Morgunblaðið - 12.01.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
Seigla ehf. kynnir nýjan,
öflugan hraðfiskibát.
Í reynslusiglingu fór þessi
öflugi bátur 24 sjómílur með
800 l af olíu og 4 tonn í lest.
Aðalvélin:
Yanmar 420 hö.
Gír: ZF IRM 302V
Sá öflugasti
Gerð: Seigur 1000
Lengd: 10m - Breidd: 3m - 14 kör í lest.
Einnig fáanlegur sem 935, fyrir þorskaflahámark.
Símar: 698 3487 • 852 3580
Sýnum og kynnum
Föstud. 12. jan. kl. 16-19 v/ Miðbakka í Rvk.
Laugard.13. jan. kl. 10-12 Akranes
Laugard.13. jan. kl. 18-21 Ólafsvík
Sunnud. 14. jan. kl. 15-17 Patreksfjörður
Sunnud. 14. jan. kl 18-21 Tálknafjörður
Mánud. 15. jan. kl. 13-15 Suðureyri
Mánud. 15. jan. kl. 16-19 Bolungarvík
í sínum
flokki!
Seig 1000
SAMSTARFSSAMNINGUR milli
Auðkennis hf. og GlobalSign vegna
útgáfu rafrænna skilríkja fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki hér á landi var
undirritaður í gær. Auðkenni hefur
gert samkomulag við viðskiptabank-
ana og sparisjóðina um að fyrirtækið
gefi út rafræn skírteini sem nýtast
með tölvubúnaði þessara fjármála-
stofnana og verða skírteinin boðin
einstaklingum endurgjaldslaust fyr-
ir lok mánaðarins.
Í fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu segir að skírteinin muni stuðla að
öruggum samskiptum milli banka,
sparisjóða og viðskiptamanna þeirra
og að heimabankar muni treysta raf-
rænum skilríkjum frá Auðkenni. Þá
segir að Landssími Íslands hyggi á
notkun þessara rafrænu skilríkja til
útvíkkunar þjónustu sinnar.
Skírteini á stærð við greiðslukort
Skírteinin sem um ræðir eru á
stærð við greiðslukort. Þeim er
stungið í þar til gerða rauf á litlu
tæki, sem annaðhvort er innbyggt í
tölvu eða tengt henni. Þennan búnað
geta menn haft í eða við heimilis- eða
fartölvu og að sögn forsvarsmanna
Auðkennis mun hann verða ódýr og
líklega ekki kosta meira en eitt til tvö
þúsund krónur. Eigendur geta notað
skírteini sín með því að slá inn leyni-
númer (pin-númer). Á skírteinunum
verða svo geymdir tvenns konar
lyklar sem báðir tengjast eiganda
skírteinisins. Annar er opinber, þ.e.
allir hafa aðgang að honum, en hinn
er einkalykill og verður á korti eig-
andans. Með notkun þessara tveggja
lykla á að sögn forráðamanna Auð-
kennis til dæmis að vera hægt að
tryggja að greiðsla á Netinu berist
aðeins þeim sem hún er ætluð. Þetta
er gert með því að greiðandinn send-
ir opinberan lykil viðtakanda
greiðslunnar með greiðslunni og
einkalykill viðtakandans gerir við-
takanda greiðslunnar kleift að taka
við henni. Þar sem hann einn hefur
þennan einkalykil á enginn að geta
tekið við henni nema hann.
Tekur mið af frumvarpi um
rafrænar undirskriftir
Stærstu hluthafar Auðkennis eru
viðskiptabankarnir, sparisjóðirnir,
Landssími Íslands og Kögun.
Guðlaugur Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastóri Auðkennis, segir að
ein af ástæðum þess að samið var við
GlobalSign sé að það sé evrópskt fyr-
irtæki og að þess vegna taki samn-
ingurinn mið af tilskipun Evrópu-
sambandsins um rafrænar
undirskriftir. Þá hafi einnig verið
tekið tillit til frumvarps um rafrænar
undirskriftir sem viðskiptaráðherra
hyggist leggja fyrir Alþingi nú í vor.
GlobalSign var stofnað árið 1996
og er með aðsetur í Brussel. Það
starfar við vottun um allan heim og
býður þjónustu við útgáfu og um-
sýslu stafrænna skilríkja, að því er
fram kemur í fyrrgreindri fréttatil-
kynningu. Skilríkin geta bæði nýst
til að undirrita og innsigla tölvupóst
og til að auka traust í rafrænum og
þráðlausum viðskiptum.
Morgunblaðið/Ásdís
Birgir Már Ragnarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Auðkennis, með raf-
rænt skírteini og móttakara þess.
Rafræn skilríki
boðin hér á landi
SKIPUÐ hefur verið ný stjórn
Frjálsrar fjölmiðlunar hf. og var
stjórnarmönnum fjölgað um tvo,
úr þremur í fimm.
Eftir sem áður sitja Sveinn R.
Eyjólfsson sem formaður, Gunnar
Felixson, forstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar, sem varaformaður
og Eyjólfur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðl-
unar. Nýir inn í stjórnina komu nú
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
og varaformaður bankaráðs
Landsbankans, og Einar Örn
Jónsson, framkvæmdastjóri fjár-
festingarfélagsins Saxhóls. Vara-
menn eru Ólafur Nilson endur-
skoðandi og Sveinn Fr. Sveinsson
viðskiptafræðingur.
Telur félagið hafa
styrkst enn frekar
Eyjólfur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segist
telja að með fjölgun stjórnar-
manna hafi félagið styrkst enn
frekar.
„Skipan stjórnar félagsins er nú,
eins og áður, sameiginleg niður-
staða allra hluthafa þess, þ.e. ein-
stakir stjórnarmenn eru ekki
eyrnamerktir ákveðnum hluthöf-
um heldur stendur hluthafahópur-
inn í heild að stjórninni.
Við fengum þarna inn valin-
kunna menn og erum mjög ánægð-
ir með þá lendingu sem varð“, seg-
ir Eyjólfur.
Ný stjórn Frjálsrar
fjölmiðlunar
Stjórnar-
mönnum
fjölgar
um tvo
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 21