Morgunblaðið - 12.01.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sléttari húð, aukinn ljómi og
fullkomin ró. Róandi næturkrem
sem færir húðinni vítamín.
Útsölustaðir:
Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi,
Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ,
Hjá Maríu Amaró, Akureyri, Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
l i :
i i, j i,
l j l
j í , i, i l i,
i, ti l i l i .
D-STRESS NÆTURKREM
GÓÐ ýsuveiði hefur verið und-
anfarið hjá smábátunum sem gera
út á línu frá Vestmannaeyjum. Al-
gengt hefur verið að trillusjómenn
fái um 100 kílógrömm á hvert bjóð
(bala) á dag, en yfirleitt er hver bát-
ur með um 20 bala. Trillurnar hafa
því komið í land með eitt til tvö tonn
eftir daginn. Yfirleitt eru einn til
tveir menn á hverri trillu.
Ýsan fer á fiskmarkað í Vest-
mannaeyjum og hafa sjómenn feng-
ið 170–200 krónur fyrir kílóið af
góðri ýsu, en 110–120 krónur fyrir
smærri ýsuna.
Um 20 smábátar eru gerðir út á
ínu frá Vestmannaeyjum í vetur og
að sögn sjómanna hefur ýsan, sem
komið hefur á land undanfarið, ver-
ið nokkuð blönduð. Veðrið hefur
verið gott undanfarið en í gær var
búist við brælu fram yfir helgi.
Góð
ýsuveiði
SAMNINGUR Landspítala-há-
skólasjúkrahúss og Urðar, Verð-
andi, Skuldar (UVS) um samstarf á
sviði krabbameinsrannsókna felur
ekki í sér einkarétt af neinu tagi á
þeim upplýsingum sem þar verða til
ráðstöfunar, heldur geta önnur
erfðarannsóknafyrirtæki gert sam-
bærilega samninga við spítalann.
Íslensk erfðagreining kemur til með
að leggja fé til jafns við UVS til
krabbameinsmiðstöðvarinnar, en á
blaðamannafundi á miðvikudag kom
fram að UVS leggur 300 milljónir
kr. til krabbameinsmiðstöðvarinnar
á næstu átta árum.
Magnús Pétursson, forstjóri
Landspítala – háskólasjúkrahúss,
sagði að samstarfssamningurinn,
sem gerður hefði verið við UVS og
skýrt var frá á blaðamannafundi á
miðvikudag, fæli ekki í sér einka-
rétt UVS til þeirra upplýsinga sem
hægt yrði að finna í krabbamein-
smiðstöðinni. Málið snerist um það
að spítalinn færi inn í formlegt sam-
starf við erfðafyrirtæki og gerði um
það samning til viðbótar við það
samstarf sem einstakir læknar eða
hópar þeirra ættu í við einstök
erfðarannsóknafyrirtæki.
Með þessu móti greiddi spítalinn
götu þessara rannsókna með form-
legum hætti jafnframt því sem
tryggt væri að meðferð þeirra upp-
lýsinga sem þarna væru fyrir hendi
lytu í einu og öllu þeim reglum sem
settar væru hvað varðaði persónu-
vernd, siðfræði vísindarannsókna
og annað. Þarna væri sum sé verið
að formbinda þetta samstarf báðum
aðilum til hagsbóta.
Magnús bætti því við aðspurður
að sjálfsagt væri að gera sambæri-
lega samstarfssamninga við aðra
aðila. Íslensk erfðagreining hefði
fært það í tal við spítalann, en það
væri ekki komið það langt að samn-
ingur hefði verið gerður í þeim efn-
um.
Hið besta mál
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sagði að
samstarfssamningur Landspítala-
háskólasjúkrahúss við UVS væri
hið besta mál. Íslensk erfðagreining
hefði unnið að rannsóknum af þessu
tagi í mjög langan tíma í samvinnu
við Landspítala – háskólasjúkrahús
og aðra aðila. Nýlega hefði þessum
rannsóknum verið fundinn staður í
dótturfyrirtæki ÍE, Íslenskum
krabbameinsrannsóknum ehf., en
það fyrirtæki væri nú að flytjast inn
í rúmgott húsnæði á Krókhálsi í
Reykjavík, sem keypt hefði verið
undir starfsemina.
„Ég held að það sé í fínasta lagi
að það komi aðrir inn í þessar rann-
sóknir og ég vona að Urður, Verð-
andi, Skuld verði loksins eitthvað
annað en orðin tóm. Ef ég man rétt
var fyrirtækið stofnað 1997 og það
er ekki enn komin starfsemi í gang.
