo valin besta mynd Frakk- lands í fyrra en hún hefur og unnið til fjölda verð- launa víðs vegar um heiminn. Þetta er háðsk ádeilumynd sem fjallar um snyrtistofu, hvar ólíkar konur á ólík- um aldri deila með sér vangaveltum um lífsins gagn og nauðsynjar. Einnig ber að nefna myndir eins og Post-coitum animal triste, mynd sem fjallar um eldheitt framhjáhald tveggja barna móður með ítölskum pípulagningarmanni en hún hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar tökur og tæknibrellur og Y-aura-til de la neige a Noel?, mannleg ádeilumynd sem fjallar um sjö barna móður og baráttu þeirra fyrir réttlátum lífs- kjörum. Opnunarmyndin verður Vénus beauté (institut) og verður sýnd í kvöld kl. 22.30 en svo verða á bilinu tvær til fjórar sýningar á dag þar til hátíð lýkur. Allar sýningarnar fara fram í Há- skólabíói. Atriði úr myndinni Venus beauté (institut). Hin franska filmulist Frönsk kvikmyndahátíð hefst í kvöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.