Ég vona að þetta leiði til þess að
þeir fari að vinna og ég vona að sú
vinna gangi vel,“ sagði Kári.
Hann sagði að þessi samstarfs-
samningur takmarkaði á engan hátt
rannsóknir Íslenskrar erfðagrein-
ingar og dótturfyrirtækis þess á
þessu sviði. Íslensk erfðagreining
leggi mjög mikið fé til stofnunar
krabbameinsmiðstöðvarinnar þó
það hafi ekki komið fram í fréttum
af blaðamannafundinum þar sem
samstarfssamningurinn var kynnt-
ur.
„Staðreynd málsins er hins vegar
sú að við komum til með að leggja fé
til jafns á við UVS í að stofna þessa
rannsóknamiðstöð. Þetta er rann-
sóknamiðstöð sem Landspítalinn er
að setja saman, ekki til þess að
þjónusta eitt fyrirtæki, heldur til að
sjá til þess að þeir sem vilja vinna
við krabbameinsrannsóknir í sam-
vinnu við þá eigi aðgang að upplýs-
ingum og efnivið og það er hið besta
mál,“ sagði Kári. Hann sagði að tvö
fyrirtæki myndu því starfa á þessu
rannsóknasviði og eftir eitt til tvö ár
væri ástæða til að skoða hvort fyr-
irtækið hefði náð betri árangri.
„Ef ég man rétt, í þeirri sveit sem
ég bjó í um dálítinn tíma sem heita
Bandaríki Norður-Ameríku, að þá
lögðu menn mikla áherslu á að sam-
keppni væri af hinu góða. Og ég get
ekki sagt annað en að ég bara
hlakki til þess að vinna í samkeppni
við Urði, Verðandi, Skuld,“ sagði
Kári ennfremur.
Krabbameinsmiðstöð Landspítala – háskólasjúkrahúss
ÍE leggur fram fé
til jafns við UVS
Morgunblaðið/Sigurgeir
Líflegt hefur verið á bryggjunum í Vestmannaeyjum undanfarna daga. Á myndinni er verið að flokka ýsu.
GUÐGEIR Eyjólfsson, forstjóri
Fangelsismálastofnunar ríkisins,
segir fíkniefnaneyslu í fangelsum
viðvarandi vandamál, einkum í fang-
elsinu Litla-Hrauni. Þetta eigi bæði
við um ólögleg fíkniefni og misnotk-
un lyfja sem ávísuð eru af læknum.
Þá segir Guðgeir að ástæða sé til að
endurskoða fyrirkomulag einangr-
unarvistar hér á landi. Guðgeir
bendir á að nú sé það svo, að rann-
sóknari ákveði fyrirkomulag
einangrunar og hvert inntak hennar
er en þá ákvörðun sé hægt að bera
undir dómara.
„Eðlilegra virðist að svo íþyngj-
andi ákvörðun, sem einangrun er, sé
tekin af dómara skv. kröfu rann-
sóknara og sé tekin til ákveðins tíma.
Ennfremur að einangrun verði sett-
ur hámarkstími, sem gæti verið mis-
munandi eftir alvarleika brotsins,“
segir Guðgeir. Almennt verði að
gæta hófs í beitingu einangrunar en
verulega hafi verið dregið úr beit-
ingu einangrunar sem agaviðurlaga í
fangelsum á síðustu árum. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í for-
mála Guðgeirs að ársskýrslu Fang-
elsismálastofnunar fyrir árið 1999.
Þekking á fyrirkomulagi
einangrunar takmörkuð
Guðgeir tekur einnig fram að svo
virðist sem þekking almennings á
fyrirkomulagi einangrunar sé tak-
mörkuð. Með einangrun sé átt við að
fangi sé útilokaður frá félagsskap við
aðra fanga. Það hafi ekki sjálfkrafa í
för með sér takmörkun á öðrum rétt-
indum, s.s. aðgangi að fjölmiðlum og
heimsóknum. „Í reynd hefur gæslu-
varðhaldsfangi sem sætir einangrun
samskipti við fangaverði, fangelsis-
prest, heilbrigðisstarfsfólk og að
sjálfsögðu verjanda sinn. Einnig eru
í sumum tilfellum heimilaðar heim-
sóknir ættingja,“ segir Guðgeir.
Þá segir Guðgeir mjög mikilvægt
að nýtt fangelsi rísi á næstu miss-
erum. Aðstaða í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg sé óviðunandi og
uppfylli ekki lágmarkskröfur sem
gerðar eru til fangelsis. Þar sé t.d.
engin aðstaða til vinnu eða náms.
Guðgeir vísar í skýrslu Evrópu-
nefndar um varnir gegn pyntingum
og ómannlegri eða vanvirðandi með-
ferð eða refsingu til ríkisstjórnar Ís-
lands.Þar mælist nefndin til þess að
íslensk yfirvöld veiti byggingu nýs
gæsluvarðhaldsfangelsis í Reykjavík
algeran forgang.
Guðgeir segir að með endurbótum
sem gerðar voru á húsi 3 í fangelsinu
Litla-Hrauni sé aðstaða þar orðin
sambærileg við það sem er í nýjustu
byggingu fangelsisins. Hann bætir
við fjárveitingar til Fangavarðaskól-
ans hafi verið stopular en ekki sé
hægt að reka nútímalegt fangelsi
nema með vel menntuðu og hæfu
starfsfóki. Vonir séu þó bundnar við
það að rekstur skólans verði tryggð-
ur í framtíðinni með sérstakri fjár-
veitingu.
Forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins
Endurskoða þarf
einangrunarvist
BÆJARSTJÓRN Sandgerðis sam-
þykkti í fyrrakvöld að fela bæj-
arstjóra og skólastjóra að leggja
tillögu fyrir næsta fund bæjarráðs.
þar sem óskað verði eftir að
menntamálaráðuneytið geri úttekt
á öllu innra starfi skólans.
Sigurður Valur Ásbjörnsson,
bæjarstjóri, sagði að á fundinum í
fyrrakvöld hefðu farið fram ítar-
legar umræður um skólastarf í
Sandgerði í framhaldi af niður-
stöðu í samræmdum prófum, en
meðaleinkunnir í 4. og 7. bekk í
Sandgerði voru langt fyrir neðan
landsmeðaltal.
Meðaleinkunn í stærðfræði í 4.
bekk var 4,3 og 3,2 í íslensku.
Meðaleinkunn í stærðfræði í 7.
bekk var 3,1 og 2,6 í íslensku.
Miklum fjármunum
varið til skólastarfsins
Sigurður sagði að útkoma skóla-
barna á prófunum í Sandgerði ylli
stjórnendum bæjarfélagsins mikl-
um vonbrigðum, ekki síst í ljósi
þess að ekkert sveitarfélag á land-
inu hefði varið eins miklum fjár-
munum til skólastarfs miðað við
íbúafjölda og Sandgerði. Það hefði
verið sérstakt átak í skólanum sl.
þrjú ár sem miðaði að því að bæta
innra starf skólans. Miklum fjár-
munum hefði verið varið til að
bæta tölvukost skólans og byggt
hefði verið myndarlega við skól-
ann. Hann sagði að menn hefðu
talið sig sjá árangur á síðustu
tveimur árum og þess vegna væri
útkoman í samræmdu prófunum
nú umhugsunarverð.
Sú spurning vaknaði eðlilega
hvort mistök hefðu verið gerð og
hvort menn hefðu haft rangar
áherslur á síðustu árum. Það væri
auðvitað fullt tilefni til að spyrja
hvort þeim auknu fjármunum sem
bærinn hefði varið til skólans hefði
verið illa varið. Hann hefði því lagt
til á bæjarstjórnarfundinum að
óskað yrði eftir úttekt mennta-
málaráðuneytisins á skólastarfinu.
Sigurður sagði að miklar um-
ræður hefðu skapast á fundinum
um skólann og skólastarfið. Menn
hefðu verið sammála um að mik-
ilvægt væri að við skólann störf-
uðu kennarar með full kennara-
réttindi og að stöðugleiki ríkti í
starfsmannahaldi. Við skólann
starfaði harður kjarni góðra kenn-
ara og við hann hefðu einnig starf-
að hæfir leiðbeinendur. Það hlyti
hins vegar að vera metnaðarmál
skólans að við hann störfuðu rétt-
indakennarar.
Bæjarstjórn Sandgerðis ræddi
niðurstöðu samræmdra prófa
Óska eftir út-
tekt ráðuneytis
á skólastarfi
UNGUR ökumaður var tekinn á
ofsaakstri um Reykjanesbraut um
klukkan átta í gærmorgun. Að sögn
lögreglunnar í Hafnarfirði var öku-
maðurinn, sem er 18 ára gamall, tek-
inn á 165 kílómetra hraða í myrkri og
rigningu.
Lögregla segir að menn virðist
aka eins og þeim sýnist og beri enga
virðingu fyrir samborgurum sínum.
Tekinn á 165
km hraða
♦ ♦ ♦